Fréttablaðið - 11.10.2019, Blaðsíða 28
Árni Esra Einarsson er eigandi Margt smátt sem gefur út gjafakort sem hafa hitt í mark. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Við erum að selja fyrir-tækjum gjafakort þar sem starfsmenn þeirra velja sér
draumagjöfina sem þá langar í eða
jafnvel bráðvantar í búið,“ segir
Árni Esra Einarsson, eigandi Margt
smátt.
Alls er úr 700 gæðavörum að velja
og hægt að velja fjögur misverðmæt
gjafa- og jólakort.
„Á bak við hvert kort sem gefið er
má velja úr hundrað mismunandi
gjöfum í nokkrum vöruflokkum
til að setja í jólapakkana sem
sendir eru heim að dyrum starfs-
mannsins,“ upplýsir Árni Esra sem
hjá Margt smátt jafnvel sérhannar
gjafakort og jólakort með vöru-
merki og jólakveðju frá fyrirtækj-
um sem velja að gleðja starfsfólk
sitt með jólapakka frá Margt smátt.
„Við erum með sérhannað vef-
viðmót með vörumerki og kveðju
frá fyrirtækinu og varan sem sést á
síðunni er alltaf til á lager,“ útskýrir
Árni Esra, en kostnaður við gjafa-
kortið kemur ekki fram á jólakort-
inu til þess sem þiggur gjöfina.
„Gjafakort Margt smátt er ávísun
á verðmæti – ekki peninga, og
þiggjandinn getur líka valið um
að upphæðin renni til góðgerðar-
mála,“ segir Árni Esra.
Jólagjöf sem verður notuð
Hjá Margt smátt fást vandaðar og
fallegar gjafir fyrir breiðan aldurs-
hóp.
„Allt eru það þekkt vörumerki
og gaman að segja frá því að heimt-
ur á gjöfum sem ánægt starfsfólk
sækir með gjafakortinu sínu er að
meðaltali 94 prósent. Þetta er því
frábær kostur fyrir fyrirtæki sem
uppskera himinlifandi starfsmenn
á jólunum og ákaflega einfalt og
þægilegt í alla staði,“ segir Árni
Esra.
Hann segir ótvíræðan kost fyrir
fyrirtæki að þurfa ekki að pakka
inn jólagjöfunum.
„Gjafakortið einfaldar mjög alla
dreifingu, sérstaklega hjá fyrir-
tækjum sem eru dreifð um landið
eða með útibú í útlöndum. Öll
vinna við undirbúning og afhend-
ingu verður létt og skemmtileg,“
segir Árni Esra.
„Það að starfsmaðurinn velji
sjálfur sína gjöf eykur til muna
líkurnar á að gjöfin verði notuð.
Því má segja að það sé sterkur
umhverfisvænn punktur að
gefa gjafakort Margt smátt þar
sem gjöfin endar ekki ónotuð í
geymslunni,“ segir Árni Esra innan
um ómótstæðilegt vöruúrval sem
Margt smátt býður upp á.
„Við teljum okkur vera með
lausn sem mannauðsdeildir fyrir-
tækja hreinlega elska og einfaldar
alla vinnu til muna sem fylgir
því að velja og dreifa jólagjöfum
til starfsmanna. Þetta eru vörur
sem fást ekki í hefðbundnum
verslunum og hægt er að velja af
handahófi sem gerir þetta pró-
gramm enn skemmtilegra fyrir
starfsmanninn. Það er heildsölu-
verð á vörunum þannig að ef varan
kostar 5.000 krónur hjá okkur má
reikna með að sambærileg vara
kosti að minnsta kosti 10 þúsund
krónur í verslunum.“
Nánari upplýsingar má finna á
margtsmatt.is.
Glæsilegar pönnur og skurðarbretti, mortél og sleifar í eldhúsið.
Viðloðunarfrí stálpanna.
Litrík, eldföst mót í matseldina. Vandaðar töskur fyrir öll lífsins tilefni eru góð og eiguleg jólagjöf.
Allir
velja þá
eitthvað
fallegt
Við teljum okkur
vera með lausn
sem mannauðsdeildir
fyrirtækja hreinlega
elska og einfaldar alla
vinnu til muna sem
fylgir því að velja og
dreifa jólagjöfum til
starfsmanna.
Gjafakort Margt
smátt hefur gjör-
samlega slegið
í gegn. Það er
skemmtileg nýj-
ung á jólagjafa-
markaðnum og
hefur hitt fyrir-
tæki og starfsfólk
þess í hjartastað.
10 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR
n Allir finna eitthvað við sitt hæfi og velja sér sitt uppáhald í einfaldri vefverslun
n Yfir 700 gæðavörur í boði
n Á bak við hvert kort eru um 100 mismunandi gjafir í nokkrum vöruflokkum.
n Mjög vandaðar og fallegar gjafir, m.a. þekkt vörumerki fyrir breiðan aldurshóp
n Gjafakort Margt smátt er ávísun á meiri verðmæti en kostnaðinn á bak við þau
n Mjög einfalt og þægilegt í alla staði, gjöfin send heim að dyrum starfsmanns
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
0
-4
9
9
0
2
4
0
0
-4
8
5
4
2
4
0
0
-4
7
1
8
2
4
0
0
-4
5
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K