Skessuhorn


Skessuhorn - 11.03.2015, Page 13

Skessuhorn - 11.03.2015, Page 13
13MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015 Stefnumótun og framtíðarsýn í íslenskri ferðaþjónustu S K E S S U H O R N 2 01 5 Markaðsstofa Vesturlands, í samvinnu við atvinnuvega - og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar, boðar til opins fundar um mótun stefnu og framtíðarsýnar í íslenskri ferðaþjónustu. Fundurinn verður haldinn 17. mars kl. 10:00 í Menntaskóla Borgarfjarðar Fundurinn verður haldinn 17. mars kl. 13:00 í Samkomuhúsinu Grundarfirði Fundurinn er öllum opinn og er einstakt tækifæri fyrir íbúa til að taka þátt í mótun stefnu og framtíðarsýnar íslenskrar ferðaþjónustu. Markmiðið er að byggja góðan grunn fyrir framtíð ferðaþjónustunnar og stuðla þannig að bættum lífskjörum í landinu. Miklar væntingar eru um víðtækt samstarf við mótun stefnunnar. Hlökkum til að hitta ykkur. Atvinnuvega - og nýsköpunarráðuneytið Samtök ferðaþjónustunnar Stjórn Öldrunarráðs Íslands (ÖRÍ) afhenti í síðustu viku fjóra rann- sóknastyrki úr styrktarsjóði vegna verkefna í öldrunarmálum. Meðal styrkþega var Hallveig Skúladóttir á Akranesi fyrir skýrslu um heilsufar, færni og þjónustuþörf einstaklinga sem njóta þjónustu heimahjúkrun- ar. Hallveig er meistaranemi við heilbrigðisdeild Háskólans á Ak- ureyri. Meðal annars skoðar Hall- veig heilsufar og færni einstaklinga sem njóta þjónustu heimahjúkr- unar, annars vegar á Heilbrigðis- stofnun Vesturlands á Akranesi og hins vegar á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki, auk þess að skoða vís- bendingar um þjónustuþörf. Hall- veig fékk 150 þúsund króna styrk til að vinna verkefnið. mm Lionsklúbbur Grundarfjarðar stóð fyrir árlegu kútmagakvöldi laugar- daginn 7. mars. Þá voru ýmsar kræs- ingar á borðum ásamt hinum hefð- bundnu kútmögum. Hver gómsæti fiskrétturinn á fætur öðrum og þar á meðal hin fræga hau- sastappa sem engan svík- ur. Það var þétt setið í sal Fjölbrautaskóla Snæfell- inga þar sem gestir tóku hraustlega til matar síns. Tilefni kvöldsins var söfn- un fyrir hjartahnoðtækinu Lúkasi fyrir sjúkrabílinn í Grundarfirði en Lions- klúbbur Grundarfjarðar heldur utan um söfnunina. Gríðarlega vel var mætt og er mætingin alltaf að aukast ár frá ári. Einnig var Lionsklúbburinn með happdrætti þar sem veislugest- ir gátu freistað gæfunnar en vegleg- ir vinningar voru í boði eins og svo oft áður. tfk Gunnar Njálsson formaður Skóg- ræktarfélags Eyrarsveitar rakst á þetta göngutjald í skógræktinni ofan við byggðina í Grundarfirði síð- astliðinn fimmtudag. Í því dvöldu tveir ungir ferðamenn sem höfðu reynt að brjótast vestur á Snæfells- nes gangandi í suðvestan byl deg- inum áður, en snúið við og leitað skjóls í skóginum. „Þeir voru eitt sólskinsbros og fannst þetta mik- ið ævintýri að kynnast þessu stór- brotna landslagi og óútreiknanlegu veðurfari,“ segir Gunnar, sem jafn- framt tók meðfylgjandi mynd. mm Nægjusamir ferðamenn Hallveig Skúladóttir og Pétur Magnússon, formaður ÖRÍ. Fékk styrk vegna rannsóknar um heilsufar Kútmagar og hausastappa fyrir hjartahnoðtæki

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.