Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Qupperneq 38
36
Tekju- og verðlagsþróun á árinu 1972.
1 lok ársins 1971, eftir að fyrsti áfangi desember-
samningsins var kominn til framkvæmda, var almennt kauplag 6.7%
hærra en að meðaltali á árinu 1971.
1 byrjun janáar s.l. hækkaði skiptaverð til sjómanna um
10% að meðaltali, og um sama leyti fengu undirmenn á kaupskipum
kauphækkun, sem var töluvert meiri en sú, sem um var samið fyrir
önnur aðildarfálög ASÍ £ desember. Ýmsar aðrar starfsstáttir
hafa einnig endurnýjað kjarasamninga sína við vinnuveitendur á
undanförnum mánuðum. 1 byrjun marz kvað Kjaradómur upp úrskurð
um launakröfur opinberra starfsmanna, sem m.a. fól £ sár flýtingu
starfsaldurshækkunar (eftir 1 ár og 6 ár £ stað 6 og 12 ára
áður) og flýtingu á framkvæmd s£ðasta áfanga kjarasamningsins
frá desember 1970 um einn mánuð. Einnig er kveðið á um almenna
7% hækkun grunnlauna 1. marz 1973.
í árslok 1971 var vfsitala framfærslukostnaðar 0.8% hærri
en meðaltal sama árs, og vfsitala vöru og þjónustu var 1.0% hærri
en ársmeðaltalið. í þessu sambandi er rétt að hafa £ huga, að
verðstöðvunarlögin voru £ gildi allt árið. Um s.l. áramót gengu
verðstöðvunarlögin frá nóv. 1970 úr gildi, en eftir sem áður eru
allar innlendar verðhækkanir háðar leyfi Verðlagsnefndar og
endanlegu samþykki ríkisstjórnarinnar. Af þessum sökum er afar
erfitt að spá um endanlega verðlagsþróun á þessu ári, einkum
þar sem tfmasetning mikilvægra verðákvarðana getur ráðið miklu
um breytingar framfærslu- og kaupgreiðSluvfsitalna. Hinsvegar
er ljóst, að kjarasamningarnir £ desember og gengisbreytingarnar
á seinnihluta sfðasta árs valda verulegri kostnaðarhækkun hjá
atvinnuvegunum og þar með þrýstingi til hækkunar á verðlagi
innlendrar vöru og þjónustu, eins og þegar hefur reyndar k-omið
fram.
Þar sem verðlagsbreytingar hafa veruleg áhrif á þróun
nær allra launa vegna vfsitölubindingar kauptaxta, eru spár
um tekjuþróun lföandi árs ekki aðeins háðar mikilli óvissu vegna
áhrifa vinnutfmabreytingarinnar um s.l; áramót á peningatekjur
launþega, heldur einnig vegna þess, hve erfitt er að ráða £
endanlega verðlagsþróun á árinu.