Skessuhorn - 11.03.2015, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015
Hestamannafélagið Glaður í Döl-
um hélt sitt árlega töltmót 28.
febrúar sl. í Nesoddareiðhöllinni.
Er þetta annað mót Glaðs í vet-
ur en 13. febrúar fór fram keppni
í Smala. Töltmótið er eina mót-
ið hjá Glað sem fullorðnir skiptast
í kvenna- og karlaflokk og hefur
það mælst ágætlega fyrir að brjóta
keppnishaldið upp með þessum
hætti. Heilmikil dagskrá er fram-
undan hjá félaginu en reiðnám-
skeið eru í fullum gangi og hvert
mótið á fætur öðru. Randi Holaker
frá Skáney er búin að koma tvær
helgar og kenna og á eftir að koma
tvisvar enn. Á námskeiðin kem-
ur fólk á öllum aldri og alltaf troð-
fullt sem er gleðilegt. Næsta mót
Glaðs er þrígangur í Nesoddareið-
höllinn sem fer fram 21. mars og þá
eru líka Hestadagar og mun félagið
bjóða alla velkomna á félagssvæðið
og vera með dagskrá í tilefni Hesta-
daga, nánar kynnt síðar.
Eins og síðustu ár er liðakeppni
haldin sem spannar fimm mót
félagsins og eftir tvö mót hefur lið-
ið norðan Fáskrúðar tekið tölu-
verða forystu með 84 stig en Búð-
ardalsliðið er með 64 stig og sveit-
in sunnan Fáskrúðar með 10 stig.
Glaður heldur úti öflugum vef sem
er mjög virkur, gladur.is og eru þar
allar upplýsingar um dagskrá, nið-
urstöður móta og starfsemi félags-
ins.
ss
Helstu úrslit í
töltmótinu voru:
Kvennaflokkur
1 Sjöfn Sæmundsdóttir, Lukka frá
Lindarholti, 5,33
2 Svanhvít Gísladóttir, Þorri frá
Lindarholti, 5,00 H
3 Svala Svavarsdóttir, Frami frá
Hvítadal, 5,00 H
4 Heiðrún Sandra Grettisdóttir,
Blævar frá Svalbarða, 4,83
5 Margrét Guðbjartsdóttir, Þór frá
Miklagarði, 4,67
Karlaflokkur
1 Skjöldur Orri Skjaldarson, Fjöl frá
Búðardal, 5,83
2 Þórarinn Birgir Þórarinsson, Ár-
vakur frá Litlu-Tungu II, 5,17 H
3 Valberg Sigfússon, Rán frá Stóra-
Vatnshorni, 5,17 H
4 Eyþór Jón Gíslason, Werner frá
Vatni, 5,00
5 Gilbert Hrappur Elísson, Búbót
frá Norður-Hvammi, 4,83.
Ungmennaflokkur
Hrönn Jónsdóttir, Næk frá Mikla-
garði, 4,50.
Unglingaflokkur
1 Laufey Fríða Þórarinsdóttir,
Skutla frá Hvítadal, 5,50
2 Einar Hólm Friðjónsson, Glói frá
Króki, 4,33.
Barnaflokkur
1 Birta Magnúsdóttir, Baldur Bald-
urss frá Búðardal, 4,00
2 Brynja Hólm Gísladóttir, Þrymur
frá Melabergi, 2,50
Pollar:
Aron Mimir Einarsson, Sleipnir frá
Hróðnýjarstöðum
Björn Kalman Þorgils Inguson,
Fönix frá Breiðabólsstað
Þórarinn Páll Þórarinsson, Skjól-
bakur frá Hvítadal.
Samkomulag hefur náðst milli stjórn-
valda og heildarsamtaka vinnumark-
aðarins um hvernig framlög úr rík-
issjóði til starfsendurhæfingarsjóða
skuli háttað. Þetta samkomulag mun
því binda enda á þá óvissu sem hópar
sem standa utan vinnumarkaðar hafa
þurft að sæta um þjónustu hjá VIRK-
starfsendurhæfingarsjóði. Samkomu-
lagið tryggir að öllum sem á þurfa
að halda er nú tryggð atvinnutengd
starfsendurhæfing til að verða virk-
ir á vinnumarkaði. Félags- og hús-
næðismálaráðherra mun fá fulltrúa í
stjórn VIRK.
Hannes G. Sigurðsson, formað-
ur stjórnar VIRK segir það mjög
ánægjulegt að aðilar vinnumarkað-
arins og ríkisstjórnin taki höndum
saman um að tryggja öllum starfs-
endurhæfingu því það sé ávísun á
betri vinnumarkað. Fólk sem hafi
lokið starfsendurhæfingu sé dýrmætt
fyrir atvinnulífið því kraftar þess geti
nýst vel. Óvænt áföll vegna veikinda
eða slysa setji oft strik í reikninginn
en VIRK hjálpi fólki að bæta líf sitt,
nýta styrkleika sína og komast út á
vinnumarkaðinn á ný.
mm
Fyrir hönd Grunnskólans í Borgar-
nesi þakka ég öllum þeim sem tóku
þátt í að gera Gleðileikana 2015 að
veruleika. Það er ómetanlegt fyr-
ir skólann okkar að vinna með for-
eldrum og öllu þessu frábæra fólki
sem tók á móti unglingunum okk-
ar í síðustu viku. Hér í skólanum
eru brosandi unglingar og ég veit
að hrósboxin eru verðmæti. Mörg
fyrirtæki styrktu Gleðileikana með
framlögum eða lánuðu starfsmenn
sem tóku að sér hópstjórn. Það er
ekki annað hægt að segja en að mál-
tækið „Það þarf heilt þorp til að ala
upp barn“ sé hafið til vegs og virð-
ingar í samfélaginu okkar með
Gleðileikunum.
Grunnskólinn í Borgarnesi er
samfélag og vinnustaður rúm-
lega 370 einstaklinga sem deila lífi
og leik á hverjum skóladegi. Gildi
skólans sjálfstæði – ábyrgð – virðing
og samhugur eiga að endurspeglast
í daglegum athöfnum okkar. Það er
mikilvægt að sýna umhverfi, sam-
ferðafólki og ekki síst sjálfum sér
virðingu og taka ábyrgð á gjörðum
sínum og vali. Þannig getur maður
bæði treyst á eigið sjálfstæði og sýnt
öðrum samhug í verki. Einkunnar-
orð Gleðileikana eru einmitt sjálf-
stæði, samvinna og gleði.
Það er mikilvægt að allir sem
tengjast skólanum upplifi sig vel-
komna inn í það samfélag sem skól-
inn er. Skólinn okkar er ekki eyland
heldur lifandi, virkur og skapandi
vettvangur innan Borgarbyggðar og
allir eru velkomnir að taka þátt og
móta starfið. Það er því mikils virði
þegar foreldrar koma inn í skóla-
starfið með Gleðileikana nú annað
árið í röð og brjóta upp skólastarfið
í samvinnu við kennara, starfsfólk
og ekki síst nemendur.
Virkt og skapandi samfélag er
samfélag sem fóstrar virka og skap-
andi hugsun og bíður upp á um-
hverfi sem hvetur til þátttöku og
félagslegrar virkni á milli ein-
staklinga og hópa. Það er einmitt
þannig sem ég sé fyrir mér skóla-
samfélagið í Borgarbyggð þróast.
Gleðileikarnir eru sannarlega einn
af þeim sprotum sem við þurfum að
vökva á þeirri vegferð.
Kærar þakkir til foreldrafélags
Grunnskólans í Borgarnesi og allra
þeirra sem tóku þátt í samfélags-
verkefninu Gleiðileikarnir 2015.
Signý Óskarsdóttir
Skólastjóri Grunnskólans
í Borgarnesi.
Opnuð hefur verið ný vefsíða um
franska lækninn, leiðangursstjórann
og heimskautafarann Jean-Baptiste
Charcot (1867 – 1936) sem endaði
ævi sína úti af Mýrum þegar leiðang-
ursskipið Pourquoi pas? fórst. Ferðir
vísindamannsins voru hágæða rann-
sóknaleiðangrar í Suður- og Norð-
urhöfum á fyrri hluta síðustu aldar,
þar sem fjölda sýna var aflað. Niður-
stöður þeirra rannsókna birtust í fjöl-
mörgum tímaritsgreinum og bókum.
Charcot og áhöfn hans á rannsókna-
skipinu Pourquoi-pas? voru því nán-
ast í samskonar rannsóknum eins og
kennarar og nemendur við Háskóla
Ísland eru í dag. „Það er því við hæfi
að minnast þessa merkilega manns,
áhafnar hans og rannsóknaskipsins
Pourquoi pas?, sem fórst við Íslands-
strendur, með fjölbreytilegum hætti,
m.a. með þessari heimasíðu,“ segir í
tilkynningu vegna opnunar nýju vef-
síðunnar.
Vefsíðan, sem er á íslensku og
frönsku, er hluti af hinu svokallaða
Charcot-verkefni sem var hleypt af
stokkunum árið 2005, en þá hófst
undirbúningur viðburða í tilefni að
árið 2006 voru sjötíu ár liðin frá því
franska rannsóknarskipið Pourquoi-
Pas? fórst. Þá var haldin ráðstefna
um Charcot í Háskóla Íslands. Í árs-
byrjun 2007 var viðamikil sýning
um hann og leiðangra hans opnuð
í Þekkingarsetri Suðurnesja í Sand-
gerði og síðan hafa fyrirlestrar um
Charcot og vísindalega arfleifð verið
haldnir árlega í samstarfi Háskóla Ís-
lands og Alliance française í Reykja-
vík. Meðal fyrirlesara má nefna
Jean-Christophe Victor, frá frönsku
Heimskautastofnuninni og Anne-
Marie Vallin-Charcot, dótturdóttur
Charcots.
Sjá nánar á http://charcot.is/
mm
Dag ur í lífi...
Háskólanema
Nafn: Birkir Guðmundarson
Starfsheiti/fyrirtæki: Nemi við
Háskóla Íslands.
Fjölskylduhagir/búseta: Ein-
hleypur með tímabundna búsetu í
foreldrahúsum.
Áhugamál: Allt milli himins og
jarðar. Alls kyns íþróttir (jafnt iðk-
un sem áhorf) og þjóðmálin eru þó
líklega efst á baugi.
Vinnudagurinn: Fimmtudagur-
inn 5. mars.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði kl. 6:40 þegar
vekjaraklukkan glumdi og við tók
erfiða barátta við snooze-takkann.
Þegar þeirri baráttu loksins lauk
um kortéri síðar, skellti ég mér í
sturtu.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Ég drakk eitt Hámark áður en ég
fór af stað og fékk mér svo skál af
hafragraut í fyrsta hléi í skólan-
um.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég ók af stað kl. 7:20 og
var mættur rétt áður en fyrsti tími
hófst kl. 8:20.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Þá var hlé og fékk ég mér einn
kaffibolla af því tilefni.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Ég
var búinn snemma í skólanum
þennan daginn og fór í hádegis-
verð á Galito með félögunum.
Hvað varstu að gera klukkan
14? Þá var ég mættur á Bókasafn
Akraness að læra.
Hvenær hættirðu og hvað var
það síðasta sem þú gerðir í
vinnunni? Ég tók mér kvöldmat-
arpásu en hætti svo ekki að læra
fyrr en um 22:30 – nóg að gera
þessa dagana.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Mamma, sem er frábær
kokkur, bauð upp á dýrindis kjúk-
lingarétt.
Hvernig var kvöldið? Kvöldinu
var eytt í Svöfusal á bókasafninu.
Þegar ég svo stóð upp frá bókun-
um og fór heim tók við smá sjón-
varpsgláp þar til svefninn loks kall-
aði um miðnætti.
Hvað stendur upp úr eftir dag-
inn? Heilt yfir frekar tíðindalítill
dagur og satt að segja ekkert sem
upp úr stóð í þetta skiptið.
Hannes G. Sigurðsson formaður stjórnar VIRK, Eygló Harðardóttir félags- og hús-
næðismálaráðherra og Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Öllum tryggð atvinnutengd
starfsendurhæfing
Takk fyrir að vera með í virku
og skapandi samfélagi!
Pennagrein Vefsíða opnuð um franska
vísindamanninn Charcot
Fjölbreytt starf Glaðs í Dölum
Efstu konur fengu verðlaunapeninga.
Verðlaunaafhending í karlaflokki.