Skessuhorn - 11.03.2015, Blaðsíða 31
31MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Snæfellskonur styrktu
stöðu sína á toppi
Domonosdeildarinnar
í körfubolta á fimmtu-
dagskvöldið þegar þær
sigruðu KR 72:56 í Vesturbæn-
um. Snæfell heldur þar með fjög-
urra stiga forskoti á Keflavík sem
er í öðru sætinu og á að auki leik til
góða. Snæfellskonur voru sterkara
liðið allan fyrri hálfleikinn, höfðu
fimm stiga forskot eftir fyrsta leik-
hluta og voru 17 stigum yfir í hálf-
leik í stöðunni 46:29. KR stúlkur
komu grimmar til seinni hálfleik
og náðu að bæta stöðuna aðeins
þannig að tólf stigum munaði á lið-
unum fyrir lokakaflann. Það dugði
ekki því nær komust KR-stúlkur
ekki og töpuðu eins og áður sagði
með sextán stiga mun, 72:56.
Hjá Snæfell voru Kristen
McCarthy og Gunnhildur Gunn-
arsdóttir atkvæðamestar með 17
stig hver, Hildur Sigurðardótt-
ir kom næst með 12 stig, þá Helga
Hjördís Björgvinsdóttir með 8,
Alda Leif Jónsdóttir 7, Berglind
Gunnarsdóttir 4, Rebekka Rán
Karlsdóttir 3 og María Björnsdótt-
ir og Rósa Indriðadóttir með 2 stig
hvor.
Í næstu umferð fá Snæfellskonur
Val í heimsókn í Hólminn í kvöld,
miðvikudaginn 11. mars.
þá
Ungmennafélag Grundarfjarð-
ar tók á móti Stjörnunni í fyrstu
deild kvenna í Íslandsmótinu í blaki
þriðjudaginn 3. mars síðastlið-
inn. Grundfirsku stelpurnar byrj-
uðu betur og unnu fyrstu hrinuna
25-21. Gestirnir í Stjörnunni svör-
uðu að bragði og unnu 25-23 og
jöfnuðu metin í 1-1. Í þriðju hrin-
unni léku heimamenn við hvern
sinn fingur og unnu þá hrinu með
yfirburðum 25-9 og tóku aftur for-
ystu 2-1. Í þeirri fjórðu var svo jafn-
ræði með liðunum og mikil spenna
og stemning í húsinu. Það fór svo að
lokum að heimamenn kláruðu hrin-
una 25-22 og þar með leikinn 3-1.
UMFG situr sem fyrr í fjórða sæti
deildarinnar með 24 stig eða jafn
mörg stig og Ýmir sem á þó tvo leiki
til góða. Lið UMFG á einungis eftir
að spila tvo leiki í deildinni en stúlk-
urnar taka á móti Bresa frá Akranesi
fimmtudaginn 12. mars. tfk
Íslandsmeistaramót í keilu þar sem
einstaklingar með forgjöf taka þátt,
lauk í Reykjavík síðastliðið þriðju-
dagskvöld. Akurnesingar áttu Ís-
landsmeistarann í karlaflokki í
fyrra, hinn kornunga en efnilega
Matthías Leó Sigurðsson (7 ára).
Matthías keppti núna en vegna
breyttra forgjafarreglna náði hann
ekki á verðlaunapall að þessu sinni.
Íslandsbikarinn fór hins vegar ekki
langt, einungis milli húsa á Akra-
nesi. Aron Fannar Benteinsson, 18
ára frá Keilufélagi Akraness, kom sá
og sigraði í karlaflokki. Skammt er
stórra högga á milli hjá Aroni, en
helgina áður varð hann tvöfaldur
Íslandsmeistari unglinga í keilu í
fyrsta flokki og opnum flokki. Sig-
urvegari á Íslandsmeistaramótinu
með forgjöf í kvennaflokki varð
Þórunn Stefanía Jónsdóttir, Keilu-
félagi Reykjavíkur. Ásamt Aroni lék
Gunnar Ingi Guðjónsson KFÍ til
undanúrslita á mótinu.
Um páskana fara nokkrir af
fremstu keiluspilurunum af Akra-
nesi á Evrópumeistaramót ung-
linga undir 18 ára, en mótið verð-
ur haldið í Leipzig í Þýskalandi.
Ásamt Aroni Fannari keppa þær
Natalía Guðrún Jónsdóttir og Jó-
hanna Ósk Guðjónsdóttir. Þjálf-
ari þeirra er Guðmundur Sigurðs-
son, formaður KFA, en fararstjóri á
Evrópumótinu verður Jónína Björg
Magnúsdóttir.
mm/ Ljósm. gs.
ÍA er enn með fullt hús
stiga í sínum riðli í a-
deild Lengjubikarsins,
deildarbikarkeppni KSÍ.
Skagamenn unnu Grind-
víkinga 3:2 í Akraneshöllinni síðast-
liðinn laugardag og eru með 12 stig
á toppi riðilsins. Arnar Már Guð-
jónsson kom heimamönnum yfir
snemma leiks eftir glæsisendingu frá
Alberti Hafsteinssyni en Grindvík-
ingar náðu að jafna seint í fyrri hálf-
leiknum. Garðar Gunnlaugsson kom
ÍA aftur yfir í byrjun seinni hálfleiks,
en þá var framherjinn skæði nýkom-
inn inn á. Grindvíkingar jöfnuðu um
miðjan hálfleikinn. Ekki leið á löngu
þar til bakvörðurinn Dannen Lough
skoraði beint úr horspyrnu sigurmark
ÍA. Engin afgangur var af því að sig-
ur Skagamanna væri verðskuldaður
í leiknum, enda voru Grindvíking-
ar duglegir og harðir í horn að taka.
Næst mæta Skagamenn í Lengjubik-
ar Valsmönnum og fer leikurinn fram
í Egilshöll næstkomandi fimmtudag
12. mars.
Ekki hefur gengið eins vel hjá Vík-
ingi Ólafsvík í a-deild Lengjubikars-
ins. Um helgina töpuðu þeir 0:1 fyr-
ir HK og helgina á undan 0:4 fyrir
FH. Í fyrstu umferðinni gerði Vík-
ingur 1:1 jafntefli við Þrótt Reykja-
vík. Næst mætir Víkingur Breiða-
bliki í Kórnum fimmtudagskvöldið
19. mars. þá
Fyrir leikinn við ÍR í Breiðholt-
inu síðastliðið mánudagskvöld
eygðu Skallagrímsmenn tölfræði-
lega möguleika á að halda sæti sínu
í úrvalsdeildinni í körfubolta. Til
þess þurftu þeir að sigra í leikn-
um með sjö stiga mun að minnsta
kosti. Strax í byrjun leiks var ljóst
að verkefnið yrði erfitt, þegar ÍR-
ingar komust fljótlega í góða stöðu,
20:4 eftir stuttan leikkafla. Eftir það
komust Skallagrímsmenn aldrei inn
í leikinn og töpuðu 73:99. Þar með
féllu Borgnesingar úr deild þeirra
bestu sem og Fjölnir. Það verður
því hlutskipti þessara liða að leika
í fyrstu deild á næsta tímabili. Þeg-
ar ein umferð er eftir í deildinni er
Skallagrímur neðstur með átta stig,
Fjölnir er í næstneðsta sæti með tíu
stig og ÍR í tíunda sætinu með 12
stig og sloppnir við fall.
ÍR-ingar voru átján stigum yfir
í hálfleik gegn Skallagrími, 51:33,
og svipaður munur hélst út þriðja
leikhluta. Um nánast uppgjöf var
síðan að ræða í lokafjórðungn-
um þar sem ÍR-ingar juku forskot-
ið og sigruðu eins og áður seg-
ir með 26 stiga mun 99:73. Stiga-
hæstir Skallagrímsmanna í leikn-
um voru Tracy Smith með 18, Daði
Berg Grétarsson 17, Magnús Þór
Gunnarsson 15 og Sigtryggur Arn-
ar Björnsson 9. Þetta var slæm vika
hjá Skallagrímsmönnum sem síð-
astliðið fimmtudagskvöld töpuðu
80:69 fyrir Njarðvíkingum í Borg-
arnesi.
Í síðustu umferðinni næstkom-
andi fimmtudagskvöld fá Skalla-
grímsmenn Tindastólsmenn í
heimsókn.
þá
Í fyrsta skipti í áraraðir kemst kar-
lalið Snæfells í körfubolta ekki í
úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar.
Þetta var ljóst eftir að Snæfell tap-
aði fyrir Keflavík 95:83 suður með
sjó á mánudagskvöldið. Við tapið er
Snæfell dæmt í níunda sæti deild-
arinnar með 16 stig fyrir lokaum-
ferðina og fjögur stig í næstu lið
bæði fyrir ofan og neðan. Keflvík-
ingar náðu frumkvæðinu í leikn-
um og höfðu tíu stiga forskot eftir
fyrsta leikhluta 23:13. Snæfelling-
ar náðu að laga stöðuna og fimm
stigum munaði á liðunum í hálf-
leik 50:45. Snæfell náði að minnka
muninn niður í þrjú stig í byrjun
seinni hálfleik en nær komst liðið
ekki. Keflvíkingar bættu í, komust
aftur í tíu stiga mun og gáfu ekkert
eftir. Lokatölur eins og áður sagði
95:83.
Hjá Snæfelli var Chris Woods
atkvæðamestur með 20 stig og 14
fráköst, Sigurður Á Þorvaldsson
kom næstur með 19 stig og 9 frá-
köst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson
14 stig, Austin Bracey 12 og aðr-
ir minna. Snæfellingar urðu einnig
að sætta sig við tap sl. fimmtudags-
kvöld þegar þeir fengu Tindastóls-
menn í heimsókn í Hólminn. Sá
leikur var hnífjafn og gestirnir voru
sterkari á leikasprettinum og sigr-
uðu 80:77. Í síðustu umferð Dom-
inosdeildar sem fram fer næstkom-
andi fimmtudagskvöld fá Snæfell-
ingar Grindvíkinga í heimsókn.
þá
Skagamenn áttu mis-
jöfnu gengi að fagna
í fyrstu deildinni í
körfubolta í síðustu
viku. Eftir góðan sigur
á Hamri í íþróttahús-
inu við Vesturgötu síð-
astliðið fimmtudags-
kvöld, 93:75, töpuðu
þeir naumlega 70:71
fyrir Ísfirðingum á
sama stað á sunnu-
dag. Úrslitin í þeim
leik komu á óvart þar sem Ísfirð-
ingar eru næstneðsta liðið í deild-
inni og í mjög erfiðri stöðu að halda
sínu sæti í deildinni. Við ósigurinn
féll ÍA niður í fimmta sæti og á tvo
erfiða leika eftir í deildarkeppninni.
Fyrst gegn FSU á Selfossi næst-
komandi fimmtudagskvöld og síð-
an fá Skagamenn topplið Hatt-
ar í heimsókn föstudagskvöldið
20. mars. ÍA er engu að síður með
öruggt sæti í úrslitakeppninni.
Leikur Skagamanna og Ísfirðinga
var mjög sveiflukennd-
ur. Ísfirðingar byrjuðu
betur og voru yfir eftir
fyrsta leikhluta 27:23.
Skagamenn tóku
við sér í öðrum leik-
hluta og höfðu fimm
stiga forustu í hálf-
leik 47:42. Ísfirðing-
ar komu grimmir til
seinni hálfleik og jafnt
var fyrir lokafjórðung-
inn 56:56. Háspenna
var síðan á lokakaflanum og leikn-
um lauk eins og áður segir með eins
stigs sigri Ísfirðinga, 70:71. Mestu
munaði fyrir Ísfirðinga að ná að
halda Jamarco Warren í skefjum en
hann skoraði óvenjulítið eða 24 stig
í leiknum, Fannar Freyr Helga-
son og Áskell Jónsson skoruðu 13
stig hvor, Ómar Örn Helgsson 10,
Magnús Bjarki Guðmundsson 5,
Birkir Guðjónsson 3 og Þorleifur
Baldvinsson 2.
þá/ Ljósm. jho.
Sveifluvika hjá Skaga-
mönnum í körfuboltanum
Skallagrímsmenn
fallnir í fyrstu deild
Snæfell kemst ekki
í úrslitakeppnina
Úr leik Snæfells og Tindastóls í síðustu
viku. Ljósm. sá.
Öruggur sigur Snæfellskvenna á KR
Skagamenn lögðu Grindvíkinga
Sigruðu Stjörnuna í blaki
Aron Fannar í sveiflu á mótinu.
Skagamaður Íslandsmeistari
í Keilu með forgjöf
Aron Fannar og Þórunn Stefanía, Ís-
landsmeistarar í keilu með forgjöf.