Skessuhorn


Skessuhorn - 11.03.2015, Side 29

Skessuhorn - 11.03.2015, Side 29
29MIÐVIKUDAGUR 11. MARS 2015 Smiður á verkstæði á Akranesi Óskum eftir því að ráða smið eða mann vanan tölvustýrðum trésmíðavélum. Þarf að hafa brennandi áhuga á framleiðslu innréttinga. Um framtíðarstarf er að ræða. Algjört skilyrði að tala íslensku. Upplýsingar veitir Elli í síma 660-2470 eða á elli@verktaki. is. Vespa til sölu CNEN bensínknúin gangstéttarvespa til sölu. Er rauð á lit og vel með farin. Engar tryggingar eða próf. Upplýsingar hjá Pétri í síma 899-7416. Íbúð óskast á Akranesi Gamall Skagamaður sem er að koma heim óskar eftir lítilli íbúð til leigu á Akranesi. Upplýsingar í síma 663-7413. Óska eftir leiguhúsnæði Reglusamt par óskar eftir leiguhúsnæði i Borgarnesi. Við erum með gæludýr; hund og kött. Við skoðum allt. Þið getið hafið samband í síma 776-4151 eða netfang: skindbjerg_13@hotmail. com 27 ára einstæður faðir óska eftir íbúð Ég er 27 ára einstæður faðir sem vantar íbúð sem fyrst á Akranesi. Er með 10 mánaða gamlan strák. Íbúðin þarf helst að vera þriggja herbergja en tveggja eða fjögurra herbergja koma líka alveg til greina. Er í 100% starfi með öruggar greiðslur. Góð meðmæli, snyrtilegur og reyklaus! Endilega hafið samband í síma 774-7123 ef þið vitið eitthvað. Get flutt strax núna í mars. Leiguhúsnæði óskast Fjögurra manna fjölskylda óskar eftir fjögurra herbergja húsnæði í Borgarnesi frá og með júní eða júlí næstkomandi. Reglusöm og reyklaus. Upplýsingar í síma 868- 4278, Sævar Íbúð til leigu í Borgarnesi Fjögurra herbergja, 130 fermetra íbúð til leigu frá 1. apríl. Upplýsingar í síma 899-1574. Akranes - íbúð óskast Óska eftir að leigja eins til þriggja herbergja íbúð á Akranesi. Er 35 ára, rólegur, reglusamur og með góða greiðslugetu. Sími 659-9375. Húsnæði óskast í Borgarnesi Fjölskylda óskar eftir leiguhúsnæði í Borgarnesi. Erum reglusöm og skilvís. Upplýsingar sendist á netfangið: majahrund@simnet.is. Fjögurra manna fjölskylda óskar eftir íbúð Par með 2 börn og labradorhund óskar eftir íbúð til leigu frá maí/ júní. Erum reglusöm og skilvísum greiðslum er heitið. Hafdís, s:862- 0645. Leiguhúsnæði óskast Erum að leita eftir þriggja til fjögurra herbergja íbúð á Akranesi eða í Borgarnesi frá og með 1.júlí. Reglusemi, snyrtimennsku og skilvísum greiðslum heitið. Eydís, 8470-744. Óska eftir stól með setu ofna úr snæri Er að leita að stól, dönskum. Setan er ofin með úr snæri, sjá mynd. Upplýsingar í síma 696-2334 eða á ispostur@yahoo.com. Hásing Til sölu Hásing undan 700 kílóa fellihýsi á góðum dekkjum. Fæst á 20-25 þús. Upplýsingar í síma 661-8079. Handrið Til sölu Pílóra handrið. Tilvalið fyrir laghentan að smíða úr gerði eða bara eitthvað annað. 16 x 115 m. Upplýsingar í síma 661-8079. Mynd af Búðakirkju eftir Gunnlaug Blöndal Falleg vatnslitamynd eftir Gunnlaug Blöndal til sölu. Myndin er af Búðakirkju og Snæfellsjökli. Myndin er 53 x 72 sm. Með rammanum er hún 95 x 77 sm. Grétar, sími 6985115 eða gretarsigurdss@gmail.com. Ítölsk harmonikka Glæsileg ítölsk harmonikka til sölu. Kassi fylgir. Upplýsingar í síma 844-6665 Spádómar - Draumaráðningar Spái í gegnum síma alla daga eftir hádegi. Sími 555-2927/847-7596, Hanna. Stykkishólmur - miðvikudagur 11. mars Tónfundir á sal Tónlistarskóla Stykkishólms. Frá 18:00 leika nemendur Martins á málmblásturshljóðfæri, rafgítar og bassa og frá klukkan 19 leika nemendur Hafþórs á slagverkshljóðfæri. Allir velkomnir. Stykkishólmur - miðvikudagur 11. mars Snæfell mætir Val í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi kl. 19:15. Grundarfjörður - fimmtudagur 12. mars Opið hús í Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Grundarfirði kl. 17 - 18:30. Kynning á nýjum námsbrautum, inntökuskilyrðu m, kennsluumsjónarkerfi, mötuneyti, nemendafélaginu og fleira. Nemendur sem ljúka grunnskólanámi í vor og forráðamenn þeirra sérstaklega velkomnir. Borgarnes - fimmtudagur 12. mars Skallagrímsmenn taka á móti Tindastóli í síðasta leik deildarkeppni úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi kl. 19:15. Stykkishólmur - fimmtudagur 12. mars Snæfell mætir Grindavík í síðasta leik deildarkeppni úrvalsdeildar karla í körfuknattleik. Íþróttamiðstöðin Stykkishólmi kl. 19:15. Akranes - föstudagur 13. mars Karlakórinn Heimir úr Skagafirði heldur tónleika undir stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar organista í Tónbergi kl. 20:30. Miðasala við inngang. Aðgangseyrir er kr. 3.500. Dalabyggð - föstudagur 13. mars Félagsvist kvenfélagsins Fjólunnar í Árbliki kl. 20:00. Aðgangseyrir er kr. 800, frítt fyrir 14 ára og yngri. Kaffiveitingar að spilamennsku lokinni. Stykkishólmur - laugardagur 14. mars Stelpurnar okkar, ný dagsetning! Leikur Snæfells og Hauka í úrvalsdeild kvenna sem átti að fara fram þann 25. febrúar en var frestað vegna veðurs verður leikinn í íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi kl. 15. Borgarbyggð - laugardagur 14. mars Skálmöld á Sögulofti í Landnámssetrinu í Borgarnesi Einar Kárason og dóttir hans Júlía Margrét flytja saman söguna í formi eintala kl. 20 og aftur daginn eftir, sunnudaginn 15. mars klukkan 16. Dalabyggð - sunnudagur 15. mars Laxdæla fyrir börn. Barnvæn sögustund á Laugum í Sælingsdal klukkan 15. Einkum verður fjallað um Laxdælinga í Laxdælu. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir fullorðna en frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Allir velkomnir. Akranes - mánudagur 16. mars Skógarspjall á vegum Skógræktarfélags Akraness í Fjölbrautaskóla Vesturlands kl. 20. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, skógfræðingur og framkvæmdastjóri Vesturlandsskóga, fjallar um skógrækt og gefur góð ráð. Allir hjartanlega velkomnir. Borgarbyggð -þriðjudagur 17. mars Fyrirlestrar í héraði: Smalað og veitt á Arnarvatnsheiði. Bjarni Árnason frá Brennistöðum og Snorri Jóhannesson á Augastöðum gefa gaum að slóðum og örnefnum heiðarinnar og segja sögur í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti kl. 20:30. Umræður og kaffiveitingar að fyrirlestri loknum. Aðgangseyrir er kr. 500. Á döfinni Markaðstorg Vesturlands Nýfæddir Vestlendingar ÝMISLEGT 2. mars. Stúlka. Þyngd 3.465 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Björg Ragnarsdóttir og Guðlaugur Hrafnsson, Akranesi. Ljósmóðir: Soffía G. Þórðardóttir. ÓSKAST KEYPT TIL SÖLU HÚSBÚNAÐUR / HEIMILISTÆKI LEIGUMARKAÐUR BÍLAR/VAGNAR/KERRUR Garðaþjónustan Sigur-Garðar Tökum að okkur alla almenna skrúðgarðavinnu Sindri Arnfjörð garðyrkjumaður - Laufskálum 311 Borgarbyggð Netfang: sindri@vesturland.is - Vinnusími: 892-7663 Hellulagnir - Hleðsla - Þökulagnir - Jarðvegsskipti Trjáklippingar - Gróðursetningar - Garðsláttur - Plöntusala Þjónusta í 25 ár SK ES SU H O R N 2 01 5 GRUNDARGÖTU 30, 350 GRUNDARFIRÐI SÍMI: 430 8500, FAX: 430 8501 Grundarfjarðarbær Kynningarfundur Samkvæmt 2.mgr. 30 gr. og 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr.123/2010 er hér auglýstur kynningarfundur á eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagstillögu. Aðveitustöð – aðalskipulagsbreyting Aðveitustöð – deiliskipulagstillaga Meginmarkmið aðalskipulagsbreytingarinnar og deiliskipulagstillögunnar er að bæta afhendingaröryggi raforku á svæðinu með færslu tengivirkis í aðveitu- stöð og lagningu jarðstrengja, auk þess að færa tengivirki fjær íbúðarbyggð. Markmiðið er einnig að breytingin valdi sem minnstri röskun á umhverfinu til lengri og skemmri tíma. Kynningarfundurinn verður í Ráðhúsi Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, föstudaginn 13. mars 2015 milli klukkan 16:00 og 16:30. Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði. SK ES SU H O R N 2 01 5 Ástkær unnusti, sonur, bróðir, mágur og frændi, Magnús Kristján Magnússon sem lést af slysförum í Noregi þann 24. febrúar verður jarðsunginn frá Reykholtskirkju laugardaginn 14. mars klukkan 13:00. Marlen Lillevik Magnús Magnússon Björg Ólafsdóttir Inger Oddfríður Traustadóttir Magnús Þór Þórisson Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir Páll Vignir Þorbergsson Þorvarður Trausti Magnússon Sigurlaug Kjartansdóttir Eyjólfur Magnússon Auður Margrét Ármannsdóttir Andrea Magnúsdóttir Stefán Teitsson Sigurlaug Magnúsdóttir uppeldis- og frændsystkini. 5. mars. Drengur. Þyngd 3.410 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Eva Björk Sigurðardóttir og Rene Jenke, Búðardal. Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir. 9. mars. Drengur. Þyngd 3.590 gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Soffía Sóley Þráinsdóttir og Ragnar Ólason, Kjalarnesi. Ljósmóðir: Elísabet Harles/ Jóhanna Rut Hafsteinsdóttir. Getir þú barn þá birtist það hér, þ.e.a.s. barnið! www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.