Skessuhorn - 11.03.2015, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Ertu með eða á móti því að
áfengi verði selt
í matvöruverslunum?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Borgarnesi)
Anna Sólrún Kolbeinsdóttir:
Ég er alveg klárlega á móti því.
Sigurjón Svavarsson:
Ég er fylgjandi því.
Kristrún Þorsteinsdóttir:
Ég er á móti.
Hreggviður Hreggviðsson:
Ég er á móti þessu.
Hannes Heiðarsson:
Alfarið á móti. Tíma þingsins er
illa varið í svona.
Pistill
ÍR-ingarnir Aníta Hinriksdóttir
hlaupari og Guðmundur Sverrisson
spjótkastari tóku nýverið við viður-
kenningum sem frjálsíþróttakona
og -karl ársins á uppskeruhátíð FRÍ.
Aníta var einnig útnefnd sem frjáls-
íþróttamaður ársins. Guðmundur
er eins og margir vita Vestlending-
ur að uppruna, sonur Huldu Guð-
mundsdóttur á Fitjum í Skorradal
og Sverris heitins Einarssonar. Af
öðrum tilnefningum á hátíðinni má
nefna að Kári Steinn Karlsson ÍR
og Arndís Ýr Hafþórsdóttir Fjölni
voru útnefnd götuhlauparar ársins
2014. Ofurhlauparar ársins í fyrra
voru þau Þorbergur Ingi Jónsson
UFA og Elísabet Margeirsdóttir
Ármanni. Þá var Sigurði Haralds-
syni frá Fáskrúðsfirði afhent við-
urkenning sem öldungur ársins í
karlaflokki og Martha Ernstsdóttir
fékk hana í kvennaflokki.
þá
Eitt er það sem vakið hefur athygli
mína síðastliðið misserið er herrak-
lipping sem fer langt með að vera
jafnvinsæl og hnakkastrípurnar frá
Selfossi sem réðu lögum og ríkjum
á tíunda áratuginum og langt inn í
þann fyrsta þessarar aldar. Klipp-
ingin lýsir sér þannig að rakvél er
beitt af áfergju á hliðar og hnakka,
aðeins snyrt torfan ofan á og svo er
skundað út í lífið. Þykir þessi út-
færsla afskaplega herraleg og sýn-
ir viðkomandi af sér mikinn þokka
þegar hann skartar þessum for-
láta hanakambi. Nú er svo komið
að þessi útfærsla er sífellt að fær-
ast í aukana, minna hár er skilið
eftir. Hef ég séð á mínum ferðum
ansi skrautlegar útfærslur, eitthvað
sem ekki er hægt að útskýra nema
að vísa í náttúrufyrirbrigði. Tvær
útfærslur hafa vakið athygli mína.
Eina kýs ég að kalla þúfukollu og
hina kalla ég kollastrýtu en hún er
að öllu leytinu eins og þúfukolla
nema að teygja er sett utan um hár-
gróðurinn sem stendur svo þráð-
beint upp í loftið. Kannski mætti
tala um hárvætti þegar rætt er um
umrædda klippingu.
Til útskýringar er ég með lýs-
ingu á þessum náttúruvættum.
Þúfukolla eða geldingahnappur
öðru nafni er blóm sem finnst helst
á melum (jafnvel þeim skjólgóðu).
Ber þessi mosahnappur blóm sem
mynda hvelfda þúfukollu, svona
líkt og klippingin sem ég vísa til.
Einhversstaðar er ritað: „Geldinga-
hnappurinn glóði þar einn og grá
var hin tröllslega skriða.“ Textinn á
vel við í dag í grámyglulegum vetr-
inum þar sem flestir eru jú hættir
að stunda ljósabekkina útaf sortu-
æxlinu og eru gráhvítir eftir því því
D-vítamínið vantar en skarta ægi-
fagurri þúfu á topplokinu. Kolla-
strýta er í útliti líkt og hverastrýt-
ur sem frístundakafarar hafa fundið
í Eyjafirði og eru sannkallaðir nátt-
úruvættir, líkt og klippingin hefur
þróast út í.
Undirritaður gerðist sekur um
hafa skartað annarri útfærslunni í
þónokkurn tíma, hvers vegna ekki?
Blindaður af bólu hártískunnar bað
ég blygðunarlaust um slíka hármeð-
ferð sannfærður um ágæti hennar.
Mögulega mun það gerast að þegar
ég skoða myndir frá þessu tímabili
í lífi mínu að ég muni kannski fyll-
ast aulahrolli, kannski þá kominn
með klassíska og íhaldssama heim-
ilisföðursklippingu, og hugsa hvað
ég var eiginlega að spá. En það er
aukaatriði, tískan finnur sér alltaf
einhver fórnarlömb og ber að sætta
sig við það. Ég efa það að hálffer-
tugur karlmaður í dag sem líklega
skartaði hinni víðfrægu Drago-
klippingunni sem Dolph Lundgren
sportaði í Rocky 4 sjái nokkuð eft-
ir því, ég myndi allavega ekki gera
það.
Með kveðju,
Axel Freyr Eiríksson, Borgarfirði
Á Íslandsmeistaramóti barna og
unglinga í kata sem fór fram í Smár-
anum í Kópavogi um næstsíðustu
helgi vann karatestúlka úr Karate-
félagi Akraness til Íslandsmeistara-
titils. Það var Kristrún Bára Guð-
jónsdóttir 11 ára stúlka sem varð
Íslandsmeistari í aldursflokki 12 ára
stúlkna. Mótið var haldið í umsjón
karatedeildar Breiðabliks. Mjög
góð þátttaka var í mótinu en rúm-
lega 110 einstaklingar mættu með
25 liðum frá ellefu félögum sem er
talsverð aukning frá fyrri árum.
þá
Að þessu sinni tóku 145 starfsmenn
Norðuráls þátt í Lífshlaupinu, en
því lauk formlega fyrr í mánuðinum.
Stóðu þeir sig manna best og unnu
vinnustaðakeppni stórra fyrirtæja
eftir harða baráttu við Actavis, Adv-
ania og fleiri. Þátttaka starfsmanna
Norðuráls var góð, hvort sem lit-
ið er til fjölda þeirra sem skráði sig
til leiks eða þeirrar hreyfingar sem
fólk iðkaði. „Þessi dugnaður skap-
aði þó nokkur vandræði þar sem
þrjú lið af átján stóðu uppi sem sig-
urvegarar í innanhússkeppni Norð-
uráls. Þetta voru lið Kerstjórnar Ís-
lands sem vann keppnina árið 2013
og 2014, Safety5 og StrongMix,“
segir í tilkynningu frá Norðuráli.
mm/ Ljósm. Norðurál.
Fyrir leik Skagamanna og Grind-
víkinga í Lengjubikarkeppninni í
Akraneshöllinni síðastliðinn laugar-
dag heiðruðu forsvarsmenn knatt-
spyrnumála í Grindavík Skaga-
manninn Svavar Sigurðsson sem
um tíma starfaði mikið að knatt-
spyrnumálum í Grindavík meðan
hann bjó þar og starfaði. Það var
Jónas Þórhallsson sem lengi hefur
haldið um taumana í knattspyrnu-
málum Grindvíkinga sem veitti
Svavari viðurkenninguna í bæki-
stöðvum ÍA á Jaðarsbökkum. „Þú
átt stóran þátt í okkar velgengni.
Langþráður draumur Grindvík-
inga rættist í þinni formannstíð.
Puðið að tyrfa æfingavöllinn, rífa
niður hús, allar Reykjavíkurferð-
irnar og ljúfar minningar árið sem
við tryggðum okkur sæti í úrvals-
deild og bikarúrslit eru ógleyman-
legar. Duflin 1994, æfingarferð-
ir, KSÍ-þing og síðasti leikurinn í
þinni formannstíð, sem var á Ólafs-
firði, gleymist aldrei. Þetta er besta
tímabil sem við höfum átt í fótbolt-
anum í Grindavík. Þú skildir eftir
gildi sem við notum enn í dag, að
þjóna ofar eigin hag,“ sagði Jónas
meðal annars af þessu tilefni.
Svavar Sigurðsson kom inn í
stjórn knattspyrnudeildar Umf.
Grindavíkur 1991 sem varaformað-
ur og var síðan formaður 1994 til
1996. Svavar þakkaði viðurkenn-
inguna og sagðist mjög ánægður
með hana en um leið efast um að
verkskulda. Blómin sem fylgdu við-
urkenningunni voru blá og gul í lit-
um Grindavíkinga og Skagamanna
en einnig voru með vínrauðleit
blóm, enda er Svavar stuðnings-
maður Crystal Palace í enska bolt-
anum. þá
Hárvættir
Kristrún Bára Guðjónsdóttir, Karatefélagi Akraness, tekur við gullverðlaunum.
Skagastúlka
Íslandsmeistari í kata
Starfsmenn Norðuráls báru
sigur úr býtum í Lífshlaupinu
Svavar Sigurðsson tekur við
viðurkenningunni frá Jónasi Þórhalls-
syni Grindvíkingi.
Svavar heiðraður
af Grindvíkingum
Á myndinni frá vinstri eru Guðmundur Sverrisson, Sigurður Haraldsson, Stefán
Skafti Steinólfsson stjórnarmaður FRÍ, Kári Steinn Karlsson, Martha Ernstsdóttir,
Aníta Hinriksdóttir og Einar Vilhjálmsson formaður FRÍ.
Guðmundur og Aníta
frjálsíþróttafólk landsins