Skessuhorn - 11.03.2015, Qupperneq 21
21MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
AUGLÝSING UM BREYTINGU Á AÐAL-
SKIPULAGI BORGARBYGGÐAR 2010-2022
OG NÝS DEILISKIPULAGS, ÍSGÖNG Í
LANGJÖKLI OG MÓTTAKA Á GEITLANDI
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 12.2.2015 að auglýsa til-
lögu að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 ásamt umhverfisskýrslu
vegna ísganga í Langjökli, þ.e. nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði. Jafnframt er
auglýst tillaga að deiliskipulagi ísganga í Langjökli ásamt umhverfisskýrslu. Auglýs-
ingin er á grundvelli greina 36. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um
umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Skipulagstillögurnar ásamt greinargerðum og umhverfisskýrslum voru kynntar á opnum íbúa-
fundi 11. febrúar 2015 í Borgarnesi. Gögnin munu liggja frammi í Ráðhúsi Borgarbyggðar
Borgarbraut 14, 310 Borgarbyggð frá og með 16. mars til og með 27. apríl 2015. Enn fremur
er hægt að skoða skipulagstillöguna á heimasíðu Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is.
Þeir sem hagsmuna eiga að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir við til-
löguna skulu vera skriflegar og þurfa að berast eigi síðar en 27. apríl 2015 til skipulags- og
byggingarfulltrúa Borgarbyggðar annað hvort í Ráðhús Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310
Borgarnesi eða á netfangið: lulu@borgarbyggd.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við skipu-
lagstillöguna teljast henni samþykkir.
Vakin er athygli á að Skipulagsstofnun kynnir tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Miðhá-
lendis Íslands 2015 frá 2. mars til 13. apríl vegna ofangreindrar breytingar, sbr. www.skipu-
lagsstofnun.is og www.borgarbyggd.is.
Lulu Munk Andersen,
Skipulags- og byggingarfulltrúi Borgarbyggðar.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
NT 35/1 Tact
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
NT 45/1 Tact Te
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
NT 55/1 Tact
Ryksugar blautt og þurrt
Fylgihlutir
NT 25/1 Ap
Ryksugar blautt
og þurrt
Fylgihlutir
Sjálfvirk
hreinsun á síu
Tengill
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 17. mars 2015
kl. 20:30
í Bókhlöðu Snorrastofu
Smalað og veitt á Arnarvatnsheiði
Bjarni Árnason frá Brennistöðum og Snorri Jóhannesson á Augastöðum gefa gaum
að slóðum og örnefnum heiðarinnar og segja sögur.
Umræður og kaffiveitingar
Aðgangur kr. 500
Fjallað verður um göngur á heið-
inni fyrir tíma mæðiveiki girð-
inga, mann virki og tóftir, sem
til heyra þeim og sagðar sögur
af erindum, sem Borgfirðingar
hafa átt til matar kistu sinnar
og drauma lands.
Atvinna
Búsetuþjónusta fatlaðra
Búsetuþjónusta fatlaðra í Borgarnesi auglýsir eftir hressu og
jákvæðu fólki sem er tilbúið til að aðstoða fólk með fötlun í
daglegu lífi, inni á heimilum og úti í samfélaginu.
Starfið er vaktavinna. Unnið er á morgun-, kvöld- og
helgarvöktum.
Um er að ræða hlutastarf frá og með 1. apríl og út sumarið,
möguleiki á áframhaldandi vinnu næsta vetur.
Einnig vantar afleysingar í sumar bæði á morgun, -kvöld- og
helgarvaktir, einnig á næturvaktir. Laun samkvæmt kjara-
samningum.
Nánari upplýsingar gefur Hulda Birgisdóttir í síma 893 9280,
kl. 8.00-16.00 virka daga.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Síðastliðinn sunnudag tóku Illugi
Gunnarsson menntamálaráðherra,
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi
forseti Íslands og Kristín Ingólfs-
dóttir rektor Háskóla Íslands, fyrstu
skóflustunguna að nýbyggingu fyr-
ir Stofnun Vigdísar Finnbogadótt-
ur í erlendum tungumálum við HÍ.
Byggingin mun rísa á horni Suður-
götu og Brynjólfsgötu í Reykjavík,
næst gömlu Loftskeytastöðinni, og
á að verða tilbúin í október 2016.
„Húsið á að rúma ýmsa starfsemi
sem miðar að því að auka þekkingu
á erlendum tungumálum og menn-
ingu og miðla henni sem víðast.
Þar verður til húsa Vigdísarstofnun
– alþjóðleg miðstöð tungumála og
menningar sem mun starfa undir
merkjum UNESCO. Hún er fyrsta
tungumálamiðstöð sinnar tegundar
í heiminum sem hlýtur slíkan sess. Í
byggingunni verður einnig aðstaða
til kennslu og rannsókna í þeim er-
lendu tungumálum sem kennd eru
við Háskóla Íslands og þekking-
armiðstöð þar sem leikir og lærð-
ir geta fræðst um erlend tungumál
og menningu á lifandi og skapandi
hátt,“ segir m.a. í tilkynningu frá
menntamálaráðuneytinu. mm
Veður var gott í Reykhólasveit á
sunnudaginn. Einn af fáum dög-
um sem vel hefur viðrað í um-
hleypingasamri tíð síðustu vik-
urnar. Fólk í sveitinni var samtaka
og sammæltist á feisbók um að
skreppa áleiðis upp á Þorskafjarð-
arheiði til að njóta blíðunnar, ný-
fallins snævarins og útiverunnar í
hægri sunnanátt og hita rétt und-
ir frostmarki. Margar fjölskyld-
ur komu saman uppi í Töglunum
með skíði og sleða og fleira til að
renna sér á. Sumir voru með vél-
sleða eða fjórhjól og allir skemmtu
sér vel. Að sjálfsögðu var kakó og
kaffi með í för og naut fólk hollr-
ar hreyfingar og útiveru. Her-
dís Erna Matthíasdóttir og Gústaf
Jökull Ólafsson á Reykhólum létu
Skessuhorni í té myndirnar sem
hér birtast en Reykhólavefurinn
greinir frá.
þá
Hefja byggingu húss erlendra tungumála
Leikið sér í snjónum uppi í Töglum