Skessuhorn - 11.03.2015, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Óskum Golfklúbbnum Leyni til hamingju með 50 ára afmælið
Garðavöllur þykir með bestu keppnisgolfvöllum landsins
Stórafmæli hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi
Golfklúbburinn Leynir fagnar
50 ára afmæli sínu þann 15. mars
næstkomandi en á þeim degi árið
1965 komu nokkrir áhugamenn
um golfíþróttina saman í fundasal
Íþróttahússins við Laugarbraut
og stofnuðu Golfklúbb Akraness.
Hér verður stiklað á stóru í sögu
klúbbsins en ítarlegri samantekt
verður aðgengileg á vef klúbbs-
ins áður en langt um líður.
Það hafa orðið miklar breyting-
ar á starfi golfklúbbsins Leynis frá
því að 22 aðilar mættu á stofnfund-
inn fyrir tæplega 50 árum. Í fyrstu
fékk klúbburinn GkA sem skamm-
stöfun og bættist í hóp þeirra sex
golfklúbba sem fyrir voru á land-
inu. Helstu hvatamenn að stofnun
golfklúbbsins á Akranesi voru þeir
Guðmundur Sveinbjörnsson og
Óðinn S. Geirdal.
Bæjaryfirvöld höfðu úthlut-
að klúbbnum gamalgrónu þriggja
hektara túni við austurenda skóg-
ræktar bæjarins og voru þar strax
gerðar tvær holur og slegin braut
milli þeirra og kylfingar voru
komnir á kreik. „Leifur Ásgríms-
son var formaður á þessum tíma og
við fórum þessar tvær par 3 holur
á 12-13 höggum og það var vallar-
met,“ segir Þorsteinn Þorvaldsson
sem var kjörinn formaður klúbbsins
árið 1967 og var hann endurkjörinn
13 næstu ár. Ekki er á neinn hall-
að þótt fullyrt sé að með krafti sín-
um og dugnaði hafi Þorsteinn öðr-
um fremur haldið klúbbnum gang-
andi og skapað honum smám saman
þann sess sem hann nú hefur.
Árið1966 fékkst álíka stórt tún til
viðbótar vestan þess fyrsta og voru
settar út 6 brautir. Þar var kominn
fyrsti „alvöru“ golfvöllur Skaga-
manna sem snemma fékk nafn-
ið Garðavöllur, enda hafði land-
ið heyrt undir Garðaprestakall.
Klúbburinn var formlega tekinn inn
í Golfsamband Íslands 1967, en til
þess að verða fullgilt aðildarfélag að
GSÍ þurfti klúbburinn að hafa til af-
nota „alvöru“ golfvöll.
Fyrstu árin voru félagar á bilinu
20 – 40 en í dag eru félagarnir rúm-
lega 400 og fjórðungur þeirra eru
börn og unglingar.
Formleg nafnabreyting
árið 1970
Nafni golfklúbbsins var formlega
breytt 1970 og varð örnefnið Leynir
fyrir valinu enda liggur Garðavöll-
ur „í Leyninum“ og Leynislækur-
inn við Leynisgrund á upptök sín á
svæðinu. Skammstöfunin GkA var
einnig vandasöm þar sem að fyrir
var Golfklúbbur Akureyrar sem var
með þá skammstöfun.
Fyrsta golfmót klúbbsins var
haldið 1967 og var nefnt Vatnsmót-
ið og hefður það verið haldið allar
götur síðan. Mótið stóð svo sann-
arlega undir nafni – og versta veð-
ur sumarsins kom á þeim degi þar
sem að rigndi eins og hellt væri úr
fötu á keppendur. Haraldarmót-
ið fór fyrst fram 1969 og leikið var
um farandgrip sem gefinn var til
minningar um Harald Böðvarsson.
Meistaramót klúbbsins var fyrst
haldið 1970.
Garðavöllur hefur smám saman
verið að taka á sig núverandi mynd.
Árið 1969 náðist stór áfangi er sam-
þykki fékkst fyrir afnotum á álíka
stóru landi og fyrir var vestan 6
holu vallarins. Uppdráttur Hannes-
ar Þorsteinssonar af 9 holu velli var
samþykktur árið 1969 og hafist var
handa við leik á þessum velli sum-
arið 1972. Árið 1977 fékkst enn
meira land og völlurinn var stækk-
aður enn frekar árið 1978. Árið 1982
var framtíð Garðavallar tryggð þeg-
ar völlurinn var samþykktur í aðal-
skipulag Akraneskaupstaðar.
Hugmyndin að stækkun Garða-
vallar í 18 holur fór á skrið árið
1988 og árið 1994 tókust samning-
ar við Akraneskaupstað um land-
nýtingu og kostnaðarþátttöku bæj-
arfélagsins. Árið 1995 voru núver-
andi 1., 2., 3. og 4. braut vallarins
teknar í notkun. Alls voru 11 holur
á vellinum allt fram til ársins 2000
þegar allar 18 holurnar voru tekn-
ar í notkun.
Varð 18 holur árið 2000
Völlurinn var formlega opnaður
sem 18 holu völlur árið 2000 og Ís-
landsmótið í höggleik fór fram á
vellinum árið 2004 þar sem að Birg-
ir Leifur Hafþórsson fagnaði sigri í
karlaflokki en hann var þá genginn
í raðir GKG. Ólöf María Jónsdóttir
úr Keili sigraði í kvennaflokki.
Garðavöllur þykir í dag á með-
al bestu keppnisvalla landsins, fjöl-
breyttur og fallegur, með eftir-
minnilegu landslagi sem hefur verið
mótað með árunum. Mikill fjöldi af
glompum hefur verið eitt af kenni-
leitum Garðavallar allt frá upphafi
og fjöldi þeirra er vel yfir 60.
Núverandi félagsaðstaða var tekin
í notkun árið 1978 og leysti af hólmi
gamla klúbbhúsið sem keypt var
árið 1969. Það hús var fyrsta fólks-
bílastöðin á Akranesi, síðar segla-
saumaverkstæði, og flutt á vallar-
svæðið þar sem nú er endi 1. braut-
ar og breytt í golfskála. Þessi 25 fer-
metra skáli þjónaði sínu hlutverki
með sóma þangað til að íbúðarhúsið
í Grímsholti var keypt með dyggri
aðstoð Akranesbæjar og það tekið í
notkun sem félagsheimili sama ár.
Veturinn 1981 var húsið endur-
nýjað innanstokks og allt frá þeim
tíma hafa margvíslegar breytingar
verið gerðar. Margar hugmyndir eru
til um stækkun á núverandi klúbb-
húsi og má þar nefna að byggja ofan
á húsið útsýnispall eða jafnvel aðra
hæð. Árið 2005 á 40 ára afmælisári
klúbbsins voru uppi hugmyndir um
að byggja nýtt klúbbhús á þeim stað
þar sem 9. flötin er í dag.
Nýtt æfingaskýli var tekið í notk-
un þann 3. júlí árið 2004 og fékk
mannvirkið nafnið Teigar. Skýlið er
við æfingasvæði vallarins og er það
mikið notað – enda er það upplýst
og hægt að slá þar fram eftir hausti
og eitthvað fram eftir vetri þeg-
ar aðstæður leyfa. Flatarmál Teiga
er tæplega 200 fermetrar og und-
irstöðurnar eru steinsteyptar. Þessi
aðstaða hefur gjöbreytt æfingaað-
stöðu félagsmanna og gesta.
Ný og glæsileg
vélageymsla
Vélafloti Leynis hefur stækkað mik-
ið á þeim tíma frá því að klúbbur-
inn var stofnaður. Gamli herbragg-
inn í Skógræktinni var notaður í
mörg ár en það húsnæði var langt
frá því að vera fullnægjandi. Árið
2011 var gerður samstarfssamning-
ur við Akraneskaupstað um bygg-
ingu á nýrri vélageymslu. Hafist
var handa við bygginguna fljótlega
eftir undirritun samningsins og var
skemman tekin í notkun fyrir ári.
Nýja vélageymslan er rúmlega
500 fermetrar. Mannvirkið gjör-
breytir allri geymsluaðstöðu fyrir
þann vélakost sem Leynir á. Þar er
einnig verkstæði til að viðhalda vél-
um og aðstaða fyrir starfsmenn sem
vinna við golfvöllinn. Yfir vetrar-
tímann hefur vélageymslan verið
nýtt sem æfingaaðstaða fyrir félags-
menn og æfingar afrekshópa. Ný-
lega var tekinn í notkun fullkominn
golfhermir sem hefur vakið mikla
lukku hjá félagsmönnum.
Eftir stækkun Garðavallar í 18
holu keppnisvöll hafa öll helstu
golfmót GSÍ verið haldin á Garða-
velli frá árinu 2000 fram til dagsins
Axel Fannar Elvarsson slær fyrsta högg á 3. teig á Eimskipsmótaröðinni 2014.
Ljósm. seþ.
Heiðursmennirnir Gunnlaugur Magnússon, Óðinn Geirdal og Þorsteinn Þorvalds-
son. Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness.
Valdís Þóra Jónsdóttir er tvímælalaust fremsti kylfingur félagsins um þessar
mundir. Ljósm. seþ.
Guðmundur Sigvaldason hefur verið framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis á
Akranesi síðastliðin tvö ár. Hér er mynd úr safni Skessuhorns frá því Þórður Emil
formaður Leynis og Guðmundur skrifuðu undir ráðningarsamning í marsbyrjun
2013.
Sjáumst í sumar!
Golfklúbbur
Borgarness