Fréttablaðið - 25.10.2019, Page 2
Það sem var þó ekki
síður mikilvægt var
að margir nemendur sem
áttu erfitt með einbeitingu
og fundu sig ekki í námi
blómstruðu í skákinni.
Helgi Árnason, fyrr-
verandi skólastjóri
Rimaskóla
Veður
Norðlæg átt víða 10-18 m/s en 18-
25 SA-lands en heldur hægari um
tíma í kringum hádegi. Úrkomulítið
á sunnanverðu landinu, annars
víða él, en samfelld snjókoma
norðaustan til fram eftir degi.
Frost víða 1 til 7 stig. SJÁ SÍÐU 16
Allt á floti
Vatn f læddi um ganga Kringlunnar og inn í verslanir eftir að brunavarnakerfi tók að ausa úr sér síðdegis í gær. Um fjögurra sentimetra
djúpt vatn þakti um hundrað fermetra svæði frá Stjörnutorgi og í áttina að útibúi Arion banka. Slökkviliðsmenn aðstoðuðu starfsmenn
Kringlunnar við að þurrka upp vatnið á meðan viðskiptavinir, starfsfólk verslana og aðrir fylgdust með. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ÍÞRÓTTIR Helgi Árnason, fyrrverandi
skólastjóri Rimaskóla, er kominn á
eftirlaun en er þó hvergi nærri sestur
í helgan stein. Hann er formaður
Skákdeildar Fjölnis sem hefur hafist
handa við að skák væða Grafarvog
og Stórhöfða eins og svæðið leggur
sig. Fyrsta skáksettið var afhent við
athöfn í heimsókn í Íslandsbanka-
útibúið á Höfðabakka í gær.
Helgi gegndi starfi skólastjóra
í Rimaskóla í 26 ár. Á þeim tíma
vakti skólinn verðskuldaða athygli
fyrir öf lugt skákstarf fyrir nem-
endur. Íslandsmeistara- og Norður-
landatitlar hrúguðust inn og hver
afreksmaðurinn á fætur öðrum
leit dagsins ljós innan skólans. Þar
á meðal yngsti stórmeistari Íslend-
inga, Hjörvar Steinn Grétarsson, og
nýjasti landsliðsmaðurinn Dagur
Ragnarsson, sem einmitt mun
þreyta frumraun sína á Evrópu-
meistaramóti landsliða í Batumi í
Georgíu í vikunni.
„Maður er náttúrulega afar hreyk-
inn af þessum öflugu skákmönnum
sem urðu til innan skólans,“ segir
Helgi. „Það sem var þó ekki síður
mikilvægt var að margir nemendur
sem áttu erfitt með einbeitingu og
fundu sig ekki í námi blómstruðu í
skákinni. Það hjálpaði þeim síðan í
náminu.
Það má segja að afreksfólkið hafi
verið ánægjuleg aukaafurð en stóra
málið var að skákin studdi vel við
skólastarfið og fjölmargir nemendur
höfðu ánægjuleg kynni af þessari
list þó að þeir hafi ekki lagt skákina
fyrir sig.“
Helgi var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu í sumar
fyrir starf sitt að skóla- og skák-
málum ungmenna. Hann segir að
sá heiður hafi virkað sem hvatning
frekar en skilaboð um að fara að
slaka á.
„Núna hef ég mun meiri tíma og
get því einbeitt mér að hverfinu
mínu frekar en bara einum skóla.
Skákdeild Fjölnis var stofnuð árið
2004 að frumkvæði okkar Hrafns
Jökulssonar og Guðlaugs Þórs Þórð-
arsonar ráðherra.
Í dag er unnið þar öf lugt starf
enda er félagið orðið eitt stærsta
taflfélag landsins. Við viljum efla
það enn frekar og höfum því blásið
til átaksins Skák væðum Grafarvog.
Markmið þess er að skákvæða fyrir-
tæki í Grafarvogi og Ártúnshöfða. Í
framhaldinu viljum við svo bjóða
upp á margs konar samstarf um
fjöltef li á vinnustað, vinnustaða-
skákmót og aðrar uppákomur,“ segir
Helgi og er bjartsýnn á árangur ská-
kvæðingarinnar í Grafarvogi.
bjornth@frettabladid.is
Fyrrverandi skólastjóri
skákvæðir Grafarvog
Fyrrverandi skólastjóri Rimaskóla hefur hrundið af stað átaki til að ská-
kvæða Grafarvoginn í Reykjavík. Hann segir skákina hafa hjálpað mörgum
nemendum sem áttu í erfiðleikum með einbeitingu og fundu sig ekki í námi.
LEIÐRÉTTING
Þau leiðu mistök urðu í blaðinu
í gær, fimmtudag, að stjörnugjöf
með myndinni Agnes Joy féll niður.
Myndin átti að fá 5 stjörnur.
Varmadælur &
loftkæling
Verð frá aðeins
kr. 145.000 m.vsk
Midea KMB-E09
Max 3,4 kW
2,65 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,85)
f. íbúð ca 40m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Virkar niður í -30°C
Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land
Wifi búnaður
fylgir með
öllum
varmadælum
meðan birgðir
endast
Umhverfisvænn
kælimiðill
S A M G Ö N G U R Va r aþi ng maðu r
Framsóknarf lokksins hefur lagt
fram þingsályktunartillögu um
að samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra láti hefja vinnu við frum-
hönnun og mat á hagkvæmni á
gerð jarðganga á Tröllaskaga.
Tröllaskagagöng yrðu á milli
Sk aga f ja rða r og Ey ja f ja rða r.
„Göngin koma þá út Hjaltadal og
yfir í Eyjafjörðinn, þau myndu
tengja saman Mið-Norðurland,“
segir Stefán Vagn Stefánsson, vara-
þingmaður Framsóknarf lokksins.
„Með þessum göngum væri fólk
að sleppa við að fara yfir Öxna-
dalsheiðina og sleppur við Vatns-
skarðið eins og það er í dag. Bílar
væru þá að aka um Þverárfjalls-
veg í staðinn og lækka þannig um
hundrað metra.“
Ha nn seg ir sveit a rst jór nir
beggja vegna heiðarinnar, á Sauð-
árkróki og Akureyri, vilja skoða
þennan möguleika. Göngin eru
ekki á samgönguáætlun, en Stefán
Vagn bindur vonir við að þau rati
inn á sérstaka gangaáætlun ráð-
herra. „Við gerum okkur fulla grein
fyrir því að þetta er ekki að fara að
gerast á næstu einu eða tveimur
árum, við viljum fyrst og fremst
koma þessu af stað.“ – ab
Vill göng undir
Tröllaskaga
DÓMSMÁL Fyrirtaka var í máli
Guðjóns Skarphéðinssonar gegn
íslenska ríkinu í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Fram kom að kröfur setts ríkis-
lögmanns eru óbreyttar en í
greinar gerð hans, sem verið hefur
til umfjöllunar bæði í fjölmiðlum
og á Alþingi, kemur fram að ríkið
krefst sýknu af bótakröfum Guð-
jóns á þeim grundvelli meðal ann-
ars að hann beri sjálfur ábyrgð á
því að grunur hafi beinst að honum
vegna hvarfs Geirfinns Einarssonar.
Skilja mátti lögmann ríkisins,
Andra Árnason, á þann veg að kröf-
ur ríkisins yrðu óbreyttar í málinu
nema Alþingi samþykki frumvarp
Katrínar Jakobsdóttur, forsætis-
ráðherra, um bætur til þeirra sem
sýknaðir voru í Hæstarétti í fyrra.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
aðalmeðferð málsins fer fram en
í fyrirtökunni í gær veitti dómari
aðilum frest til gagnaöflunar.
– aá
Krafa ríkisins
óbreytt um sinn
+PLÚS
Skák er sívinsæl íþrótt með iðkendur á öllum aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Stefán Vagn
Stefánsson.
2 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
5
-9
0
D
C
2
4
1
5
-8
F
A
0
2
4
1
5
-8
E
6
4
2
4
1
5
-8
D
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K