Fréttablaðið - 25.10.2019, Blaðsíða 44
EN MANNI ERU
TAKMARKANIR
SETTAR MEÐ FRAMLEIÐSLU, ÉG
GET EKKI LÁTIÐ GERA ENDA-
LAUST AF KOPARLITUÐUM
KÁPUM ÞVÍ MARKAÐURINN
FYRIR SLÍKAR ER EINFALDLEGA
EKKI NÓGU STÓR.ÞETTA ER ÞANNIG SÉÐ
LÍKA ÁKVEÐINN SIGUR
FYRIR MÉR. ÉG ER BÚIN AÐ SÝNA
FRAM Á AÐ GALLABUXUR
GANGA ALVEG UPP MEÐ GEYSIS-
FATNAÐI.
Kveikjan að línunni varð til á þeim tíma sem ég var í fæð-ingarorlofi, í þessu klassíska ástandi að labba með vagn um
Reykjavík. Ég var mikið að ramba
fram á þessar styttur sem eru úti
um allan bæ. Ég fór reyndar alveg
sérstaklega á Ásmundarsafn að
skoða stytturnar eftir hann. Þar
er styttan Fýkur yfir hæðir, sem er
mjög þekkt. Ég held að f lestir viti
hvaða stytta þetta er, þótt þeir viti
kannski ekki nákvæmlega hvað
hún heitir,“ segir Erna Einarsdóttir,
yfirhönnuður Geysis, um tilurð
nýjustu línu merkisins.
Innblástur úr formum og litum
„Þetta er móðir að faðma og vernda
barnið sitt. Út frá því kom hug-
myndin og innblásturinn að lín-
unni. Orðið móðurást var mér hug-
leikið á meðan ég hannaði línuna.“
Hún segir styttuna og Ásmundar-
safn hafi orsakað það að hún fór að
rölta frekar um að skoða verk hans.
Í formum og litum sem komu til
hennar úr verkum hans, fann hún
innblástur að línunni sem frum-
sýnd var fyrir viku við gífurlega
góðar undirtektir.
„Ég er kannski að horfa á ein-
hvern skúlptúr og tek sérstak-
lega eftir formi eða mynstri. Svo
tek ég það út og vinn út frá því.
Innblásturinn kemur svo líka
frá konunum í kringum mig.
Ég leita líka mikið eftir því að
hanna fatnað sem er þægilegur
á konur í dag, í bænum og í
lífinu. Þegar ég hanna hverja
línu er ég ekki endilega að
leitast við að byrja með ein-
hverja nýja stefnu. Ég sé þetta
frekar þannig fyrir mér að ég
sé alltaf að komast nær því
sem ég vil í huganum.“
Dreymdi um að gera
gallabuxur
Erna segir fatamerkið vinna
mikið með lagskiptingu og
hlýjan og vandaðan fatnað.
Hann sé hannaður með hina
íslensku konu í huga.
„Hingað til höfum við ekki endi-
lega getað lagaskipt heilklæðnað
því það var minna um neðri hluta.
Núna tókum við þá ákvörðun að
gera gallabuxur. Það er algjörlega
ævilangur draumur að rætast að
fá að gera það. Það er smá fyndið,
ég hef ekki sagt neinum þetta, en
ég sagði þetta einmitt við eigendur
fyrirtækisins þegar þeir nálguðust
mig varðandi að hanna fyrir Geysi.
Á þeim tíma var fyrirtækið mest í
prjónavörum úr íslenskri ull. Þeir
spurðu hvað ég myndi gera fyrir
Geysi og ég svaraði um hæl að ég
myndi ábyggilega gera gallabuxur,“
segir Erna hlæjandi.
Hún segir gallabuxnagerð ekki
hafa verið alveg í takt við það sem
Geysir var að gera á þeim tíma,
en Ernu fannst liggja beint við að
tvinna saman ullarvörur og f lík
eins klassíska og gallabuxur. Henni
Ævilangur draumur
að gera gallabuxur
Síðasta föstudag var nýjasta lína Geysis sýnd í Listasafni Reykja-
víkur, en hún hlaut mikið lof áhorfenda. Öllu var tjaldað til og sýn-
ingin hin glæsilegasta. Yfirhönnuður merkisins, Erna Einarsdóttir,
ræddi við Fréttablaðið um innblásturinn og drauminn sem rættist.
Erna Einarsdóttir hóf störf hjá Geysi árið 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Söngkonan Bríet tók þátt í að sýna línu fatamerkisins. MYND/ALDÍS PÁLSDÓTTIR
Línan samanstendur af flíkum fyrir bæði kynin. MYND/ALDÍS PÁLSDÓTTIR
Ernu hafði lengi dreymt um að gera
gallabuxur og fékk loksins tækifæri
til þess við gerð nýjustu línunnar.
MYND/EYDÍS MARÍA ÓLAFSDÓTTIR
þykir gífurlega vænt um að hafa
fengið tækifærið til að láta draum-
inn rætast. Það sé nokkurs konar
kaldhæðni örlaganna.
„Það var svo fjarstæðukennt þá.
Þetta er þannig séð líka ákveðinn
sigur fyrir mér. Ég er búin að sýna
fram á að gallabuxur ganga alveg
upp með Geysis-fatnaði. Galla-
buxur og prjónuð peysa er bara
minn persónulegi staðalbúnaður.
Auðvitað er maður oft að leita inn á
við þegar maður hannar, meðvitað
eða ómeðvitað.“
Hún segist alveg vera þar að hún
hanni út frá því hvað hana sjálfa
myndi langa í.
„Ég er kannski ekki að fara að
hanna einhverja svakalega fram-
sækna og öðruvísi kjóla, ég hef alltaf
verið mjög praktísk, bæði í hönnun
og í lífinu. Mig langar í falleg föt en
ég vil líka geta gengið í þeim. En ég
er mjög raunsæ einmitt og vil hafa
ríkt notagildi í því sem ég hanna,
ef ég væri ekki að hanna tísku væri
ég að hanna borðbúnað og góðan
stól. Ég tengi mikið við praktík og
er skipulögð. Á sama tíma vil ég
auðvitað ekki að það sem ég er að
gera sé einsleitt eða óáhugavert. En
manni eru takmarkanir settar með
framleiðslu, ég get ekki látið gera
endalaust af koparlituðum kápum
því markaðurinn fyrir slíkar er ein-
faldlega ekki nógu stór. Því meira
sem við stækkum því meira verður
hægt að leika sér í framtíðinni. Því
betur sem gengur, því frjálsari er
maður í hönnuninni.“
Dýrt silki og ullardragtir
Hún segist líka hafa brennt sig fyrst
á því að vera ekki nógu praktísk.
„Það var fyrst þegar við vorum
að kaupa inn efni. Þá keypti ég inn
örugglega dýrasta silki í heimi. Kjól-
arnir sem ég ætlaði að gera hefðu
ábyggilega þurft að kosta mörg-
hundruð þúsund úti í búð. Tenging-
arnar með svona voru ekki alveg að
smella, nýkomin úr skóla og áttaði
mig ekki á því hvað lokaútkoman
myndi kosta.“
Hún vill halda þeirri stefnu við
sem hefur verið í lýði hjá Geysi
Erna sótti innblástur í verk Ás-
mundar Sveinssonar. MYND/EYDÍS
síðustu ár að gera tímalausar flíkur
sem eru ekki dottnar úr tísku árið
eftir. Aðspurð hvort henni finnist
eitthvað úr fyrri línum eftir hana
algjörlega hafa misst marks í dag
segir hún svo vera, en ekki endilega
af sömu ástæðu og ætla mætti.
„Það var meira eitthvað sem mig
langaði rosalega mikið að myndi
virka en gerði það ekki. Það var
kannski ósk mín að allar konur
myndu fatta og fíla þetta. Það átti
við þegar ég gerði 100 prósent ullar-
prjónabuxur og peysu í stíl. Ég sá
fyrir mér að konur myndu hoppa út
í þessum brjáluðu ullardrögtum en
það varð ekki raunin,“ svarar hún
hlæjandi og heldur svo áfram: „Það
er samt leiðinlegt að þurfa alltaf
bara að hugsa um hvað selst. Það
er gaman að krydda þetta líka upp
og sýna skýrt einhverja ákveðna
stefnu.“ steingerdur@frettabladid.is
2 5 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
5
-1
0
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
1
5
-B
3
6
C
2
4
1
5
-B
2
3
0
2
4
1
5
-B
0
F
4
2
4
1
5
-A
F
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K