Fréttablaðið - 16.10.2019, Side 10

Fréttablaðið - 16.10.2019, Side 10
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Neysla hefur aukist og dauðsföllum fjölgar. Fíkniefnin flæða til landsins og skammtur- inn fæst nú á svipuðu verði og bíómiði. Mikilvægi álfram- leiðslu fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélag er ótvírætt. Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunna@frettabladid.is Íhaldsmaður á almannafé Styrmir Gunnarsson eys lofi á Ragnar Arnalds í nýlegri minningargrein. Segist hann hafa heyrt að Ragnar væri „einn bezti fjármálaráðherra sem hér hefur setið“ og „íhaldsmaður á almannafé“. Það var ekki meira íhald í Ragnari en að þegar hann sat í stjórn Gunnars Thorodd- sen, voru tekin tvö rándýr bresk kúlúlán til að fjármagna ýmsar framkvæmdir. Voru þau kölluð barnalánið, enda var það barnanna að borga – árið 2016. Heildarupphæð lánanna tveggja var 30 milljónir punda. Vextirnir voru 14,5 prósent og þegar börnin borguðu loksins, var upphæðin 7,1 milljarður. Næmur á vandamál Ástandið furðulega á Reykja- lundi virðist vera að róast. Enn veit þó enginn nákvæm- lega hvað gerðist fyrir utan að stjórnendur til áratuga voru reknir fyrirvaralaust án ástæðu og starfsfólki leið illa í kjölfarið. Ástandið á þó að lagast með ráðningu nýs framkvæmda- stjóra lækninga. Sá heitir Ólafur Þór Ævarsson. Hann er mjög næmur á að skynja vandamál, en hann er geðlæknirinn sem mat Gunnar Braga Sveinsson sem heilabilaðan eftir margra klukkustunda óminni eftir fundinn fræga á Klaustri. kristinnhaukur@frettabladid.is arib@frettabladid.is Í ár fagnar álframleiðsla á Íslandi 50 ára afmæli, en hálf öld er liðin frá því að álverið í Straumsvík hóf starfsemi. Framleitt magn var ekkert í líkingu við það sem framleitt er á Íslandi í dag, en með árunum jókst framleiðsla áls í Straumsvík og víðar á landinu og er framleiðslan á Íslandi í dag tæp 900 þúsund tonn á ári. Mikilvægi álframleiðslu fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélag er ótvírætt. Áliðnaðurinn skapar Íslandi ríkar gjaldeyristekjur og mikið af hátekju- og sérfræði- störfum. Hvort tveggja er mælikvarði á gæði þeirra starfa sem tiltekinn iðnaður skapar. Á síðasta ári fluttu íslensku álverin út afurðir fyrir 220 milljarða króna. Stærsti markaður álveranna er Evrópa. Innflutningur inn á Evrópumarkað frá löndum utan markaðarins er tollskyldur upp á fjögur til sjö prósent, en sökum aðildar Íslands að EES-svæð- inu er Ísland fyrir innan tollamúrana. Álframleiðsla nýtur góðs af EES-aðild Í nýlegri skýrslu starfshóps um EES-samstarfið kemur fram að álframleiðsla á Íslandi njóti mjög góðs af aðild Íslands að EES. Í skýrslu starfshópsins kemur m.a. fram að „sameiginlegi EES-markaðurinn sé markaðssvæði íslenskra álvera. Þau eru þar innan tollamúra, en tollar á ál sem flutt er inn á evrópska efnahagssvæðið eru á bilinu 4-7%.“ Íslenskt efnahagslíf á mikið undir því að hér séu til staðar öflugar útflutningsgreinar og er stóriðjan ein þriggja undirstöðuatvinnugreina Íslendinga ásamt ferðaþjónustu og sjávarútvegi. Stóriðjan telur fyrir um 15% útflutningstekna Íslendinga og kaupir um 80% af allri framleiddri orku hér á landi. Ör tækniþróun undanfarin ár hefur gert það að verkum að stærð álvera skiptir meira máli upp á hag- kvæmni þeirra en talið var á árum áður. Þess vegna er það stóriðjunni mikilvægt að vera áfram innan tollamúra EES-svæðisins, og án EES-samningsins væri staða álframleiðslunnar, sem hefur byggt upp traustan grunn íslensks efnahagslífs í hálfa öld, önnur og verri en við þekkjum hana í dag. Tollfrelsi EES og álið Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðis- flokksins EKKERT BRUDL Bónus Plokkfiskur 1 kg kr./stk.1.198 Foreldað Aðeins að hita Nýtt í Bónus Stríðið gegn fíkniefnum er löngu tapað. Það vita allir. Refsistefnan hefur litlu skilað öðru en fordómum og hræðslu gagnvart fíkniefnaneytandanum og undirheimum þar sem glæpahópar ráða ríkjum. Neysla hefur aukist og dauðs- föllum fjölgar. Fíkniefnin f læða til landsins og skammturinn fæst nú á svipuðu verði og bíó- miði. Sá sem er ánetjaður vímuefnum er sjúklingur en ekki glæpamaður. Þetta ætti öllum að vera löngu orðið ljóst. Það er því óhætt að segja að refsigleðin virkar ekki og er því nýlegt frumvarp Halldóru Mogensen, þingf lokksformanns Pírata, eðlilegt og rökrétt skref. Frumvarpið felur í sér að ekki verði lengur ólöglegt að kaupa eða hafa á sér smærri fíkniefnaskammta, svokallaða neyslu- skammta, en aftur á móti verður áfram bannað að f lytja efni inn eða úr landi, selja þau eða fram- leiða. Markmiðið er að hætt verði að líta á þá sem lent hafa á glapstigum lífsins sem glæpamenn og óþokka og þeim veitt aðstoð fremur en refsing. Frumvarpið er skref í rétta átt, en hálf kák þó. Portúgalar voru fyrstir til að afglæpavæða fíkniefni þegar þeir samþykktu lög þess efnis árið 2001, eftir heróínfaraldur sem gengið hafði yfir landið. Efasemdir voru um ágæti aðgerðanna en í dag er fjöldi vímuefnaneytenda í Portúgal hlutfallslega mjög lítill miðað við aðrar Evrópu- þjóðir. Aðrar þjóðir hafa síðan fylgt í kjölfarið og mótað eigin fíkniefnastefnu með góðum árangri. Hægt er að nálgast fíknivandann með ýmsum hætti og raunsæ leið er svokölluð skaðaminnk- un. Hún veitir nálægð við fíkilinn og dregur úr hættu á HIV-smiti og öðrum heilsufarslegum ógnum sem fíknin leiðir oft af sér. Fleiri ákjósan- legar leiðir eru fyrir hendi en mikilvægt er að stjórnvöld móti sér stefnu í þessum málum. Fíkniefnin eru komin til að vera, því verður ekki breytt. Þar af leiðandi ætti hið opinbera að reyna að stýra farvegi þeirra og jafnvel að íhuga að hreinlega útvega fíklum efnin. Þá að minnsta kosti færast völdin úr höndum undirheimanna en það er þar sem of beldið og mannúðarleysið þrífst. Eiturlyfjadreifing hins opinbera gæti jafn- framt útrýmt svarta markaðnum með lyfseðils- skyld lyf. Róttækari aðgerða en hugmynda um neyslu- skammta er þörf. Æ f leiri festast í viðjum fíknarinnar og fíknin heldur áfram að fella hvert ungmennið á fætur öðru. Við þurfum að hætta að berja höfðinu við steininn og horfast í augu við vandann. Samhliða þarf að fjölga meðferðar- úrræðum og bæta í forvarnir og fræðslu. Allt kapp ætti að setja á aðferðir til skaðaminnkunar. Betur má ef duga skal og kallað er eftir stjórn- málamanni sem þorir að segja þessa hluti upp- hátt – og hrinda þeim í framkvæmd. Búið spil 1 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 1 6 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :1 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 0 6 -D 9 8 C 2 4 0 6 -D 8 5 0 2 4 0 6 -D 7 1 4 2 4 0 6 -D 5 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.