Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.10.2019, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 25.10.2019, Qupperneq 8
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Jón Þórisson jon@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Sumir álitsgjafar hafa lagt sig fram um að misskilja hvað felst í tilteknum breytingum í þeim tilgangi, að því er virðist, að afvegaleiða umræðuna. Heimsmark- mið Sam- einuðu þjóðanna eru í stuttu máli ótrúlega metnaðarfull og framsækin fram- kvæmda- áætlun í þágu jarðarinnar okkar og alls mannkyns. Ármúla 24 - s. 585 2800 LJÓS Í ÚRVALI Háskóli Ísland hóf nýlega fundaröð sem ber heitið Háskólinn og heimsmark-miðin. Eitt heimsmarkmið verður tekið fyrir á hverjum fundi þar sem framúrskarandi fræðimönnum skólans verður teflt fram til að kryfja og ræða heimsmarkmiðin frá sem flestum hliðum. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru í stuttu máli ótrúlega metnaðarfull og framsækin framkvæmdaáætlun í þágu jarðarinnar okkar og alls mannkyns. Með henni er leitast við að útrýma fátækt og stuðla að friði, frelsi og sjálf- bærni. Við höfum þegar hafið kortlagningu á rann- sóknarstarfi við skólann sem tengist heims- markmiðunum eins og sjá má á hi.is/heims- markmidin, en þar verður hægt að finna efni tengt fundarröðinni á næstunni. Meðal annars yfirlit yfir rannsóknir okkar á áhrifum lofts- lagsbreytinga, lífríki hafsins, fjölmenningu, menntamálum, jafnrétti, heilsu, velferð, réttlæti, jöfnuði, siðfræði, sjálf bærni, nýsköpun, skipulagi innviða, neyslu, orku, næringu, atvinnulífi og hagvexti, svo fátt eitt sé talið. Til skoðunar er einnig að Heimsmarkmið Sam- einuðu þjóðanna verði leiðarljós í næstu stefnu- mótun Háskóla Íslands fyrir árin 2021-2026 þannig að markmiðin og hugmyndafræði þeirra um efnahagslega, félagslega og umhverfislega sjálf bæra þróun verði viðfangsefni meginþátta í starfi háskólans. Ástæða þess að ég tel þetta mikilvægt er sú að forsenda þess að Ísland geti lagt sitt lóð á vogarskálarnar við að ná heimsmarkmiðum um sjálf bæra þróun er öflug þátttaka háskólasamfé- lagsins. Háskóli Íslands vill að þekkingarsköpun og rannsóknir við skólann hafi víðtæk áhrif og séu nýttar til að takast á við þær f lóknu áskoranir sem Ísland og heimurinn standa nú frammi fyrir. Háskólinn og heimsmarkmiðin Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands Skoðanabróðir með gátlista Hin dýrlega Vigdís Hauksdóttir fann samanbrotinn gátlista fyrir leikskóla um kynjajafn- rétti á gólfinu sem sannar að innræta á börnum frá unga aldri femínisma, góðmennsku og aðra vinstrimennsku. Á að athuga hvort leiksvæði séu kynhlutlaus og hvort öskudagsbúningar séu nokkuð prinsessukjólar eða ofurhetjubúningar. Líkt og með svo margt annað segir Vigdís þetta galið. Það sem er forvitni- legast er að sá sem hafði fyllt út gátlistann er greinilega skoðana- bróðir Vigdísar, en það var bara búið að merkja við að börnum sé heilsað eins óháð kyni. Því miður Íslenska þjóðin skiptist í tvo hópa þegar kom að útspili ríkisbanka um að auglýsa ekki hjá fjölmiðlum sem eru með áberandi kynjahalla. Sumir frussuðu af bræði og líktu þessu við persneskrar klerkastjórnir. Aðrir bentu á að það er enn talsverður kynjahalli á við- mælendum og sjálfsagt að gera eitthvað í því. Vandinn er hins vegar sá að þrýstingur af þessu tagi virkar ekki á fjölmiðla. Það er eldveggur milli ritstjórna og auglýsingadeilda. Eldveggur sem er einmitt til staðar til að koma í veg fyrir að peningar hafi áhrif á fréttir. Það þarf því miður að finna einhverja aðra leið en í gegnum auglýsingar, eins göfugt og markmiðið er. arib@frettabladid.is Viðbrögðin við frumvarpi um tímabærar breytingar á samkeppnislögunum hafa verið fyrirsjáanleg. Á Íslandi er það orðin rík til-hneiging sumra að bregðast sjálfkrafa hart gegn öllum tillögum sem miða að því að bæta samkeppnishæfni atvinnulífsins – skiptir þá engu þótt aðeins sé verið að færa regluverkið nær því sem þekkist í öðrum Evrópuríkjum – og skeyta lítt um að of íþyngjandi reglubyrði getur valdið þjóðfélaginu í heild miklum kostnaði. Eftir að atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra kynnti frumvarp sitt í vikunni, sem er liður í stuðningi stjórnvalda við undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði á árinu, höfum við orðið vitni að þessu. Um hvað snýst frumvarpið? Stærstu breytingarnar, sem hafa jafnframt verið gagnrýndar hvað harðast, eru þær að heimild Samkeppniseftirlitsins til að skjóta úrskurðum áfrýjunarnefndar samkeppnismála til dóm- stóla er afnumin og þá verður það á ábyrgð fyrirtækjanna sjálfra að meta hvort lögbundin skilyrði eru fyrir sam- starfi í stað þess að þurfa að bíða, stundum svo misserum skiptir, eftir undanþágu frá stofnuninni. Markmiðið er að auka skilvirkni og hagræði fyrir atvinnulífið en um leið að hraða og bæta meðferð samkeppnismála sem er til þess fallið að minnka álagið á Samkeppniseftirlitið sem stofnunin hefur sjálf kvartað mjög yfir. Þá er felld út heimild eftirlitsins til að grípa til aðgerða, eins og að brjóta upp fyrirtæki, án þess að þau hafi gerst brotleg við samkeppnislög og veltumörk vegna tilkynningarskyldra samruna, sem hafa haldist óbreytt frá 2008, eru hækkuð nokkuð frá því sem nú er. Það er mjög til bóta en 40 pró- sent af tíma stofnunarinnar í fyrra var varið í samruna. Sumir álitsgjafar hafa lagt sig fram um að misskilja hvað felst í tilteknum breytingum í þeim tilgangi, að því er virðist, að afvegaleiða umræðuna. Það sætir undrum þegar því er haldið fram, af hálfu fyrrverandi stjórnar- formanns Samkeppniseftirlitsins, að verið sé í reynd að leyfa fyrirtækjum að brjóta lög og eiga með sér samráð og grafa þannig undan samkeppni. Svo er vitaskuld ekki. Breytingarnar lúta aðeins að því að fyrirtæki geti haft með sér afmarkað samstarf, meðal annars fjármála- eða fjarskiptafyrirtæki um sameiginlega innviði, án þess að þurfa að bíða eftir samþykki um undanþágu, sem stundum hefur tekið vel á annað ár, og þannig mögu- lega verða af þeim ávinningi sem af slíku samstarfi kann að leiða – fyrir fyrirtækin og eins neytendur. Í megin- atriðum miða breytingarnar að því að færa regluverkið nær því sem þekkist hjá okkar nágrannaþjóðum og því fráleitt þegar sagt er að verið sé með einhverjum hætti að „draga vígtennurnar“ úr Samkeppniseftirlitinu. Staðan sem birtist okkur með reglubundnum hætti er þessi. Það er skoðun ákveðins hóps í samfélaginu að Ísland skuli, byggt á hugmyndafræði um að meira eftirlit sé ávallt betra en minna, frekar en nokkurn tíma ein- hverjum haldbærum rökum, vera eftirbátur okkar helstu samkeppnisríkja á flestum þeim sviðum sem máli skipta þegar kemur að því að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja og þá um leið styrkja samkeppnisstöðu landsins. Allt tal um að nú standi til að veikja Samkeppniseftirlitið stenst enga skoðun. Frumvarp ráðherra, sem er í senn hófstillt og skynsamlegt, er skref í rétta átt og ætti að bæta sam- keppnishæfni atvinnulífsins og um leið tryggja hags- muni neytenda. Því ber að fagna – og styðja. Í rétta átt  2 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 2 5 -1 0 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 1 5 -B 3 6 C 2 4 1 5 -B 2 3 0 2 4 1 5 -B 0 F 4 2 4 1 5 -A F B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.