Fréttablaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 2
Veður
Norðaustan 8-13 í dag, en hægari í
kvöld. Dálítil rigning eða slydda N-
og A-lands, en bjart veður sunnan
heiða. Hiti 1 til 10 stig, mildast
syðst. SJÁ SÍÐU 20
Hlaupa úr sér hrollinn
Það var kalt í Laugardalnum í gær þegar bestu fótboltakappar Frakklands æfðu sig fyrir viðureign við landslið Íslands í undankeppni EM 2020 sem
fer fram á Laugardalsvelli í kvöld. Antoine Griezmann var kappklæddur en verður ef laust búinn að ná úr sér hrollinum þegar f lautað verður til
leiks klukkan 18.45 í kvöld. Frakkar eru á toppi riðilsins ásamt Tyrkjum fyrir þessa umferð, en Ísland er í þriðja sæti. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Gæði og glæsileiki
endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og glæs
ileiki endalaust
úrval af hágæ
ða flísum
Finndu okkur
á facebook
VIÐSKIPTI Íþróttafélagið Stjarnan í
Garðabæ óskar eftir því við bæjar-
yfirvöld að torgi við félagssvæðið
verði breytt í anda streetfood-mat-
armenningarinnar.
„Með þessu gæfist tækifæri á
að auðga enn fremur bæjarlífið
og vettvangur kominn þar sem
Stjarnan gæti staðið fyrir ýmsum
tækifærisviðburðum sem allir
bæjar búar gætu notið. Enn fremur
væri hægt að vera með sölu á
varningi félagsins og hollum mat,
til dæmis skyrbar alla daga, sem
myndi nýtast iðkendum og öðrum
gestum Ásgarðssvæðisins vel,“ segir
í erindi frá Ásu Ingu Þorsteinsdótt-
ur, framkvæmdastjóra Stjörnunnar.
Að því er fram kemur í bréfi Ásu
hefur verið vel tekið í hugmyndina
af formanni íþrótta- og tómstunda-
ráðs bæjarins, íþróttafulltrúa og
forstöðumanni fræðslumála.
„Áætlaður kostnaður við fram-
kvæmdina er á bilinu 15 til 20
milljónir, en Stjarnan hefur einn-
ig áhuga á að fá styrktaraðila í lið
mér sér við framkvæmdina,“ segir
í bréfinu sem bæjarráð Garðabæjar
vísaði til kynningar í íþrótta- og
tómstundaráði og til nánari skoð-
unar við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar bæjarins fyrir næsta ár.
– gar
Stjarnan vill
götubitatorg
í Garðabæ
Vilji er til að breyta torginu fyrir
framan Samsung-völlinn og fé-
lagsheimili Stjörnunnar í götubita-
markað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SKIPULAGSMÁL Neyðarlínan ohf.
fékk í október í fyrra heimild frá
Skútustaðahreppi og forsætisráðu-
neytinu til byggja „litla heimaraf-
stöð“ í Drekagili við Öskju.
Eftir ábendingu fóru fulltrúar
hreppsins á staðinn og kom þá í
ljós að stíf la sem átti að vera 1,5
metrar er tæpir ellefu metrar. Frá
lóninu sem hefur myndast er síðan
300 metra fallpípa að fyrirhuguðu
stöðvarhúsi um 600 metra frá skál-
um á svæðinu. Rafstöðin á að þjóna
fjarskiptasendi á Vaðöldu og ferða-
þjónustuskálum.
„Í vettvangsskoðun kom í ljós að
búið er að stífla lækinn með 10,8 m
breiðri stíflu sem er úr forsteyptum
einingum með timburþili að hluta
sem hægt er að fjarlægja,“ segir
Þorsteinn Gunnarsson, sveitar-
stjóri í Skútustaðahreppi, í bréfi
til stjórnar Neyðarlínunnar. „Ljóst
þykir að þær framkvæmdir eru
hvorki í samræmi við gildandi
skipulag né þá framkvæmd sem sótt
var um þann 24. október 2018,“ segir
áfram í bréfinu þar sem kynnt er sú
ákvörðun sveitarstjórnarinnar að
stöðva framkvæmdina.
Þorsteinn gerir að sérstöku
umtalsefni símtal skipulagsfull-
trúa Skútustaðahrepps við Þórhall
Ólafsson, framkvæmdastjóra Neyð-
arlínunnar, eftir vettvangsrann-
sóknina. „Voru formaður skipulags-
nefndar og ráðsmaður áhaldahúss
vitni að því símtali. Var framkoma
framkvæmdastjórans honum lítt til
sóma og reyndar með þeim hætti að
hún sæmir ekki manni í hans stöðu.
Er kvörtun vegna framkomu hans
hér með komið á framfæri,“ segir í
bréfinu.
Spurð hvers vegna ekki hafi
verið haft samráð við Skútustaða-
hrepps um breytingarnar segir
stjórn Neyðarlínunnar þær hafa
verið „smávægilegar og innan þess
ramma sem gera má ráð fyrir“ eins
og segir í svarinu. Samráð hefði þó
mátt vera meira, segir stjórnin,
og biðst velvirðingar á því.
„ Stjór n Neyðarlínunnar
harmar þá hnökra sem urðu á
framkvæmd þessa þjóðþrifa-
verks og þá sérstaklega þá
sem sneru að samskipt-
um við sveitarfélagið,“
segir stjórnin og sting-
ur upp á því til þess að
ná sátt við hreppinn
fari fulltrúar beggja
aðila auk fulltrúa
Vat najök u l sþjóð -
garðs á svæðið næsta
sumar að skoða aðstæður.
„ Í f r a m h a ld i le g g i
sveitarfélagið fram mögu-
legar kröfur um breytingar telji
það ástæðu til,“ segir stjórnin sem
kveður Neyðarlínuna munu annast
þær úrbætur að viðstöddum full-
trúum allra aðila.
Sveitarstjórn Skútustaða-
hrepps segir þessi viðbrögð
Neyðarlínunnar hins vegar
ófullnægjandi og afturkallaði
í fyrradag framkvæmdaleyfi
fyrir rafstöðina. „Jafn-
framt verður óskað
eftir afstöðu Vatna-
jökulsþjóðgarðs og
forsætisráðuneyt-
is vegna þeirrar
stöðu sem upp er
komin.“
gar@frettabladid.is
Afturkalla leyfi vegna
stíflu Neyðarlínunnar
Skútustaðahreppur segir stíflu Neyðarlínunnar í Drekagili sjöfalt lengri en
leyfi var fyrir og afturkallar leyfið. Framkoma framkvæmdastjóra Neyðarlín-
unnar sögð ósæmandi. Stjórn Neyðarlínunnar harmar hnökra á samskiptum.
Stífla Neyðarlínunnar í Drekagili við Öskju er stærri en leyfið sagði til um.
Þorsteinn Gunn-
arsson, sveitarstjóri í
Skútustaðahreppi.
FANGEL SISMÁL Thomas Møller
Olsen, sem var dæmdur í nítján ára
fangelsi fyrir morðið á Birnu Brjáns-
dóttur og fyrir fíkniefnasmygl, mun
afplána dóm sinn í Danmörku.
Hann var f luttur til Danmerkur á
fimmtudag fyrir viku eftir að dönsk
yfirvöld féllust á að taka við honum.
Björgvin Jónsson, lögmaður Tho-
masar Møller, staðfestir þetta í sam-
tali við Fréttablaðið.
Dómþolar eru oft f luttir til
heimalanda sinna í afplánun þegar
um er að ræða Norðurlandabúa
vegna samninga milli þjóðanna.
Ríkin viðurkenna dóma hvert
annars og er samstarfinu ætlað að
tryggja að refsidómar fylgi dóm-
þola, f lytji hann á milli Norður-
landanna. – ilk
Thomas fluttur
til Danmerkur
Thomas
Møller Olsen.
1 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
0
-3
0
E
0
2
4
0
0
-2
F
A
4
2
4
0
0
-2
E
6
8
2
4
0
0
-2
D
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K