Fréttablaðið - 25.10.2019, Side 4
1 Varð fyrir líkams á rás á leið í jarðar för föður síns Á rásar
maðurinn taldi hann hafa svínað
fyrir sig í um ferðinni.
2 Þétt setið í réttarsalnum með Freyju Mál Barnaverndarstofu
gegn Freyju Haraldsdóttur fór fyrir
Hæstarétt í gær.
3 Bíl stjórinn sem flutti 39 lík er 25 ára gamall til vonandi
faðir Mo Robinson er nú í haldi
grunaður um fjöldamorð.
4 Aukin eftirsókn eftir fullorðins bleyjum: „Hægt að
koma í veg fyrir þetta“ Guðrún
Magnúsdóttir sjúkraþjálfari segir
að konur bíði stundum í 6 ár áður
en þær horfist í augu við vandann.
5 Ólympíu verð launa hafi á kvað að enda sitt eigið líf Glímdi
við ó læknandi hrörnunar sjúk dóm
og hafði skrifað undir skjöl um að
dánar að stoð væri leyfð.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
Benni.isReykjanesbærNjarðarbraut 9Sími: 420 3330
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
TRYGGÐU ÞÉR:
• Enga vexti
• Engin lántökugjöld
• Hraðari eignamyndun
• Lægri mánaðargreiðslur NOTAÐIR BÍLARNÚLLVEXTIR
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
Núll prósent vextir, allt að 80% ármögnun í allt að 24 mánuði af völdum notuðum bílum. Birt með fyrirvara um mynd og textabrengl.
ENN MEIRA ÚRVAL Á
NÝJU BÍLAPLANI
KRÓKHÁLSI 9
OG Á BENNI.IS
NISSAN JUKE CENTA PLUS
Skráður: 2016 / Bensín
Sjálfskiptur / 29.000 km.
VERÐ: 2.990.000 KR.
590362
SSANGYONG REXTON DLX
Skráður: 2017 / Dísel
Sjálfskiptur / 46.000 km.
VERÐ: 4.590.000 KR.
445898
OPEL CROSSLAND X
Skráður: 2018 / Bensín
Beinskiptur / 12.000 km.
VERÐ: 2.590.000 KR.
445934
RENAULT CAPTUR
Skráður: 2015 / Dísel
Beinskiptur / 55.000 km.
VERÐ: 1.890.000 KR.
445800
NISSAN NOTE
Skráður: 2016 / Dísel
Sjálfskiptur / 82.000 km.
VERÐ: 1.190.000 KR.
445933
VIÐSKIPTI „Allt tal um að verið sé að
veikja Samkeppniseftirlitið finnst
mér vera ósannfærandi. Ef frum-
varpið nær fram að ganga verða
samkeppnisreglur hér á landi mjög
sambærilegar þeim sem gilda í
nágrannaríkjum okkar og engin
ástæða er til að ætla annað en að
þær muni virka sem skyldi,“ segir
Heimir Örn Herbertsson, sérfræð-
ingur í samkeppnisrétti og lektor
við Háskólann í Reykjavík.
Samkvæmt frumvarpi Þórdísar
Kolbrúnar R. Gylfadóttur, atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðherra, um
breytingar á samkeppnislögunum
verður það á ábyrgð fyrirtækjanna
sjálfra að meta hvort þau megi
eiga í samstarfi. Núgildandi lög
kveða hins vegar á um að eftir-
litið veiti undanþágu vegna sam-
starfs. Heimir segir að núverandi
fyrirkomulag hafi sýnt sig vera
mjög óskilvirkt. Það hafi liðið fyrir
langan afgreiðslutíma.
„Í mörgum tilvikum geta fyrir-
tæki ekki beðið svo misserum eða
árum skiptir eftir ákvörðun frá SKE-
til að geta hafið samstarf á vissum
sviðum. Það eitt og sér eru sterk
rök fyrir því að gera breytingar.
Við höfum fyrirmyndir fyrir sjálfs-
mati fyrirtækja í löndum í kringum
okkur, til að mynda í ESB, þar sem
slíkt fyrirkomulag hefur verið við
lýði frá 2003 og reynst vel,“ segir
Heimir en ítrekar að breytingarnar
feli ekki í sér neinn afslátt á fram-
fylgni samkeppnisreglna.
„Fyrirtækjum verður ekki meira
heimilt eftir þessa breytingu en
áður að eiga með sér samráð eða
neitt slíkt og eftirlitið mun áfram
geta gripið inn í ef það telur fyrir-
tæki hafa farið fram úr sér við
mótun samstar fs. Mér sýnist
breytingarnar varðveita það mark-
mið samkeppnislaganna sem er
að nýting á framleiðsluþáttum
samfélagsins sé með hagkvæmum
hætti. Ef menn eru að segja að þetta
feli í sér fráhvarf frá þeirri hugsun
sem er undirliggjandi í lögunum, þá
verð ég að vera ósammála því.“
Frumvarpið felur einnig í sér
afnám heimildar Samkeppniseftir-
litsins til að skjóta úrskurðum áfrýj-
unarnefndar til dómstóla. Heimir
segir að það skjóti skökku við að
eftirlitið geti umfram önnur stjórn-
völd áfrýjað úrskurði æðra setts
stjórnvalds. Þá sé mjög óheppilegt
að óvissa um niðurstöðu mála geti
dregist svo árum skipti sökum þess
að Samkeppniseftirlitið sé ósátt við
úrskurð áfrýjunarnefndar.
„Ef Samkeppniseftirlitið telur
hættu á því að æðra stjórnsýsluvald
geri mistök sem eru þess eðlis að
þau verði að leiðrétta með atbeina
dómstóla þá á Samkeppniseftir-
litið frekar að beina sjónum sínum
að áfrýjunarnefndinni sjálfri. Til
dæmis því hvernig hún er skipuð,
og til hvaða úrræða og heimilda hún
geti gripið til þess að taka ákvarð-
anir í málum. Eða jafnvel tilvist
hennar yfirhöfuð,“ segir Heimir.
„Ég hef síður samúð með því
sjónarmiði að atvik geti komið
upp þar sem nefndin kemst að
niðurstöðu sem Samkeppniseftir-
litið er ósátt við og þá verði að vera
hægt að taka málið áfram fyrir
almenna dómstóla. Það gengur
gegn meginviðhorfum um sam-
spil æðri og lægri stjórnsýslustiga.“
thorsteinn@frettabladid.is
Tal um veikingu eftirlits með
samkeppni sé ósannfærandi
Sérfræðingur í samkeppnisrétti segir að allt tal um að nýtt frumvarp muni veikja Samkeppniseftirlitið
sé ósannfærandi. Fyrirhugaðar breytingar varðveiti markmið samkeppnislaga og feli ekki í sér neinn
slaka. Lögin verði sambærileg lögum sem eru í gildi í þeim ríkjum sem við berum okkur saman við.
Samkeppniseftirlitið hefur lagst gegn fyrirhuguðum breytingum á samkeppnislögum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fyrirtækjum
verður ekki meira
heimilt en áður eftir þessa
breytingu að eiga með sér
samráð eða
neitt slíkt.
Heimir Örn
Herbertsson,
sérfræðingur í
samkeppnisrétti
STJÓRNSÝSLA Bankaráð Seðlabanka
Íslands hefur óskað eftir skýringum
bankans á samningi sem Már Guð-
mundsson, þáverandi seðlabanka-
stjóri, gerði fyrir hönd bankans við
Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, þáver-
andi framkvæmdastjóra gjaldeyris-
eftirlits bankans.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá
fyrr í vikunni greiddi bankinn á
árunum 2016 og 2017 Ingibjörgu
rúmar 18 milljónir króna í náms-
Efast um að seðlabankastjóri hafi haft lagaheimild
styrki og aðrar greiðslur á meðan
hún var í námi við Harvard-háskóla.
Sigurður Kári Kristjánsson, lög-
maður og bankaráðsmaður, sá
samninginn fyrst á þriðjudaginn
eftir að hann var afhentur Frétta-
blaðinu. „Ég get bara talað fyrir
sjálfan mig, en eins og málið horfir
við mér þá tel ég að þessi samningur
sé mjög óeðlilegur. Hann er úr öllu
hófi samkvæmt öllum hefðbundn-
um mælikvörðum,“ segir Sigurður
Kári aðspurður um samninginn.
Már sagði í samtali við Vísi fyrr í
vikunni að hann teldi samninginn
eðlilegan og nokkrir slíkir samn-
ingar hefðu verið gerðir í tíð hans
sem seðlabankastjóri.
Sigurður Kári efast um að laga-
heimild hafi verið til staðar. „Ég
hef miklar efasemdir um að seðla-
bankastjóri hafi á þessum tíma
haft heimild samkvæmt lögum til
að gera þennan samning.“ – ab
Eins og málið horfir
við mér þá tel ég að
þessi samningur sé mjög
óeðlilegur.
Sigurður Kári
Kristjánsson, lög
maður og fulltrúi
í bankaráði Seðla
bankans
VIÐSKIPTI Lands bank inn hagnaðist
um 3,2 millj arða á þriðja fjórðungi
árs ins, en á sama tíma í fyrra var
hagnaður bank ans 3,8 millj arðar.
Á fyrstu níu mánuðum árs ins
hagnaðist bank inn um 14,3 millj-
arða á móti 15,4 millj örðum á sama
tíma í fyrra.
„Uppgjör Landsbankans fyrir
fyrstu níu mánuði ársins endur-
speglar stöðugan og góðan rekstur.
Kostnaður heldur áfram að lækka
en tekjur hafa á hinn bóginn aukist.
Kostnaðarhlutfall á tímabilinu var
um 41,4% sem er lægra en á sama
tíma í fyrra,“ segir Lilja Björk Einars-
dóttir, bankastjóri Landsbankans.
„Landsbankinn hefur lækkað
vexti undanfarið og á árinu hafa
óverðtryggðir breytilegir íbúða-
lánavextir lækkað um 0,8 prósentu-
stig, en óverðtryggð íbúðalán eru
algengasta fjármögnunarleið ein-
staklinga.“ – ab
Landsbankinn
hagnaðist um
3,2 milljarða
2 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
1
5
-A
4
9
C
2
4
1
5
-A
3
6
0
2
4
1
5
-A
2
2
4
2
4
1
5
-A
0
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K