Fréttablaðið - 11.10.2019, Page 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
339kr.
SÚRDEIGS PIZZA DEIG
HÁGÆÐA DEIG
FERSKT OG FLOTT
220g
ALLT Í FÖSTUDAGS PIZZUNA!!!
299kr.
PIZZADEIG
FÍNT & HEILHVEITI
400g
399kr.
PIZZADEIG
GLÚTENFRÍTT
260g
159kr.
REMA 1000 PIZZASÓSA
280g
219kr.
REMA 1000 PIZZASÓSA
LÍFRÆN
280g
ÞÚ FINNUR SUPER1 Á TVEIMUR STÖÐUM
HALLVEIGARSTÍG 1 SMIÐJUVEGI 2
OPIÐ 10:00 - 22:00 ALLA DAGA
MJÖG GOTT - MJÖG GOTT - MJÖG GOTT VERÐ
Popphljómsveitin Moses Hightower heldur tón-leika í kvöld í Háskóla-bíói þar sem öllu verður tjaldað til. Meðlimir sveitarinnar eru með
margt á prjónunum og því gefst
ekki oft tækifæri til að halda svona
stóra tónleikana. Fréttablaðið
ræddi við Steingrím Karl Teague og
Magnús Trygvason Eliassen,
tvo af þremur
m e ð l i m u m
sveitarinnar.
Aðeins
meira spari
„Maggi er í öllum
hljómsveitum á
Íslandi eiginlega.
Þangað til annað
kemur í ljós þá
geri ég bara ráð
fyrir því,“ segir Steingrímur, annar
söngvari sveitarinnar. „Svo hef ég
sjálfur verið á tónleikaferðalagi
með Of Monsters and Men. Svo er
Andri, hinn söngvari sveitarinnar,
að gera milljón hluti, spila með
Friðriki Dór og Jóni og alveg fullt af
öðrum,“ bætir hann svo við.
Það getur því verið f lókið að
púsla sveitinni saman, en Stein-
grímur segir þá reyna að gera það
almennilega.
„Þá gerum við eitthvað svolítið
úr því. Við héldum útgáfutónleika
árið 2017 þegar síðasta platan
okkar, Fjallaloft, kom út. Þeir tón-
leikar fóru líka fram í Háskólabíói
og það var mjög gaman. Þá vorum
við einmitt með alls konar lúðra
og f lott ljós. Við höfum spilað svo
oft á litlum sveittum giggum, sem
er mjög skemmtilegt, en það er líka
gaman að gera þetta svona,“ segir
Steingrímur.
Hann mælir því tvímælalaust
með að fólk sem hefur áður séð þá
á smærri tónleikum geri sér ferð á
þessa, því þetta sé öðruvísi upp-
lifun, aðeins meira spari.
Taka eldri slagara
Hljómsveitin gaf út lagið Lyftutón-
list síðasta föstudag, og verður það
spilað á tónleikunum. Þeir segja að
planið sé líka að taka lög sem þeir
hafi ekki mikið spilað á tónleikum
síðustu ár.
„Nú þegar við erum komnir með
þrjár plötur þá þarf maður að fara
að velja úr, við getum ekki bara
spilað í fjóra tíma,“ segir
Steingrímur.
Hann segir að þeir hafi
lagt nokkur lög sjálfir á
hilluna tímabundið.
„Nú erum við tilbúnari
á kíkja á þau aftur. Líka
svona fyrst þetta er smá
spari tilefni,“ segir hann.
„Við erum reyndar að
fara að spila alveg fullt
af lögum sem við höfum
ekki spilað lengi,“ bætir Magnús
við.
„Við ættum kannski að
fara að æfa okkur eitthvað,“
stingur Steingrímur upp á.
„Nei, nei,“ svarar Magn-
ús.
Seinka vegna
landsleiksins
„Við erum búnir að vera
að æfa eitthvað,“ segir
Magnús inntur eftir því
hvort þeir séu þannig að
þeir mæti bara á svæðið
og kunni þetta allt eða það
þurfi strangar æfingar til að
rifja upp eldri lögin.
„Í gær komu lúðrar á æfingu,
við munum svo æfa meira með
þeim. Svo er slagverksleikari og
auka-hljóðgervlasérfræðingur.
Það verða ellefu manns á svið-
inu,“ segir Steingrímur.
Þeir vilja svo sérstaklega
koma því til skila að tónleik-
arnir byrji aðeins seinna en
auglýst hefur verið í ljósi þess
að landsleik Íslands og Frakk-
lands lýkur um það leyti.
„Þeir hefjast svona korteri seinna,
í mesta lagi sautján mínútum,“ segir
Steingrímur.
„Já, þeir hefjast 21:17,34,“ bætir
Magnús við.
Ný plata á leiðinni
„Við erum að vinna í nýrri plötu
núna,“ segir Magnús.
Steingrímur segir að um sé að
ræða styttri plötu með fimm til sjö
lögum.
„Þannig að þetta er einhvers
konar plötildi, stuttskífa,“ bætir
hann við.
„Við erum alveg langt komir með
hana,“ segir Magnús.
En hefur stíllinn eitthvað breyst í
gegnum árin?
„Mér f innst við þora
meira,“ svarar Magnús.
„Já og treystum betur
hver öðrum. Það eru fjór-
tán ár síðan hljómsveitin
var stofnuð. Þannig
að við erum 107 ára í
hljómsveitarárum,“
segir Steingrímur.
M iða á tón-
leikana er hægt
að nálgast á tix.is.
steingerdur@
frettabladid.is
Eru 107 ára í
hljómsveitarárum
Í kvöld er hljómsveitin Moses Hightower með tónleika í Háskóla-
bíói þar sem öllu verður tjaldað til. Tónleikarnir hefjast aðeins
seinna en til stóð vegna landsleiks Íslands og Frakklands.
Steingrímur, hljómborðsleikari sveitarinnar og annar söngvari, ásamt trommaranum Magnúsi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Andri Ólafs-son er annar tveggja söngvara sveitarinnar og spilar einnig á bassa. FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
1 1 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
0
0
-3
F
B
0
2
4
0
0
-3
E
7
4
2
4
0
0
-3
D
3
8
2
4
0
0
-3
B
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K