Skessuhorn - 11.03.2015, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Máttur kvenna í útrás
til Tansaníu
Háskólinn á Bifröst vinnur nú að
því viðamikla mennta- og þró-
unarverkefni að flytja námskeið-
ið „Máttur kvenna“ út til Afríku.
Í fyrsta fasa verður efnalitlum kon-
um í þorpinu Bashay í Norður-
Tansaníu veitt ókeypis menntun.
Markmiðið er að búa þær tækjum
til að koma auga á viðskiptatæki-
færi í nærumhverfi sínu og færni til
að koma þeim í framkvæmd. Verk-
efnið var kynnt síðastliðinn föstu-
dag á opnum fundi í húsakynn-
um Háskólans á Bifröst í Reykja-
vík. Um leið var félagið Women
Power stofnað en það mun í sam-
starfi við Háskólann á Bifröst reka
verkefnið.
Nærri þúsund íslenskar konur
hafa numið í námskeiðinu Mátt-
ur kvenna sem Háskólinn á Bifröst
hefur haldið úti í áratug en því er
ætlað að skóla konur til aukinnar
þátttöku í nýsköpun og atvinnu-
uppbyggingu. „Háskólinn á Bif-
röst telur sig ekki aðeins bera sam-
félagslega ábyrgð í heimabyggð
heldur einnig í heimsbyggð. Nú
þegar áratugar reynsla er komin á
þessa aðferð viljum við veita fleir-
um álíka tækifæri og aðlaga verk-
efnið að háttum heimamanna í
Afríku,“ segir í tilkynningu.
Samkvæmt nýrri skýrslu Ox-
fam á eitt prósent jarðarbúa nálega
helming auðs veraldar og tuttug-
asti hluti á 95% eignanna. Því mið-
ur er fátækt enn útbreidd eins og
raunin er víða í Afríku. En rann-
sóknir sýna að í baráttunni gegn
fátækt bítur menntunin best – með
menntun fær fólk tæki til að berj-
ast úr örbirgð til bjargálna.
mm
Þau komu fram á kynningarfundi sem haldinn var á vegum Háskólans á Bifröstu
um verkefnið í síðustu viku. F.v. Eiríkur Bergmann, Restituta Joseph, Elísabet
Ólafsdóttir og Magnús Árni Magnússon.
Hraðþjónustu-
námskeið
Í Arion banka Borgarnesi ��. mars
Á námskeiðinu fer starfsfólk okkar yfir möguleika
Arion appsins, netbankans og hraðbankanna og
hvernig hægt er að nýta þessar þjónustuleiðir sem
best til að bæta yfirsýn, spara tíma og sækja þá
þjónustu sem hentar.
Námskeiðið fer fram í útibúi bankans og stendur yfir
milli kl. �� og ��.
Gott er að koma með sína eigin tölvu og síma en á
staðnum verða einnig í boði nokkrar tölvur sem hægt
verður að nota. Ekki þarf að skrá sig á námskeiðið –
allir viðskiptavinir velkomnir.
RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is
Rafvirki í Borgarnesi
Starfssvið
Almenn störf við dreifikerfi
fyrirtækisins
Nánari upplýsingar veita Sturla Rafn Guðmundsson, deildarstjóri framkvæmdadeildar á Vesturlandi og
starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000. Umsóknarfrestur er til 23. mars n.k. og skal skila umsóknum
með ferilskrá á netfangið atvinnuumsokn@rarik.is.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og
annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar
vítt og breytt um landið.
Hæfniskröfur
Sveinspróf í rafvirkjun
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
rafveitustörfum.
RARIK óskar eftir að ráða rafvirkja til starfa á starfsstöð fyrirtækisins í Borgarnesi. Hér er um ölbreytt starf
að ræða við nýbyggingar, breytingar og viðhald á dreifikerfi RARIK á Vesturlandi.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is