Skessuhorn - 18.02.2015, Page 17
17MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2015
Félag eldri borgara í Grundarfirði
stóð í ströngu um síðustu helgi.
Félagsmenn bökuðu bollur sem
íbúar í bænum gerðu svo góð skil á
bolludaginn. Það var mikill hama-
gangur í öskjunni þegar félagsmenn
voru á fullu að undirbúa pantanir
fyrir bolludaginn. Það var rétt svo
að ljósmyndari Skessuhorns fékk að
stilla upp í eina hópmynd eða svo.
Byrjað var eldsnemma að morgni
bolludags í bollugerðinni og svo upp
úr klukkan 8 var byrjað að aka með
bollurnar á áfangastað. Miðað við
sýnishornið sem fréttaritari fékk að
smakka er ljóst að bæjarbúar þurftu
ekki að kvarta yfir gæðunum. tfk
Ekkert lát er á aðsókn á leikrit-
ið MAR sem sýnt hefur verið fyr-
ir fullu húsi í Frystiklefanum í Rifi
á Snæfellsnesi frá því um jól. „Það
eru komnir eitthvað um 1.600
manns á sýninguna. Alls hafa sýn-
ingarnar verið um 30 talsins. Í gær,
laugardagskvöld vorum við með
tvær fullsetnar sýningar, alls hundr-
að manns. Þetta var fólk sem var að
koma hingað úr Reykjavík, Búðar-
dal og frá fleiri stöðum. Það lagði
það á sig að koma akandi hingað
vestur í brjáluðu veðri. Reyndar var
svo hvasst að ég átti von á afföll-
um, að fólk sem væri búið að panta
myndi ekki birtast, en það gerð-
ist ekki. Áhorfendur eru greini-
lega reiðubúnir að leggja ýmislegt á
sig til að sjá sýninguna,“ segir Kári
Viðarsson leikstjóri, leikari og eig-
andi Frystiklefans, þegar Skessu-
horn ræddi við hann á sunnudag-
inn.
Sýningar eru nú svo gott sem
fullbókaðar út febrúar. Örfá sæti
eru enn laus sæti á tvær sýningar
um næstu helgi. Eftir það verður
gert hlé á sýningum á MAR. „Við
vorum bara búin að skipuleggja
tíma okkar öðruvísi í mars því við
áttum ekki von á þessum viðtökum
og að MAR yrði sýnt svona lengi.
Við förum í mánaðarhlé og byrjum
svo aftur 21. mars. Ég er að fara í
önnur verkefni, þarf að fara suður
og sinna þeim. Meðal annars þarf
ég að undirbúa sumardagskrána hjá
Frystiklefanum. Svo hef ég skráð
mig á nokkur námskeið í leiklist,
svokölluðum spuna og kvikmynda-
leik og að lesa inn á nokkrar aug-
lýsingar sem ég var búinn að lofa.
Mótleikari minn Freydís Bjarna-
dóttir var líka búin að panta sér far
í ferðalag erlendis,“ segir Kári.
Búið er að setja upp fjórar sýning-
ar á MAR í Frystiklefanum í seinni
hluta mars. „Svo ætlum við bara að
sjá til með framhaldið. Ef það selst
strax upp, þá bætum við fleiri sýn-
ingum við,“ segir Kári Viðarsson.
mþh
Sigurför leikritsins MAR heldur áfram
Seldu bæjarbúum bollur
Hólmfríður stjórnar kór Kvennaskóla Reykjavíkur.
ann og sofnaði. Mér leiðist ekki að
ferðast hérna á milli, þvert á móti
nýt ég þess og læt náttúrufegurðina
næra andann.“
Varð leið á gítarnum og
langaði að syngja
Hólmfríður er ekki bara söng-
kennari og kórstjórnandi heldur er
hún ágæt sópransöngkona. Því fær
blaðamaður að kynnast þar sem við
sitjum og spjöllum í eldhúskrókn-
um á heimili hennar við Borgar-
flöt í Stykkishólmi. Hólmfríður
spilar úr tölvunni sinni upptöku af
einsöngslagi eftir Puccini, einu af
perlum óperubókmenntanna. Mjög
hugljúfur flutningur hjá söngkon-
unni Hólmfríði. „Ég byrjaði níu
ára gömul í Tónskóla Sigursveins
D Kristinssonar, var í gítarnámi og
19 ára tók ég fjórða stigið hjá Sím-
oni Ívarssyni. Ég var þá orðin hálf-
leið á gítarnáminu og langaði til að
syngja. Margrét Guðmundsdótt-
ir, móðir Snorra á Fossum, fylgdi
mér á fund Reynis Jónassonar sem
var organisti í Neskirkju og þar
söng ég í tíu ár. Reynir útvegaði
mér söngtíma hjá Guðrúnu Tóm-
asdóttur sem var söngkennari í
Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Guðrún
hafði gríðarlega mikil áhrif á mig
með sinni umvefjandi og styrkjandi
nærveru. Seinna lærði ég hjá John
A. Speigt og Ruth Magnússon. Mín
fyrsta reynsla af kórstjórn var í FG
þar sem ég stjórnaði skólakórnum í
eitt og hálft ár.“
Seldi íbúðina og
sleppti stöðunni
Þegar Hólmfríður tók stóru
ákvörðunina að flytja vestur sagðist
hún hafa verið svo ákveðin að fara
að það skipti engu máli þótt staðan
væri aðeins auglýst til eins árs. „Ég
var ákveðin í því að ef ungverski
söngkennarinn sem var í fríi kæmi
til baka þá færi ég bara að vinna eitt-
hvað annað, jafnvel í rækjunni eða
fiskinum. Mörgum fannst skrýt-
ið að ég skyldi taka þessa ákvörð-
un, fá ekki bara ársleyfi og leigja
en ekki kaupa, og sjá svo til. En ég
var sannfærð um að ég væri að taka
rétta ákvörðun, sagði upp stöðunni,
seldi íbúðina á Laugarnesvegin-
um og keypti þetta hús á Borgar-
flötinni. Ég þekkti engan þegar ég
kom hingað með stelpurnar mín-
ar þrjár sem þá voru níu, tíu og tólf
ára. Bæjarbúar tóku mjög vel á móti
okkur og við kunnum allar strax
mjög vel við okkur. Fundum okk-
ur heima. Þær eru núna orðnar full-
orðnar og farnar í burtu. Ég er afar
stolt af því að hafa verið þeim fyr-
irmynd. Traust á aðstæðum og eig-
in færni er afar mikilvægt veganesti
fram í lífið. Þær eru sterkar og sjálf-
stæðar og dafna vel,“ segir Hólm-
fríður. Dæturnar eru Lilja Margrét
sem er að ljúka BA prófi í þýsku og
þýðingarfræðum núna í febrúar og
í vor framhaldsprófi í söng. Jónína
hefur lokið nuddnámi og miðprófi
í píanóleik. Yngst er svo Sóley sem
nemur ensku við HÍ og hefur ver-
ið í söngnámi og lokið grunnprófi
á klarinett.
Mörg skemmtileg
kórverkefni
Þegar blaðamaður kveðst hafa
heyrt að Hólmfríður væri yfirgrips-
mikil í kórstarfinu á Snæfellsnesi
svarar hún: „Æ-i ekki orða þetta
svona, heldur er ég með nokkur
skemmtileg kórverkefni. Í nokkur
ár er ég búin að stjórna karlakórn-
um Kára þar sem eru um þrjátíu
söngmenn, úr Hólminum, Grund-
arfirði og nokkrir Útnesjamenn.
Svo er kvennakórinn Snædísir í
Grundarfirði, kór sem fór af stað í
fyrra og er að byrja sitt starf aftur
núna. Þessi kór lofar góðu þótt enn
séum við full fáar. Svo er það sam-
kór Lýsu sem er samstarf söngfólks
úr Staðastaðar-, Búðar- og Hellna-
sókn. Ég tók við því verkefni fyrir
jólin, ákaflega gefandi og skemmti-
legt þar sem söngfólk er um tutt-
ugu. Í Staðarsveitinni er líka karla-
kórinn Heiðbjört. Þeir misstu
stjórnanda sinn fyrir stuttu og mér
stendur til boða að fá að „tukta þá
aðeins til í söngnum,“ það er ekki
ennþá orðið en ég hlakka til,“ seg-
ir Hólmfríður og hlær hressilega.
„Svo erum við sex vinkonur hérna
í Hólminum í söngsveitinni Blæ.
Fjórar þeirra hafa verið í námi hjá
mér, og þrjár af sex eru sjúkraþjálf-
arar á St. Franciskusspítala. Eins og
þú heyrir er ég með fangið fullt af
ánægjulegum, nærandi og gefandi
söngverkefnum.“
Hélt þriggja tíma
söngveislu
Það voru tímamót hjá Hólmfríði
síðasta haust þegar hún fagnaði 50
ára afmæli. Þá stóð hún fyrir mik-
illi söngveislu í Stykkishólmskirkju
sem reyndar er skammt frá heimili
hennar í Hólminum. „Ég fékk í lið
með mér dætur mínar, vini, kórana
mína og kollega úr tónlistarskólan-
um. Úr varð þriggja tíma tónlistar-
veisla með rjómatertum í hléinu.
Þetta var yndislegt og mjög falleg-
ur dagur sem á eftir að lifa lengi í
minningunni.“
-En hugsar Hólmfríður sér að
verða um aldur og æfi í Hólmin-
um? „Ég lifi fyrir líðandi stund og
meðan ég nærist hérna og er ham-
ingjusöm í því sem ég er að gera er
ég ekkert að hugsa um breytingar.
En svo getur komið að því að ég
fari og þá gerist það sjálfsagt jafn
snögglega og þegar ég ákvað að
flytja hingað,“ sagði Hólmfríður í
lok þessa spjalls okkar. Sem var á
einum af þeim örfáu morgnum sem
hún var ekki að vinna og á ferðinni
á milli staða á Snæfellsnesi til að
kenna og stjórna kórum. þá
Dag ur í lífi...
Bæjarstjóra
Nafn: Regína Ásvaldsdóttir.
Fjölskylduhagir/búseta: Gift og
bý á Akranesi.
Starfsheiti/fyrirtæki: Bæjarstjóri
á Akranesi.
Áhugamál: Vinnan mín er alltaf
stærsta áhugamálið hverju sinni.
Þar að auki reyni ég að gefa mér
tíma í útivist af ýmsum toga, svo
sem fjallgöngur og er að reyna
fyrir mér í golfinu. Ég er að fara
í golfferð um páskana með góð-
um vinum og ég verð að viður-
kenna að tilhugsunin um gott veð-
ur heldur mér svolítið á floti í arg-
asta skammdeginu. Ég skrepp líka
á skíði þegar færi gefst og ég nýt
þess að slaka á í sófanum og horfa
á góða danska og breska sjón-
varpsþætti.
Vinnudagurinn: Mánudagurinn
16. febrúar, bolludagur.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði klukkan sjö
og keyrði manninn minn í hálf
átta strætó. Ég fór svo heim og
tók mig til og hlustaði um leið á
Boga Ágústsson fjalla um heims-
málin en eitt af því fyrsta sem ég
geri á morgnana er að kveikja á út-
varpinu.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Ég fékk mér AB mjólk í morgun-
mat og kaffi.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég fór keyrandi rétt fyr-
ir hálf níu.
Fyrstu verk í vinnunni: Yfir-
leitt er það fyrsta sem ég geri á
morgnana að lesa töluvpóstana í
símanum og hringja nokkur sím-
töl í kjölfarið. Ég hringdi einmitt
í Ólaf Adolfsson, formann bæjar-
ráðs, þennan morgun til að ræða
tiltekið mál sem er í deiglunni.
Það var líka kærkomin leið til að
halda mér frá bollunum sem voru
í boði á kaffistofunni, alltof mik-
il freisting!
Hvað varstu að gera klukkan
10? Þá var ég að ljúka sviðsstjóra-
fundi en ég legg línurnar fyrir
komandi viku með sviðsstjórun-
um á mánudagsmorgnum, það er
Steinari Adolfssyni, Helgu Gunn-
arsdóttur og Sigurði Páli Harð-
arsyni og svo er Jón Hrói Finns-
son að bætast í hópinn. Við förum
yfir þau mál sem ber hæst á hverju
sviði fyrir sig og þau verkefni sem
ég vil leggja áherslu á í komandi
viku.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Ég
bý við þau lífsgæði að ein af dætr-
unum býr heima tímabundið og
þar sem hún starfar núna sem
flugfreyja þá á hún stundum frí
þegar aðrir eru að vinna. Þennan
dag hringdi hún einmitt í mig og
bauð mér heim í afar girnilegan
hádegisverð.
Hvað varstu að gera klukkan 14:
Þá átti ég stuttan fund með Hildi
Bjarnadóttur skipulags- og bygg-
ingafulltrúa, til að fara yfir teikn-
ingar.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Ég hætti
um klukkan hálf tíu um kvöldið
og það síðasta sem ég gerði var að
slökkva á tölvunni.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Ég
sótti manninn minn sem kom með
strætó, klukkan hálf tíu en hann
vann líka lengur og fór svo og hitti
góðan félaga og borðaði með hon-
um kvöldmat.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Ég fékk mér bara það sem
var til í ísskápnum enda borðaði ég
heitan mat í hádeginu.
Hvernig var kvöldið? Ég stillti á
tímaflakkið svo ég sæi fréttir, kíkti
á netið og slakaði á með eigin-
manninum.
Hvenær fórstu að sofa? Rétt fyr-
ir miðnætti.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að hátta?
Tók úr þvottavélinni.
Hvað stendur uppúr eftir dag-
inn? Tiltölulega hreint skrifborð
og þar að leiðandi betri líðan.
Eitthvað að lokum? Þetta var
óvenju langur og góður vinnudag-
ur þar sem mér tókst að hreinsa
svolítið upp af gömlum syndum.