Þjóðarbúskapurinn

Issue

Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Page 48

Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Page 48
46 Aö sjálfsögðu ræður árferði hér miklu, en bregðist heyskapur ekki með öllu, virðist einsætt, að nokkur framleiðsluaukning geti orðið vegna hins góða tíðarf.ars á s.l. vetri og sumri og hagstæðrar útkomu s.l. framleiðsluárs. Þegar er vitað um nokkra aukningu mjólkurframleiðslunnar, en innvegið mjólkurmagn á fyrstu fjórum mánuðum ársins -var um 5% meira en á sama tíma í fyrra. Vegna lólegrar útkomu vetrarvertíðarinnar er ekki ástæða til að ætla, að um aflaaukningu geti orðið að ræða fyrir árið í heild, enda þótt fiskiskipaflotinn hafi aukizt nokkuð á árinu 1971 og muni halda áfram að aúkast á þessu ári. Því má varla gera ráð fyrir neinni magnaukningu sjávarafurðafraínleiðslu 1972. Samkvæmt niðurstöðum fyrirspurna Félags ísl. iðnrekenda og Landssambands ísl. iðnaðarmanna ("hagsveifluvog iðnaðarins") var iðnaðar- framleiðslan á 1. ársfjórðungi þessa árs um 10% meiri að magni en á sama tíma £ fyrra. Álframleiðslan var um 9% minni fyrstu fjóra mánuði ársins en á sama tima í fyrra, enda færri ker í notkun, en áætlað er, að í heild verði álframleiðslan í ár talsvert meiri en í fyrra_, eða um 48 þús. tonn miðað við 41.3 þús. tonn árið 1971, enda kemur síðari kerskálinn í gagnið í september. Fyrstu fimm mánuði ársins var framleiðsla kísilgúrs um 15% meiri en á sama tíma í fyrra, sementsframleiðslan um 10% meiri, og framleiðsla á öli, gosdrykkjum og sælgæti um 15-16% meiri. í heild er gert ráð fyrir, að iðnaðarframleiðslan geti aukizt um 10% að magni yfir allt árið. Þá er gert ráð fyrir, að raforku- framleiðsla muni aukast um 13% á árinu. í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð er búizt við um 13% magnaukningu framleiðslu. AUkningin gæti þó orðið meiri í ýmsum greinum, svo sem £ byggingu íbúðarhúsa, en væntanlega mun vinnuaflsskortur að nokkru takmarka framleiðslugetuna. Áætlað er, að umsvif í opinþerri þjónustu aukist um 5 1/2%, og með tilliti til mikillar aukningar eftirspurnar og einkaneyzlu er spáð um 9% magnaukningu annarrar þjónustu en opinberrar og í viðskiptum. Samkvæmt vitneskju um orðna og væntanlega fjölgun íbúða á árinu er aukning íbúðanota áætluð um 3%.

x

Þjóðarbúskapurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.