Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Qupperneq 47
45
Þjóðarframleiðsla og verðmætaráðstöfun 1972.
Á árunum 1970 og 1971 jókst þjóóarframleiösla mjög mikið,
eða um 6% 1970 og 9 1/2% 1971. Þessa framleiðsluaukningu verður
að skoða £ samhengi við samdrátt áranna 1967 og 1968, en vegna
hans var um verulegan slaka að ræða £ nýtingu framleiðsluþáttanna
slaka, sem nú hefur verið meira en unninn upp. Möguleikar til
framleiðsluaukningar eru þv£ að þessu leyti þrengri á árinu 1972.
Fjölgun atvinnubærra manna á árinu 1972 verður að lfkindum
um 1.9%. Þá má búast við nokkurri mannaflaaukningu til' viðbótar
vegna heimkomu fslenzkra verka- og iðnaðarmanna eftir dvöl
erlendis og vegna aukinnar nýtingar starfskrafta húsmæðra og náms
manna eins og jafnan, þegar vel árar. 1 heild má þv£ gera ráð
fyrir, að atvinna geti aukizt um 3%.
Eins og að framan sagði, virðist ólfklegt, að stytting
dagvinnutfmans, sem var lögfest og samið um £ desember s.l.,
valdi mikilli, raunverulegri styttingu heildarvinnutfma og þar
með mikilli skerðingu framleiðslugetu þjóðarbúsins. Ef heildar-
vinnutfmi styttist þarf skerðing framleiðslugetunnar heldur ekki
að vera £ beinu hlutfalli við styttinguna, vegna hugsanlegra,
hagstæðra áhrifa á afköst. Þannig geta komið til atriði eins
og betri nýting vinnutfmans og £ sumum greinum skerðing
"þjónustumagns", sem ekki kemur beint fram á markaðnum, heldur
£ óverðlögðu óhagræði neytenda, t.d. vegna styttri verzlunartfma
en áður. Þvf er gert ráð fyrir, að stytting dagvinnutfmans
muni ekki hafa nein veruleg, takmarkandi áhrif á möguleikana
til framleiðsluaukningar á árinu.
Framleiðslufjármunir, og þar með möguleg afkastageta
atvinnuveganna, hafa aukizt að mun á sfðas.tliðnum tveimur árum
og halda áfram að aukast £ ár. í heild má áætla, aö fjármuna-
eign atvinnuveganna verði um 6-7% meiri að magni á árinu 1972
en á árinu 1971.
Á árinu 1972 má með nokkurri bjartsýni spá um 7-8% aukningu
framleiðslunnar £ heild. Framleiðsluspáin er afar breytileg
eftir atvinnugreinum. í eftirfarandi yfirliti eru settar fram
hugmyndir um möguleika magnaukningar framleiðslunnar eftir
atvinnugreinum, og eru þær byggðar á þeirri vitneskju, sem nú
er fyrir hendi um framleiðslubreytingar^ það sem af er árinu, og
horfum um væntanlega framvindu út árið. Gert er ráð fyrir, að
um 5% aukning geti orðið á landbúnaðarframleiðslunni á árinu.