Fréttablaðið - 16.10.2019, Blaðsíða 24
Því meiri fræðslu
sem þú hefur
fengið, því betur ertu í
stakk búin(n) til að
bregðast við.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Ágústa Kristín Andersen, Eyrún Baldvinsdóttir og Ágústa Guðný Atladóttir segja mikilvægt að styðja skyndi-
hjálparfræðslu. Hjá Sjóvá færðu vandaða ráðgjöf varðandi líf- og sjúkdómatryggingar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
4 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U RÞÚ GETUR HJÁLPAÐ
Sjóvá er aðal styrktaraðili átaksins Börnin bjarga, sem samtökin Hjartaheill standa
fyrir. Átakið snýst um að innleiða
markvissa endurlífgunarkennslu
meðal grunnskólabarna, með
áherslu á hjartahnoð, og kenna
öllum börnum í 6. bekk á Íslandi
skyndihjálp. Þjóðir sem hafa tekið
upp slíka kennslu náðu á skömm-
um tíma að þrefalda þátttöku
vitna í endurlífgun og tvöfalda
lifun eftir hjartastopp utan spítala,
svo ávinningurinn er mikill.
„Ástæðan fyrir því að við hjá
Sjóvá viljum styðja við öflugt
fræðslu- og forvarnastarf á þessu
sviði eru sú að við vitum hversu
miklu það getur skilað. Því teljum
við það hluta af samfélagslegri
ábyrgð okkar að styðja dyggilega
við átak sem miðlar fræðslu um
skyndihjálp með svo öflugum
hætti,“ segir Eyrún Baldvinsdóttir,
forstöðumaður líftrygginga hjá
Sjóvá. „Það að fólk geti brugðist
hratt og rétt við aðstæðum þegar
manneskja fer í hjartastopp getur
bókstaflega skilið milli lífs og
dauða og því viljum við styðja við
öfluga skyndihjálparfræðslu, líkt
og þá sem Hjartaheill standa nú
fyrir.“
Áhrif kennslunnar
margfaldast
„Ég hef sjálf kennt börnum á
þessum aldri skyndihjálp og séð
hversu mikið þau geta lært og
hversu áhugasöm þau eru,“ segir
Eyrún. „Ég hef líka séð hversu
mikil margföldunaráhrif það
hefur út í samfélagið að kenna
börnum skyndihjálp; þau miðla
fræðslunni áfram til foreldra sinna
og systkina og fjölskyldan getur
þannig kynnt sér saman hvernig
hægt er að bregðast við ef upp
koma aðstæður þar sem þarf að
beita skyndihjálp.
Það er því mjög vel til fundið
að beina fræðslunni að öllum
börnum í 6. bekk, það kemur til
með að hafa mikil og góð áhrif út í
samfélagið,“ segir Eyrún.
Fræðsla veitir öryggi
„Það vilja auðvitað allir geta
brugðist hratt og rétt við þegar
manneskja fer í hjartastopp og
með því að miðla þessari fræðslu
getum við stuðlað að því að sem
allra flestir öðlist öryggi til að
bregðast við í slíkum aðstæðum,“
segir Eyrún. „Skyndihjálp er í eðli
sínu ekki f lókin en eins og eðlilegt
er verður fólki mjög brugðið þegar
það sér manneskju fara í hjarta-
stopp.
Því meiri fræðslu sem þú hefur
fengið, því betur ertu í stakk
búin(n) til að bregðast við,“ segir
Eyrún. „Það er líka mikilvægt að
minna sig á að þú getur ekki gert
neitt rangt, það sem öllu máli
skiptir er að hringja strax í 112 og
hefja síðan hnoð í samræmi við
leiðbeiningar Neyðarlínunnar og
það sem þú hefur lært.“
Algeng ástæða bótagreiðslu
„Okkar tölur endurspegla hversu
algengir hjartasjúkdómar eru,“
segir Eyrún. „Flestir sem fá greitt
úr sjúkdómatryggingum fá greitt
vegna krabbameins, en næst
algengast er að bætur séu greiddar
vegna hjartasjúkdóma.
Þó að það sé algengast að fólk
greinist með hjartasjúkdóma
þegar það er farið að fullorðnast þá
sjáum við líka alltaf einhver dæmi
um einstaklinga sem veikjast fyrr,
jafnvel rétt komnir yfir þrítugt,“
segir Eyrún. „Það sýnir okkur enn
og aftur hversu mikilvægt það er
fyrir ungt fólk sem og aðra að hafa
góðar líf- og sjúkdómatryggingar,
því þó að þú vonist til þess að
þurfa aldrei að nota þær, rétt eins
og skyndihjálpina, þá geta þær
skipt sköpum ef alvarleg veikindi
koma upp.“
Sjúkdómatrygging einfalt
mál sem fækkar áhyggjum
„Sjúkdómatryggingin virkar
þannig að ef þú greinist með einn
af þeim alvarlegu sjúkdómum sem
eru skilgreindir í tryggingunni
þá færðu greiddar bætur,“ segir
Eyrún. „Þessar bætur geta nýst til
að vega upp á móti tekjutapi eða
auknum kostnaði vegna veikinda.
Þær geta því fækkað áhyggjum
þess sem veikist og gefið við-
komandi færi á að einbeita sér að
batanum.
Í dag er einfalt mál að kaupa líf-
og sjúkdómatryggingar rafrænt
hjá okkur á sjova.is og þú getur séð
áætlað iðgjald með skjótum hætti.
Þessar tryggingar eru nefnilega
ódýrari en margir halda, sérstak-
lega fyrir yngri aldurshópa,“ segir
Eyrún. „Ef fólk er óvisst um hvaða
tryggingar henta þörfum þess
erum við líka alltaf boðin og búin
að veita ráðgjöf, enda mikilvægt
að líf- og sjúkdómatryggingar taki
mið af aðstæðum hvers og eins.“
Þekking sem bjargar mannslífum
Sjóvá styrkir átakið Börnin bjarga, sem snýst um að kenna grunnskólabörnum skyndihjálp. Al-
menn þekking á skyndihjálp getur bjargað mannslífum og börn miðla fræðslunni áfram af krafti.
Það tekur bara 15 mínútur að
sækja um líf- og sjúkdóma-
tryggingar á sjova.is. Þú skráir
þig einfaldlega inn með raf-
rænum skilríkjum og undirritar
umsóknina með þeim í lokin.
Ef þú vilt bíða með umsóknina
er hægt að hætta hvar sem er í
ferlinu og koma aftur síðar. Það
er síðan alltaf hægt að spjalla
við ráðgjafa á netspjallinu ef
einhverjar spurningar vakna.
1
6
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:1
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
0
6
-C
F
A
C
2
4
0
6
-C
E
7
0
2
4
0
6
-C
D
3
4
2
4
0
6
-C
B
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K