Skessuhorn


Skessuhorn - 18.02.2015, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 18.02.2015, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2015 Útboð á rekstri tjaldsvæða Borgarbyggð auglýsir eftir tilboðum í rekstur tjald- svæðanna í Borgarnesi og Varmalandi árin 2015-2020. Rekstraraðili skal m.a. sjá um rekstur svæðanna og mann- virkja sem þar eru, innheimtu afnotagjalda og annað tilheyrandi. Nánari upplýsingar veitir Jökull Helgason, forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs. Útboðsgögn verða afhent rafrænt með tölvupósti frá og með 24.02.2015, senda má beiðni um gögn á net- fangið jokull@borgarbyggd.is eða í Ráðhús Borgar- byggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi. Tilboð verða opnuð í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, þriðjudaginn 3. mars 2015, kl 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Jökull Helgason Forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs. S K E S S U H O R N 2 01 5 Íþróttahúsið við Vesturgötu Körfuknattleiksfélag Akraness 1. deild karla Fimmtudaginn 19. febrúar kl. 19.15 ÍA - Breiðablik Fjölmennum og hvetjum ÍA til sigurs! Breyting á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 Sorpförgun og efnistaka við Bjarnhóla í landi Hamars. Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti 20. nóvember 2014 breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Tillagan var auglýst frá 18. ágúst til 28. september 2014. Athugasemdir voru teknar til greina, ábending barst frá Umhverfisstofnun. Tillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulags- og byggingarfulltrúa Borgarbyggðar. Lulu Munk Andersen Skipulags- og byggingarfulltrúi. S K E S S U H O R N 2 01 5 Síðastliðinn fimmtudag var landað tvö þúsund tonnum af salti í Grund- arfirði úr flutningaskipinu Wilson Dvina. Löndunargengi vann lið- langan daginn að uppskipun á salt- inu og kom því fyrir í saltgeymsl- unni. Verkinu lauk um kvöldið og lagði skipið úr höfn um miðnættið. tfk Tvö þúsund tonn af salti Rauða kross fólk í heimsókn í Grundarfirði Fulltrúar frá Reykjavíkur- og Ísa- fjarðardeildum Rauða krossins heimsóttu Grundarfjörð á dögunum og funduðu með félögum sínum í Grundarfirði. Einnig var Vinahúsið heimsótt og var þessi mynd tekin við það tilefni. Frá vinstri eru Guðrún Björg Guðjónsdóttir, Nína Helga- dóttir frá RKÍ Reykjavík, Steinunn Hansdóttir, Þórey Guðlaugsdóttir, Guðný Björnsdóttir, RKÍ Reykjavík, Sævör Þorvarðardóttir, og Bryndís Friðgeirsdóttir, RKÍ á Ísafirði. Sitj- andi eru Berglind Stoltenwald Jóns- dóttir og Hrafnhildur Guðmunds- dóttir. sk Mikið hlegið og saumað á bútasaumshelgi Um liðna helgi var haldin búta- saumshelgi í Laugargerðisskóla á Snæfellsnesi. Þar komu saman konur af Vesturlandi og saumuðu. Það voru konur úr Eyja- og Mikla- holtshreppi sem sáu um skipulagn- ingu helgarinnar og buðu til sín bútasaumskonum úr Grundarfirði og Stykkishólmi. Saumað var frá morgni og langt fram á kvöld og á laugardagskvöldinu var sett upp sýning á bútasaumsverkum. Krist- rún Geirsdóttir, eigandi Quiltbúð- arinnar á Akureyri, kom og var með sýnikennslu. Tókst helgin vel og var mikið hlegið, spjallað og ekki síst saumað. Meðfylgjandi myndir sýna falleg bútasaumsverk og það mikla handverk sem liggur á bak við þau. iss @home Í tilefni konudagsins 18.990.- verður 15% afsláttur af öllum vörum (gildir ekki af Fuzzy og Kartell) fimmtudag, föstudag og laugardag. Erum á Facebook SK ES SU H O R N 2 01 5

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.