Skessuhorn


Skessuhorn - 11.03.2015, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 11.03.2015, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015 Karlakórinn Heimir TÓNLEIKAR í Tónbergi, Akranesi föstudaginn 13. mars kl. 20:30 Fjölbreytt söng- og skemmtidagskrá Einsöngur: Ari Jóhann Sigurðsson og Einar Halldórsson Sérstakur gestur: Þór Breiðörð Stjórnandi: Sveinn Arnar Sæmundsson - Undirleikari: omas R. Higgerson. Aðgangseyrir kr. 3.500 / Kalmansvinir kr. 3.000 Forsala hefst í versluninni Bjargi við Stillholt, föstudaginn 6. mars www.heimir.is Tom Ari Sveinn Arnar Þór Breiðörð Vertu með! Hólaskóli - Háskólinn á Hólum Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is Íslensk ferðaþjónusta þarfnast menntaðs fólks sem kann vel til verka Í Háskólanum á Hólum er í boði fjölbreytt og hagnýtt nám á sviði ferðamálafræði og viðburðastjórnunar. Umsóknarfrestur er til 5. júní 2015 w w w .h o la r. is n ýp re n t 0 3 /2 0 15 Háskólasamfélag með langa sögu Hólar í Hjaltadal er í senn mikill sögustaður og útivistarparadís. Háskólinn á Hólum er lítill en öflugur háskóli sem sinnir kennslu og rannsóknum á sviði ört vaxandi atvinnugreina. Ekkert lát er á mokveiðinni sem hefur verið í Breiðafirði undanfar- ið. Á þriðjudag í síðustu viku var sannkallaður landburður af þorsk- afla í öll veiðarfæri. Dragnótabátar veiddu firnavel. Sveinbjörn Jakobs- son SH kom með 45 tonn að landi. Þar af veiddust 25 tonn í einu kasti. Steinunn SH var einnig með 45 tonn sem fengust í tveim köstum. Egill SH var með 30 tonn, Rifsari SH með 30 tonn og aðrir aðeins minni afla. Línubátar voru einnig með mjög góðan afla. Kristinn SH fékk 26,5 tonn á 48 bala og fór strax aftur til veiða að löndun lokinni. Tryggvi Eðvarðs SH var með 41 tonn í tveimur löndunum. „Það tók okk- ur alls 30 tíma að ná þessum afla. Allur fiskurinn var í stærra lagi. Nú er bræla framundan og það gefur okkur færi á að fá smá hvíld eftir þessa miklu törn,“ sagði Arnar Lax- dal skipstjóri á Tryggva Eðvarðs í spjalli við fréttaritara Skessuhorns. Netabátar hafa einnig fiskað afar vel í sín veiðarfæri og fékk Bárður SH 25 tonn á þriðjudaginn. Fisk- gengdin á miðunum er slík að þess- ir bátar láta netin liggja stuttan tíma og taka þau svo í land að róðri loknum. af Linnulaus mokveiði á þorski í Breiðafirði Kristmundur Sumarliðason skipverji á dragnótarbátnum Sveinbirni Jakobssyni SH í lest bátsins. Kristmundur Sumarliðason og Magnús Höskuldsson á Sveinbirni Jakobssyni SH. Egill Þráinsson skipstjóri á Sveinbirni Jakobssyni SH. Áhöfnin á línubátnum Kristni SH kampakát enda mokafli. Öll kör voru full og einnig millidekkið hjá þeim Jóni Antoni Hólm, Þorsteini Bárðarsyni, Aroni Leví Kristjánssyni og Þresti Albertssyni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.