Skessuhorn


Skessuhorn - 18.02.2015, Side 14

Skessuhorn - 18.02.2015, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2015 Líflegar umræður á íbúafundi um skipulagsmál í Borgarbyggð Fjölmenni var á íbúafundi um að- alskipulag Borgarbyggðar og kynn- ingu á ísgangaverkefninu í Lang- jökli, sem haldinn var í Hjálmakletti í Borgarnesi síðastliðið miðviku- dagskvöld. Jónína Erna Arnardótt- ir, formaður umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar, stjórnaði fundinum. Auk þess sem fram fór kynning á aðalskipulaginu, greindi Jökull Helgason, forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs Borg- arbyggðar, frá helstu framkvæmd- um í sveitarfélaginu á þessu ári. Þar kom fram að ýmislegt spenn- andi er í farvatninu. Í kjölfar yfir- lits Jökuls var kynnt ísgangaverk- efnið í Langjökli. Sigurður Skarp- héðinsson, framkvæmdastjóri Ice- Cave, félagsins um uppbyggingu ganganna, stóð fyrir þeirri kynn- ingu er vakti mikla athygli fundar- manna. Einnig skýrði Brynja Dögg Ingólfsdóttir frá verkfræðistofunni Eflu skipulagið í Langjökli og við Geitland vegna verkefnisins. Á seinni hluta fundarins voru fyrirspurnir og pallborðsumræð- ur. Líflegar fyrirspurnir og umræð- ur áttu sér stað. Var þar vikið að mörgum málum, svo sem áform- um um Kljáfossvirkjun og virkjanir í Hvítá sem virtust ekki eiga mikinn hljómgrunn meðal fundarmanna. Vega- og samgöngumál voru mikið rædd, um sveitavegina sem þarfn- ast orðið stórkostlegs viðhalds og Uxahryggjaveg. Fundarmönn- um kom saman um að leggja yrði mikla áherslu á að bæta sveitaveg- ina sem og Uxahryggjaveg. Einn- ig var rætt um að laga þyrfti Kalda- dalsveg þannig að hann verði fær lengri tíma ársins er nú er. Miðbæj- arskipulag í Borgarnesi fékk nokkra umræðu sem og þjóðvegur eitt, nú- verandi leið eða hjáleið. Fram komu skiptar skoðanir en fundarmenn voru sammála því að vert væri að fylgjast vel með hvernig álíka mál þróast á Selfossi þar sem aðstæður eru ótrúlega svipaðar. Kolfinna Jóhannesdóttir sveit- arstjóri var meðal þeirra síðustu sem tók til máls á íbúafundinum og þakkaði hún fundarmönnum fyr- ir góða fundarsókn. Hún sagði að sú mikla uppbygging sem greini- lega væri framundan í spennandi verkefnum tengdum ferðaþjón- ustu myndi ýta á eftir ýmsum öðr- um framfaramálum, svo sem brýn- um framkvæmdum í samgöngum. Kolfinna kvaðst vera mjög bjartsýn varðandi næstu ár og full ástæða væri til þess. Jónína Erna fundar- stjóri átti lokaorðin á fundinum þar sem hún sagði að hvað sem liði um- ræðunni um framtíðarleið þjóðveg- ar 1 í gegnum Borgarnes, þá yrði að leggja áherslu á að fá göng und- ir veginn inni í bænum. Ekki síst til þess að tryggja öryggi barnanna í umferðinni. þá Fundurinn var vel sóttur. Pétur Geirsson og Gísli Karel Halldórsson ræða málin. Jökull Helgason á spjalli við Jón Heiðarsson og Stefán Ólafsson. Margt var rætt í kaffihléinu. Þeir sem svöruðu fyrirspurnum í pallborði: Jónína Erna Arnardóttir, Jökull Helgason, Sigurður Skarphéðinsson og Brynja Dögg Ingólfsdóttir. „Við erum jafnvel að vonast til að geta tekið á móti fyrstu gestun- um þegar líður á maí en það verð- ur alla vega byrjað 1. júní eins og við ætluðum. Við höfum verið allr- úmir í okkar tímaáætlunum. Eft- irspurnin fyrir þessari afþreyingu virðist vera gríðarleg og fjölmiðlar mjög áhugasamir að fjalla um verk- efnið. Ég býst við að í gegnum um- fjallanir í fjölmiðlum séum við búin að fá kynningu sem jafngildir aug- lýsingum fyrir tugi milljóna króna. Breskir fjölmiðlar hafa til dæmis ver- ið mjög áhugasamir og nú er þýskt blað að fjalla um okkur. Það er líka mikilvægt að fá svona heimskynn- ingu eins og hjá Lonely Planet sem valdi verkefnið eitt af níu áhuga- verðustu ferðamöguleikum í heimi á þessu ári,“ segir Sigurður Skarphéð- insson, framkvæmdastjóri Ice Cave Iceland, fyrirtækisins um ísgöngin í Langjökli. Kynning á verkefninu fór fram á íbúafundi um skipulagsmál í Hjálmakletti í Borgarnesi síðastliðið miðvikudagskvöld. Átta til tíu góðir rekstrarmánuðir Sigurður segir að áætlanir við gang- agerðina hafi staðist í meginatriðum. Framkvæmdir hófust í Langjökli fyrir tæpu ár. Að sögn Sigurðar urðu ýmsar útfærslur eins og til dæmis lýs- ing í göngunum minna mál en reikn- að var með og núna sé lýsingin nán- ast í höfn. Gert er ráð fyrir að dag- legar ferðir verði með hópa á Lang- jökul í sumar, frá Reykjavík bæði með rútum og þyrlum, og einnig frá Húsafelli. Farið verður með hópana upp að gangamunnanum á jöklin- um með tveimur átta hjóla trukkum sem hvor um sig tekur 40 í sæti. Þeir munu upplifa klukkustundar ferða- lag inni í jöklinum þar sem meðal annars verður að sjá mjög sérstæð- ar sprungur. Upplifun verður líka að fara inn í næst-stærsta jökul Evr- ópu, skyggnst verður inn í íslögin og fræðst um jökla. Ferðalagið til og frá jökulröndinni, frá húsinu Jaka, þar sem rúturnar koma er áætlað að taki tvo til tvo og hálfan tíma. Ísgöngin sjálf eru um 500 metra löng en þau eru í 1.260 metra hæð. Mannvirkið er sambland af göng- um og hellum. Áætlanir gera ráð fyr- ir 20 til 30 þúsund gestum á ári, þar af verði átta til tíu góðir mánuðir í rekstrinum, en veðurfar mun hafa töluverð eða mikil áhrif á það hversu stóran hluta ársins hægt verður að fara með fólk á jökulinn. Gert er þó ráð fyrir heilsársopnun fyrir hópa í ísgöngin. Auk ferðamannamarkað- arins gera rekstaraðilar ísganganna ráð fyrir að þau nýtist við brúðkaup, sem tökustaðir fyrir gerð kvikmynda og sjónvarpsþátta og fyrir fundi, ráð- stefnur og rannsóknir. Miklar væntingar um fjölgun ferðamanna Fundarmenn á íbúafundinum í Borg- arnesi sýndu verkefninu um ísgöng- in mikinn áhuga enda eru væntingar um að þau verði helsta aðdráttaraflið í stóraukningu ferðamanna á Vestur- landi næstu árin. Á fundinum var ein- mitt spurst fyrir um hvernig sveitar- félagið Borgarbyggð ætli að bregðast við stórauknum ferðamannastraumi á næstu árum. Fram kom að ýmislegt væri hægt að gera til að bregðast við. Meðal annars með því að stýra um- ferðinni um vegi í héraðinu og ná- grenni. Geta má þess að hugmynd- in um ísgöng í núverandi mynd kom fram 2008, en áður hafði Kristleif- ur Þorsteinsson á Húsafelli borað út göng árið 1995. Verkfræðistof- an Efla þróaði hugmyndina til 2013. Það var Brynja Dögg Ingólfsdóttir sérfræðingur hjá Eflu sem kynnti á fundinum deiliskipulag vegna verk- efnisins á Langjökli og einnig svæð- ið við Geitland. Þar er áætlað að móttakan fyrir ferðafólk á Langjök- ul verði. Í Geitlandi er gert ráð fyrir tveimur lóðum, 600 fermetra bygg- ingu fyrir ferðamenn og einnig lóð undir vélageymslu. Bílastæðin fyr- ir rúturnar eru skipulögð þannig að þeim er ekið í hringi og þurfa aldrei að bakka. Það er gert til að auka ör- yggi þegar veður gerast válind og út- sýni og athafnarými minnkar. þá Gríðarlegur áhugi og eftirvænting fyrir ísgöngunum í Langjökli Sigurður Skarphéðinsson, framkvæmdastjóri Ice Cave Iceland, fyrirtækisins um ísgöngin. Gerð ganganna er langt komin. Útfærslur eru komnar varðandi lýsinguna í göngunum. Gestirnir koma til með að setjast í göngunum og virða dýrðina fyrir sér.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.