Skessuhorn - 18.02.2015, Qupperneq 15
15MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2015
Skattframtöl / bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta og skattframtöl fyrir
einstaklinga og fyrirtæki.
Lilja Halldórsdóttir - Viðurkenndur bókari
LH bókhald ehf
LHbokhald@gmail.com Finndu okkur á facebook
Upplýsingar í síma 897 5144
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Verðum með Sushi fimmtudaginn 19. febrúar kl. 13.00 – 20.00
Láki Hafnarkaffi • Nesvegi 5 • Grundarfirði • sími 546 6808
FIMMTUDAGS-
SUSHI
Til að taka með eða borða á staðnum
Pantanir í síma 546 6808
Komdu og gerðu daginn þinn betri
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Hvolpahittingur á Snæfellsnesi
Hinn árlegi hvolpahittingur Snæ-
fellsnessdeildar Smalahundafélags
Íslands var haldinn að Söðulsholti
sunnudaginn 15. febrúar. Þar mættu
tólf bráðefnileg fjárhundaefni ásamt
eigendum sínum og fengu létta æf-
ingu í smalalistunum. Þeir félags-
menn sem lengra eru komnir í list-
inni leiðbeindu og voru teknar tvær
æfingar með hvern hund. Aðalfund-
ur deildarinnar var haldinn í fram-
haldinu. Þar var m.a. ákveðið að
reyna að endurtaka þetta einu sinni í
mánuði í ótiltekinn tíma. iss
Júlíana – hátíð sögu og bóka
framundan í Stykkishólmi
Júlíana – hátíð sögu og bóka verður
haldin dagana 26. febrúar – 1. mars
næstkomandi í Stykkishólmi. Há-
tíðin er nú haldin í þriðja sinn. Við-
fangsefni hátíðarinnar að þessu sinni
er minningar – sannar, ósannar,
héðan og þaðan. Þar kennir ýmissa
grasa, dagskráin verður fjölbreytt að
vanda og hefst hún formlega með
opnun í Vatnasafninu á fimmtudeg-
inum.
Á föstudeginum verður dagskrá
víðs vegar um bæinn. Á Amtsbóka-
safninu verður opnuð sýning grunn-
skólanemenda þar sem þeir fást við
minningar í ýmsu formi. Upplestur
verður í Bókaverzlun Breiðafjarðar,
boðið verður á sögustund í tveimur
heimahúsum um kvöldið. Dagskrá
föstudagsins endar svo með sögu-
gerð á Hótel Egilsen.
Hópur fólks í tengslum við há-
tíðina les nú af kappi bók Kristín-
ar Steinsdóttur rithöfundar; Vonar-
landið. Kristín kemur og hittir les-
hópinn á laugardeginum, hún mun
líka halda erindi í gömlu kirkjunni.
Þar munu einnig Hallgrímur Helga-
son rithöfundur fjalla um bók sína,
Konan við 1000° og Elísabet Jökuls-
dóttir rithöfundur mun spjalla um
bók móður sinnar Jóhönnu Krist-
jónsdóttur, Svarthvítir dagar og
einnig segir hún frá verkum sín-
um. Allt eru þetta verk sem byggja á
minningum út frá mismunandi sjón-
arhornum.
Á laugardagskvöldið verður dag-
skrá í Norska húsinu þar sem les-
in verða ljóð Júlíönu Jónsdóttur
sem var fyrst allra íslenskra kvenna
að gefa út skáldrit á Íslandi. Ekki er
hér allt upptalið. Verður því mikið
um að vera í Hólmunin þessa helgi
og eru Vestlendingar sem og aðrir
hvattir til að kynna sér hátíðina og
kíkja í Stykkishólm.
Dagskrána má nálgast þegar nær
dregur á Facebook: Júlíana hátíð
sögu og bóka. -fréttatilkynning
Upplestur í Bókaverzlun Breiðafjarðar á Júlíönu hátíð. Anna Margrét og Sara Hlín
Sigurðardóttir lesa upp. Upplestur fer einnig fram í ár í versluninni.
FRAMKVÆMDASTJÓRI SÖLU- OG ÞJÓNUSTUFÉLAGS
SKAGINN.COM • 3XTECHNOLOGY.COM
Óskað er eftir kröftugum framkvæmdastjóra til að leiða Skagann 3X ehf., nýtt félag markaðs-, sölu- og þjónustustarfs Skagans hf., Þorgeirs & Ellerts
hf. og 3X Technology ehf. Fyrirtækin framleiða og selja sérsniðnar hátæknilausnir fyrir matvælaiðnað á alþjóðamarkaði og er viðskiptavini þeirra að
finna víðsvegar um heiminn. Tæknistig félaganna er hátt en þar vinna samtals um 150 manns í þremur starfsstöðvum sem eru um 10.000 fermetrar að
stærð. Félögin hafa vaxið umtalsvert síðustu misseri en frumkvöðlaandinn hefur viðhaldist allt frá fyrsta degi. Áhersla er enn sem fyrr lögð á að bjóða
gæðavörur og ryðja braut nýjunga og nýrrar tækni sem færir viðskiptavinum verulegan árhagslegan ávinning. Skaginn 3X ehf. mun sjá um að
samræma sölu og þjónustu félaganna.
Leitað er að einstaklingi með víðtæka menntun ásamt reynslu í uppbyggingu sölu- og markaðsstarfs á heimsvísu. Bæði er um að ræða beina sölu
sem og í gegnum net umboðs- og samstarfsaðila. Skaginn 3X ehf. verður með starfsstöð í Íslenska sjávarklasanum í Reykjavík, Skaganum á Akranesi
og 3X Technology á Ísafirði. Hjá Skaganum 3X munu starfa um 20 reyndir viðskipta- og tæknisinnaðir starfsmenn. Félagið tekur jafnframt við allri
starfsemi félaganna á erlendum mörkuðum.
Nánari upplýsingar, umsóknir og ferilskrá sendist til: atvinna@skaginn.is
Umsóknarfrestur er til og með 1.03.2015.
HELSTU VERKEFNI:
• Samþætting og efling sameiginlegs markaðs-, ráðgjafa-,
sölu- og þjónustustarfs félaganna.
• Kynna félagið og stækka markað á alþjóðavettvangi.
• Nýta sem best ármagn til markaðs-, sýninga- og sölustarfs.
• Efla samstarf við tækjaframleiðendur sem falla
að vöruframboði félagsins.
HÆFNISKRÖFUR:
• Lausnamiðaður hugsunarháttur og hæfileikar til að mæta
þörfum viðskiptavina.
• Reynsla í sölu- og markaðsstarfi á erlendum mörkuðum er skilyrði.
• Hugmyndaauðgi og áræðni auk mikils frumkvæðis í starfi.
• Leiðtogahæfileikar og geta til að skipuleggja og stjórna verkefnum.
• Reynsla af stjórnun og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Góð tungumálakunnátta er skilyrði.
Námskeið í dkBúbót
Munið að skrá ykkur á námskeiðið
Hótel Hamri við Borgarnes
Mánudaginn 23. febrúar kl. 13:00-17:00 – grunnnámskeið
Þriðjudaginn 24. febrúar kl. 9:00-13:00 – framhaldsnámskeið
Nánari upplýsingar á www.rml.is
Til að skrá sig á námskeið skal
senda tölvupóst á jle@rml.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5