Skessuhorn - 11.03.2015, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Nú er verið að gera upp breiðfirska
trillubátinn Kára SH í húsakynn-
um Skipavíkur í Stykkishólmi. Kári
SH er trébátur sem var smíðaður af
Rögnvaldi Lárussyni árið 1941 og
því orðinn rúmlega sjötugur. Kaup-
andi bátsins var Jónas Pálsson sem
þá bjó í Elliðaey á Breiðafirði ásamt
konu sinni Dagbjörtu Níelsdóttur og
fjórum dætrum. Sigurður Páll Jóns-
son trillukarl og núverandi varaþing-
maður í Stykkishólmi, sem er eigandi
bátsins í dag, er einmitt sonur elstu
dóttur þeirra Jónasar og Dagbjartar.
Jónas, móðurafi Sigurðar Páls, not-
aði Kára til róðra með línu og hand-
færum fram yfir árið 1980, eða í lið-
lega fjóra áratugi. Hann lagði og dró
línuna aftur á eigin höndum.
Notaður á Breiðafirði
í áratugi
Báturinn reyndist ávallt mikið hap-
pafley. Samhliða þessu var Kári svo
notaður í eyjaferðir á Breiðafirði
enda bátarnir sjálfsögð samgöngu-
tæki fólksins sem byggði eyjar þar.
Árið 1986 var báturinn svo smíðað-
ur upp hjá Kristjáni Guðmundsyni
í Stykkishólmi. Það var líka smíð-
að á hann nýtt stýrishús. Tveim-
ur árum síðar fékk Kári svo nýja vél
og var haldið til róðra í Breiðafirði
með fiskilínu, fyrst árið 1989. Þarna
var Kári kominn í eigu Sigurðar Páls
Jónssonar sem var á þessum árum að
stíga sín fyrstu skref í smábátaútgerð
sem hann hefur svo stundað fram á
þennan dag. Sigurður gerði Kára út
allt til ársins 1996. Þá keypti hann
sér plastbát og síðan hefur Kári verið
notaður sem skemmtibátur.
Endurnýjun
sem tekur tíma
Jón Ragnar Daðason súðbyrðings-
bátasmiður hefur skipt um botninn
auk borðstokka á Kára SH. Nú er Ás-
geir Árnason skipasmiður að skipta
um bönd og fleira fyrir frænda sinn
Sigurð Pál. Jónas Pálsson í Elliða-
ey sem lét smíða bátinn upphaflega
var afi þeirra beggja. Þannig bjarga
afkomendurnir þeim menningararfi
sem felst í þessum gamla trébáti.
„Það er seinlegt að gera svona bát
upp og erfiðast þegar maður byrjar
að vita hvar á að stoppa. Maður verð-
ur að ákveða hvar eigi að hætta að
rífa til að setja nýtt í staðinn. Bátur-
inn er samt ótrúlega vel farinn. Hon-
um hefur verið haldið vel við. Það fer
þó að minnka það tré sem var upp-
haflega í honum,“ segir Ásgeir Árna-
son tréskipasmiður.
Telur Íslendinga hafa
staðið sig illa
Ásgeir er einn af síðustu starfandi
tréskipasmiðum landsins. „Ég veit
ekki annað. Ég útskrifaðist 1989
sem tréskipasmiður í plankasmíði.
Ég veit ekki um neinn sem hefur út-
skrifast eftir það. Stéttin mun deyja
út ef það verður engin endurnýjun.
Það er áhugi meðal yngra fólks að
læra þessa iðn en það skortir fjár-
magn.“
Þrátt fyrir þetta eru mörg verkefni
sem menn gætu tekist á við. Mörg
dæmi eru þó um að báta sem hefði
mátt bjarga hafa verið látnir grotna
niður og eyðileggjast. Kútter Sigur-
fari á Akranesi er kannski eitt besta
dæmið um það, en þau eru mörg
fleiri. „Íslendingar hafa staðið sig
mjög illa í að varðveita gömul tré-
skip og –báta. Það má aðeins finna
örfá undantekningadæmi um dugn-
að og myndarskap svo sem Húna II
sem gamlir karlar sameinuðust um
að bjarga. Samt er þónokkuð af tré-
bátum eftir í landinu. Það mætti al-
veg bjarga miklum verðmætum enn.
Það er ekki orðið of seint. Það er
líka synd að láta þessa verkþekkingu
tapast,“ segir Ásgeir Árnason.
mþh
Happafleytan Kári SH gengur
í endurnýjun lífdaga
Ásgeir Árnason stendur í Kára SH þar sem báturinn er nú til uppgerðar í
húsakynnum Skipavíkur í Stykkishólmi.
Kári SH á vagni í Maðkavík í Stykkishólmi, sennilega árið 2008.
Farið á Kára SH út í Elliðaey árið 1988. Elstur karlmannanna er Jónas Pálsson sem lét smíða Kára á sínum tíma. Dagbjört
Níelsdóttir eiginkona hans er frammi í stafni með barnabarni þeirra, Braga Páli Sigurðssyni. Með þeim er svo Jón Einarsson
tengdasonur þeirra og afi Braga Páls. Jón er faðir Sigurðar Páls sem á Kára SH í dag og hann er faðir Braga Páls.
Sigurður Páll Jónsson nýkominn úr góðum línuróðri á Kára SH til hafnar í
Stykkishólmi árið 1995.
Fermingar á Vesturlandi
Fermingarblað Skessuhorns kemur út
miðvikudaginn 18. mars 2015 með fjöl-
breyttu efni tengdu fermingum.
Fermingarblaðið er eitt af vinsælli sér-
blöðum Skessuhorns. Auk hefðbundinnar
dreifingar er það sent öllum fermingar-
börnum á Vesturlandi.
Sala auglýsinga er hjá
markaðsdeild Skessuhorns
í síma 433-5500 og á netfangið
palina@skessuhorn.is
Panta þarf auglýsingar til
birtingar í fermingarblaðinu í
síðasta lagi 13. mars nk.