Skessuhorn - 11.03.2015, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Féllu úr leik í
Útsvari
STYKKISH: Lið Ölfuss tryggði
sér á föstudagskvöld sæti í átta
liða úrslitum Útsvars, spurninga-
keppni Ríkissjónvarpsins. Ölf-
us vann lið Stykkishólms 79:53.
Viðureign liðanna var nokk-
uð kaflaskipt og skiptust liðin
á forystu framan af. Ölfus náði
góðri forustu í fyrri hluta flok-
kaspurninganna en Hólmarar
náðu að jafna áður en kom að
stóru spurningunum í lokin. Þar
reyndust Ölfusingar sterkari. Þar
með eru öll Vesturlandsliðin úr
leik í Útsvari. Í átta liða úrslit-
um keppa Ölfus og Seltjarnarnes
næsta föstudag. Liðin sem eigast
við í öðrum viðureignum eru Ak-
ureyri og Skagafjörður 20. mars,
Reykjavík og Reykjanesbær viku
síðar og að lokum mæta Hafn-
firðingar liði Fljótsdalshéraðs.
–þá
Áfram þriðjungs
fjölgun
LANDIÐ: Um 70.500 erlend-
ir ferðamenn fóru frá land-
inu í febrúar síðastliðnum sam-
kvæmt talningum Ferðamála-
stofu í Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar eða 18.000 fleiri en í febrú-
ar á síðasta ári. Aukningin nem-
ur 34,4% milli ára. Ferðaárið fer
því vel af stað en sama aukning
mældist milli ára í janúarmánuði
síðastliðnum.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
28. febrúar - 6. mars.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 9 bátar.
Heildarlöndun: 3.508.484 kg.
Mestur afli: Lundey NS :
1.990.243 kg í tveimur lönd-
unum.
Arnarstapi 5 bátar.
Heildarlöndun: 46.732 kg.
Mestur afli: Kvika SH: 13.563
kg í tveimur löndunum.
Grundarfjörður 8 bátar.
Heildarlöndun: 477.727 kg.
Mestur afli: Steinunn SF:
127.776 kg í einni löndun.
Ólafsvík 19 bátar.
Heildarlöndun: 651.388 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
173.411 kg í fimm löndunum.
Rif 20 bátar.
Heildarlöndun: 680.177 kg.
Mestur afli: Rifsnes SH:
91.654 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur 5 bátar.
Heildarlöndun: 109.334 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
55.526 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Ingunn AK – AKR:
1.483.544 kg. 4. mars
2. Lundey NS – AKR:
1.223.794 kg. 1. mars
3. Lundey NS – AKR:
766.449 kg. 4. mars
4. Tjaldur SH – RIF:
90.747 kg. 3. mars
5. Örvar SH – RIF:
77.313 kg. 2. mars
mþh
Fjáröflunar-
kvöld fyrir Ölver
RVK: Þriðjudaginn 17. mars
bjóða KFUM og K félagar í
Sumarbúðunum Ölveri við
Hafnarfjall upp á dömu-
kvöld, til styrktar sumar-
búðunum. Það verður hald-
ið á Holtavegi 28 í Reykja-
vík og hefst kl. 19:00. Allur
ágóði af 4.900 króna miða-
verði rennur í Sveinusjóð
til byggingar á nýjum leik-
skála í Ölveri. Miðinn gild-
ir einnig sem happdrætt-
ismiði, en dregið verður um
húðvörupakka frá EGF húð-
vörum og inneign á Tokyo
sushi. Meðal dagskráratriða
má nefna að sópransöng-
konurnar, systurnar og Öl-
versstúlkurnar Erla Björg og
Rannveig Káradætur flytja
dúetta. Leikkonan Guð-
rún Ásmundsdóttir les brot
úr minningum Kristrúnar
Ólafsdóttur um Sr. Friðrik
Friðriksson og Sveinbjargar
Arnmundsdóttur um upphaf
starfsins í Ölveri. Þá verða
Ölversskemmtiatriði. Veislu-
stjóri verður Þóra Björg Sig-
urðardóttir guðfræðinemi og
formaður Ölvers. Sr. Guðni
Már Harðarson flytur hug-
vekju. Glæsilegur matseðill.
–fréttatilk.
Fasteignamark-
aður að glæðast
VESTURLAND: Á Vestur-
landi var 44 kaupsamning-
um um fasteignir þinglýst
í febrúarmánuði. Þar af var
21 samningur um eign í fjöl-
býli, 11 samningar um eignir
í sérbýli og 12 samningar um
annars konar eignir. Heild-
arveltan var 897 milljónir
króna í þessum viðskiptum
og meðalupphæð á samn-
ing 20,4 milljónir króna. Af
þessum 44 voru 23 samn-
ingar um eignir á Akranesi.
Þar af voru 16 samningar um
eignir í fjölbýli, sex samning-
ar um eignir í sérbýli og einn
samningur um annars kon-
ar eign. Heildarveltan var
582 milljónir króna og með-
alupphæð á samning 25,3
milljónir króna. Til saman-
burðar var 70 samningum
þinglýst í febrúar á Norður-
landi, 15 á Austfjörðum, 40 á
Suðurlandi, 47 á Reykjanesi
og 12 á Vestfjörðum. Miðað
við höfðatölu voru því fleiri
viðskipti á Vesturlandi en í
öðrum landshlutum.
-mm
Mótokross-
félagið sækir
um landssvæði
BORGARBYGGÐ: Á fundi
byggðarráðs Borgarbyggð-
ar nýverið var lögð fram
umsókn nýstofnaðs móto-
krossfélags um landssvæði
ásamt beiðni um viðræður
við umhverfis-, skipulags-
og landbúnaðarnefnd. Jafn-
framt var lögð fram umsögn
UMSB um umsóknina þar
sem eindregið er mælt með
því að Borgarbyggð taki já-
kvætt í erindið og að fundið
verði svæði fyrir félagið sem
allra fyrst. Byggðarráðs sam-
þykkti að vísa umsókn móto-
krossfélagsins ásamt beiðni
um viðræður til umhverfis-,
skipulags- og landbúnaðar-
nefndar. –þá
Á útboðsþingi sem fram fór í
síðustu viku kynntu Orkuveita
Reykjavíkur og dótturfélög helstu
framkvæmdir sem áætlaðar eru á
árinu. Í veiturekstri OR er upp-
bygging nýrrar fráveitu á Vestur-
landi að fara af stað að nýju eft-
ir margra ára bið. Því verkefni
hefur ítrekað verið slegið á frest
eftir hrun vegna fjárhagsörðug-
leika OR en verkefninu á sam-
kvæmt áætlun nú að ljúka fyr-
ir árslok 2016. Um 650 milljón-
ir renna til þess verkefnis á þessu
ári og tengist m.a. því að koma á
nýju dælustöðvunum í gagnið við
Ægisbraut á Akranesi og Brák-
arey í Borgarnesi. Eftir eru sjó-
lagnir og niðursetning búnaðar í
hreinsi- og dælustöðvar á báðum
stöðunum.
mm
Fjölbrautaskólinn í Garða-
bæ komst í úrslit í Gettu betur,
spurningakeppni framhaldsskól-
anna á RUV, eftir sigur á Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi síðastliðið miðvikudags-
kvöld. Þetta var í fyrsta skipti í
sögu skólans sem FVA komst í
undanúrslit keppninnar og var
viðureignin jöfn og spennandi
allan tímann. Ef liðið hefði svar-
að síðustu spurningunni rétt
hefði komið til bráðabana. Það
gerðist þó ekki og lauk keppn-
inni með þriggja stiga mun,
22-19, Garðbæingum í vil. Þetta
er í fyrsta sinn sem Garðbæing-
ar komast í úrslit keppninnar og
munu þeir mæta Menntaskólan-
um í Reykjavík í kvöld, miðviku-
dag, í úrslitaþættinum. grþ
Skúli Þórðarson sveitarstjóri í
Hvalfjarðarsveit vill, af gefnu til-
efni vegna umræðu meðal íbúa,
koma því á framfæri að sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar tók þá ákvörðun
í desembermánuði síðastliðnum að
lækka álagningu fasteignaskatts á
A-hluta fasteigna í sveitarfélaginu á
árinu 2015 frá því sem var á árinu
2014. „Allt íbúðarhúsnæði, útihús
í sveitum, hlunnindi, sumarhús og
fleira falla undir A-hluta fasteigna
þar sem álagningarhlutfall fast-
eignaskatts var lækkað úr 0,47%
af fasteignamati umræddra eigna
í 0,44%. Álagningarhlutfall fast-
eignaskatts á B- og C- hluta fast-
eigna er óbreytt frá árinu 2014. Á
sama tíma ákvað sveitarstjórnin að
hækka álagningu lóðarleigu í Mela-
hverfi úr 1,25% í 2,0% af fasteigna-
mati lóða.“
Skúli segir í yfirlýsingu sinni að
þannig sé fasteignamat fasteigna
og lóða á hverjum tíma haft til við-
miðunar um álagningu fasteigna-
skattsins, en það er sjálfstætt mat
sem fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands
framkvæmir árlega og sveitarfé-
lögin í landinu geta ekki stjórnað
eða haft bein áhrif á. Önnur fast-
eignatengd gjöld eins og hreinsun-
argjald rotþróa, sorphirðugjald og
sorpeyðingargjald hafa tekið breyt-
ingu í samræmi við þróun vísitölu
neysluverðs milli áranna 2014 og
2015 en álagning þeirra gjalda hef-
ur ekki verið aukin, segir Skúli.
„Nú þegar álagningarseðlar fast-
eignaskatts og fasteignatengdra
gjalda vegna ársins 2015 hafa verið
sendir fasteignaeigendum í Hval-
fjarðarsveit er nauðsynlegt að ofan-
greint sé haft í huga. Fasteignaeig-
endur í Hvalfjarðarsveit eru hvatt-
ir til að hafa samband við skrifstofu
sveitarfélagsins í síma 433-8500 eða
á netfangið kristjana@hvalfjardar-
sveit.is óski þeir skýringa á álagn-
ingu fasteignaskatts eða fasteigna-
tengdra gjalda ársins 2015,“ skrif-
ar Skúli Þórðarson.
mm
Fjölveiðiskipið Vilhelm Þor-
steinsson EA 11 þurfti að leita
inn til Grundarfjarðarhafnar nú
á sunnudagskvöldið með rifna
loðnunót. Fenginn var bíll frá
ÞÞÞ á Akranesi til að hífa veiðar-
færin af skipinu og síðan um borð
aftur, en viðgerð á þeim var lok-
ið tíu klukkustundum síðar, eða
snemma á mánudagsmorguninn.
Um leið og því var lokið hélt skip-
ið aftur út á miðin í leit að loðnu.
Fleiri skip munu einnig hafa orðið
fyrir veiðarfæratjóni á nótaveið-
um eftir loðnu síðustu daga, enda
veður og sjólag afar erfitt. Meðal
annars fór Lundey NS til Reykja-
víkur með rifna nót í byrjun vik-
unnar. tfk
Sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar
áréttar vegna fasteignagjalda
Gettu betur lið FVA: Anna Chukwunonso Eze, Elmar Gísli Gíslason og Jón Hjörvar
Valgarðsson. Þau tilkynntu í síðasta þætti að þau héldu áfram í keppnisliði FVA.
Lið FVA varð að játa sig sigrað
Vilhelm fékk hraðþjónustu í Grundarfirði
Kynntu framkvæmdir við fráveitur