Skessuhorn - 11.03.2015, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir kynningarfundum um
Sóknaráætlun Vesturlands. Fundirnir fara fram á eftirtöldum stöðum:
Akranesi Fundarsal bæjarstjórnar Stillholti 16-18, 16. mars kl. 17.00
Búðardal Dalabúð, 17. mars kl. 17.30
Grundarfirði Fjölbrautaskóla Snæfellinga, 18. mars kl. 16.30
Borgarnesi Bjarnarbraut 8, 18. mars kl. 20.00
Á fundunum verður kynnt ný Sóknaráætlun Vesturlands. Í tengslum við sóknaráætlun
þarf að móta framtíðarsýn fyrir Vesturland, skilgreina átaksverkefni og stofna Uppbygg-
ingarsjóð Vesturlands. Sjóðurinn mun úthluta styrkjum til nýsköpunar í atvinnulífi og
menningarmála og kemur í stað Vaxtarsamnings Vesturlands og Menningarsamnings
Vesturlands.
Allir velkomnir,
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Sóknaráætlun
Vesturlands
2015-2019
FÉLAGSFUNDUR
og AÐALFUNDUR
Félagsfundur verður haldinn í sal Stéttarfélags Vesturlands
Sæunnargötu 2a þann 17. mars nk. kl. 17:00.
Dagskrá fundarins er:
1. Málefni aðalfundar félagsins
2. Kjaramál
3. Önnur mál
Veitingar verða í boði á fundinum og happdrætti.
Aðalfundur KJALAR stéttarfélags verður
haldinn þann 25. mars 2015 kl. 17:00 í
Hótel KEA Akureyri
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Stjórnarkjör
3. Önnur mál
Veitingar og happdrætti.
Akureyri 3. mars 2014
Stjórn KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Aðalfundur Kaupfélags Borgfirðinga verður
haldinn að Hótel Borgarnesi fimmtudaginn
19. mars 2015 og hefst kl. 20:30
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum 1.
félagsins.
Önnur mál.2.
Skv. 14. gr. samþykkta KB þá hafa allir félagsmenn aðgang
að fulltrúafundum og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Borgarnesi, 6. mars 2015
Stjórn Kaupfélags Borgfirðinga.
Aðalfundur
Við höldum 1. vetrardag hátíðlegan og
blásum til veislu í Kaupfélagi Borgfirðinga
laugardaginn 25. október 2008 kl. 12-15
Flugger litir veita ráðgjöf og verða með tilboð
Mjólka kynnir vörur sínar
Kynning á hreinsiefnum frá Kemi
Kynning og tilboð á Kerckhaert
járningavörum, umboðsmaður
á staðnum, býður upp á ís
* Vetrarskeifurnar með
breiða teininum komnar *
Tískusýning á vetrarfatnaði,
tilboð á fatnaði frá 66°N
10 - 50 % afsláttur af völdum vörum
í versluninni
Royal Canin, glaðningur fylgir
öllum pokum af hunda-og kattamat.
Umboðsmaður á staðnum
Kaffi og rjómaterta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Alhliða garðyrkjuþjónusta
Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og trjáfellingar
Akranesi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Nýtt ungbarnablað á
íslensku frá Rauma
Opið:
Mánud. – föstud. kl. 9 – 18
Laugardaga kl. 11 - 15
Grensásvegi 46, 108 Reykjavík - Sími 511 3388
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Karl Arnar Arnarson framkvæmda-
stjóri Loftmynda ehf hafði sam-
band við ritstjórn Skessuhorns eft-
ir að hafa í síðustu viku lesið frétt
um viðbrögð forstjóra Landmæl-
inga Íslands við nýjum upplýsing-
um um að Ísland verði áfram skráð
103.000 ferkílómetrar þrátt fyrir
að Loftmyndir hafi reiknað út að
stærð landsins sé 102.592 ferkílótr-
ar. „Ástæða fréttarinnar, sem birt-
ist upphaflega inni á vef LMI, og
þið vitnið í, er sú að fyritæki mitt,
Loftmyndir ehf., hefur nýlokið við
að endurmæla strandlínu Íslands. Í
einfeldni okkar fannst okkur ástæða
til að láta vita af þessu út fyrir fyr-
irtækið, því við erum afar stolt
yfir þessum áfanga sem hefur ver-
ið bæði kostnaðarsamur og tíma-
frekur. Maður skildi ætla að svona
fréttum væri tekið fagnandi, bæði
vegna þess að upplýsingarnar eru
sannarlega réttari heldur en áður
hefur verið talið, þar sem þær eru
unnar eftir nákvæmari gögnum. En
ekki síður vegna þeirrar staðreynd-
ar að þessi endurmæling kostar ís-
lenska skattgreiðendur ekki krónu
á meðan að kortgrunnurinn is50,
sem vitnað er til í fréttinnni, tek-
ur til sín tugi milljóna af almannafé
árlega,“ segir Karl Arnar.
Hann segir að almennt séð hafi
Loftmyndir fengið afar jákvæð við-
brögð við þessari frétt um nýja
landstærð. „Til dæmis hafa aðilar
sem halda utan um og birta tölu-
legar staðreyndir haft samband
við okkur og viljað uppfæra sína
gagnagrunna. Sá aðili sem er op-
inberlega í forsvari fyrir landupp-
lýsingar á Íslandi, þ.e. LMÍ, bregst
hinsvegar við á afskaplega furðu-
legan máta. LMÍ gerir gerir bæði
lítið úr niðurstöðunni og véfeng-
ir aðferðirnar sem var beitt án þess
þó að vita neitt um þær. Út af fyr-
ir sig er það furðulegt að ekki skuli
vera birtar réttar upplýsingar um
stærð Íslands á heimasíðu LMÍ
og maður spyr sig hvort þetta eigi
við um aðrar upplýsingar þar líka.
Með slíkum vinnubrögðum er auð-
vitað verið að bjóða upp á misskiln-
ing. Margir leita eftir upplýsing-
um á vef stofnunarinnar og innan-
húss er til mæling sem segir Ísland
vera 102.592 km2, en á heimasíðu
LMÍ stendur samt 103.000 km2.
Af hverju er þetta svona,“ spyrn
Karl Arnar.
Að lokum bætir hann við að það
sé vel þekkt staðreynd meðal þeirra
sem stunda kortagerð að strandlína
á kortum er oft túlkunaratriði, eins
og réttilega er bent á í frétt Skessu-
horns. „Okkar aðferð við að teikna
strandlínuna er hinsvegar sam-
bærileg við þá sem almennt er not-
uð og m.a. af LMÍ. Það er því gjör-
samlega út í hött af LMÍ að vera
að gera lítið úr þeim aðferðum sem
við beittum. Viðbrögð LMÍ við
strandlínumælingunni benda til
þess að LMÍ finnist stofnunin eiga
einkarétt á svona málum og frábiðji
sér að einhverjir séu að fara inn á
þeirra verksvið og hvað þá að birta
þær upplýsingar opinberlega, sem
er út í hött i nútíma upplýsinga-
samfélagi,“ segir Karl Arnar Arn-
arson hjá Loftmyndum ehf.
mm
Skjáskot af Landeyjahöfn þar sem bláa línan er uppfærð strandlína frá Loftmyndum. Landeyjahöfn er dæmi um stað þar sem
strandlínan hefur breyst undanfarin ár.
Átelur að Landmælingar geri lítið úr nýj-
um upplýsingum um stærð landsins