Skessuhorn


Skessuhorn - 15.04.2015, Qupperneq 6

Skessuhorn - 15.04.2015, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2015 Sú breyting varð nýverið á aðstöðu Framsóknarfélags Akraness að félagsheimilið við Sunnubraut var leigt til búsetu. Búið er að fjarlægja skilti og merkingar af húsinu. Eng- in merki að sjá lengur um tengsl Framsóknarflokksins við húsið. Bæjarmálafundir félagsins á Akra- nesi, sem um áratuga skeið fóru fram í þessu húsi, hafa nú um tíma verið haldnir heima hjá Ingibjörgu Pálmadóttur bæjarfulltrúa flokksins og verða það áfram. Valdmar Þor- valdsson formaður Framsóknar- félags Akraness segir að samt standi ekki til að selja húsið. Það sé ein- ungis í leigu. Þrátt fyrir að ekki hvíli skuld- ir á félagsheimilinu hafi það verið þungt í rekstri. Ekki hafi til dæm- is hentað að leigja það fyrir minni samkomur því húsið er inni í íbúða- hverfi og meira að segja íbúð á efri hæð hússins. Valdimar segir að starfsemi í stjórnmálafélögum hafi breyst ansi mikið síðustu árin og áratugina. Ekki sé lengur til stað- ar blaðaútgáfa og annað sjálfboða- liðastarf sem aflaði tekna og stóð undir rekstri hjá félögunum. Litlar tekjur séu því að koma inn á milli kosninga. Því hafi sú ákvörðun ver- ið tekin að leigja húsið út. þá Margir vegfarendur gáfu því gaum í síðustu viku að skurð- grafa á flotpramma var að störf- um úti á Borgarfirði sunnan við Borgarnes á móts við Seleyri. Í ljósi frétta í Skessuhorni af góð- um aflabrögðum á þorski við vestanvert landið nú eftir áramót höfðu gárungarnir það á orði að nú hlyti þorskaflinn að vera orð- inn slíkur að menn þyrftu gröfu til að moka þeim gula upp. Svo var þó ekki. „Við höfum verið að grafa prufuholur fyrir Orkuveituna. Við fórum um og grófum ofan í botninn meðal annars til að kanna hvað væri langt gegnum sandlag- ið á honum og niður á fast. Þetta er gert til hægt sé að finna bestu leið til að leggja útrásarlögn sem á að vera frá dælustöð Orkuveit- unnar í Brákarey. Þetta er und- irbúningur fyrir það að koma þessari stöð í gagnið. Það er ekki djúpt niður á fast hérna fyrir utan,“ fékk blaðamaður Skessu- horn upplýst hjá galvöskum hópi verktaka og tæknifræðinga sem voru að ljúka störfum sínum á bryggjunni í Borgarnesi síðdeg- is á fimmtudag. mþh Hús Framsóknarfélagsins við Sunnu- braut á Akranesi. Framsóknarhúsið á Akranesi fær nýtt hlutverk Þau sem unnu að verkinu f. v. Kjartan Hauksson (Djúptækni), Sól- veig Kristín Sigurðardóttir (Verkís), Halldór Sigurðsson (HSS Verktak), Halldór Sverrisson (Djúptækni) og Guðjón Jónasson (Verkís). Skurðgrafa á Borgarfirði Grafan á flotprammanum við störf úti á Borgarfirði framan við Hótel Hafnarskóg í síðustu viku. Ljósm. Þorleifur Geirsson. Slys og tólf bílar skemmdir HOLTAV.H: Fjöldi ökutækja lenti í samstuði með tilheyrandi öngþveiti og tveir karlmenn slösuðust þegar öskubylur gekk yfir Holtavörðuheiði síðdegis á sunnudaginn. Einn maður lenti undir flutningabíl og var fluttur undir læknishendur til Reykja- víkur. Hann var í fyrstu talinn alvarlega slasaður en reyndist svo ekki vera það. Þá lenti lög- reglumaður sem kom á vettvang einnig fyrir bíl og kastaðist um tíu metra við höggið út fyrir veg. Slasaðist hann heldur ekki en var fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga. Alls lentu tólf ökutæki í árekstrum við Mikla- gil á heiðinni og greinilegt að of geyst var ekið miðað við aðstæð- ur. Björgunarsveitir, lögreglu- menn og sjúkfraflutningamenn komu af vettvang auk kranabíla, en sex bílanna voru óökufærir eftir árekstrana. Björgunaraðil- ar komu úr Borgarnesi, Borgar- firði, Dölum og úr Húnavatns- sýslum. –mm Nýr innheimtu- fulltrúi BORGARBYGGÐ: Borgar- byggð hefur ráðið Helgu Mar- gréti Friðriksdóttur í stöðu inn- heimtufulltrúa. Helga hefur lokið BA námi frá Háskólanum á Bifröst og hefur góða reynslu af innheimtu- og þjónustustörf- um. Þá hefur hún einnig unnið við ýmis verslunar- og þjónustu- störf og tekið fjölbreytt nám- skeið sem snúa að samskiptum og þjónustu við viðskiptavini, segir á heimasíðu Borgarbyggð- ar. –mþh Styrkir úr Upp- byggingarsjóði VESTURLAND: Frestur til umsókna í Uppbyggingasjóð Vesturlands rennur út 22. apríl næstkomandi. Veittir verða styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar, verkefnastyrkir á sviði menningar og stofn- og rekstrarstyrkir menningarmála. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Samtaka sveitarfé- laga á Vesturlandi, www.ssv.is undir flipanum „Uppbygginga- sjóður.“ -eha Tilnefningar til bæjarlistamanns AKRANES: Árlega útnefnir Akraneskaupstaður bæjarlista- mann til eins árs í senn. Menn- ingar- og safnanefnd Akranes- kaupstaðar ákvað á fundi sín- um 31. mars sl. að opna fyrir tilnefningar og er þar almenn- ingi gefinn kostur á að taka þátt í að tilnefna næsta bæjarlista- mann Akraness. Menningar- og safnanefnd mun fara yfir all- ar tilnefningar og verða niður- stöður kynntar á þjóðhátíðar- daginn 17. júní við hátíðlega at- höfn. Um leið og opnað er fyrir tilnefningar er fólk hvatt til að kynna sér vel þær reglur sem í gildi eru um bæjarlistamann. Reglurnar má sjá á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Tilnefning- arfrestur er til og með 15. maí nk. Núverandi bæjarlistamaður Akraness er Erna Hafnes list- málari. –þá Fasteignamarkað- urinn að styrkjast VESTURLAND: Fjöldi þing- lýstra kaupsamninga um fast- eignir á Vesturlandi var 60 í marsmánuði, eða um tvær á dag. Samkvæmt því er mark- aðurinn að vaxa talsvert frá því sem verið hefur undanfarin misseri. Flesta mánuði á síðasta ári var þannig algengt að seldar væru 30 fasteignir á mánuði. Í mars á þessu ári voru 30 samn- ingar gerðir um eignir í fjölbýli, 12 samningar um eignir í sér- býli og 18 samningar um ann- ars konar eignir. Heildarvelt- an var 1.306 milljónir króna í þessum viðskiptum og meðal- upphæð á samning 21,8 millj- ón króna. Af þessum 60 kaup- samningum voru 35 um eignir á Akranesi. Þar af var 21 samn- ingur um eign í fjölbýli, níu samningar um eignir í sérbýli og fimm samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 741 milljón króna og meðal- upphæð á samning 21,2 milljón króna. –mm Margir of hratt VESTURLAND: Alls hafa 6.666 brot verið mynduð á fyrsta ársfjórðungi þessa árs með staf- rænum hraðamyndavélum í landinu en þær eru í umsjón Lögreglustjórans á Vesturlandi. Sex ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í umdæmi LVL í liðinni viku. Á sama tíma, eða á einni viku, var enginn tekinn fyrir ölvun við akstur en það hefur ekki gerst áður að sögn lögreglu. –þá Hættir sem forstöðumaður STYKKISH: Hildigunnur Jó- hannesdóttir hjúkrunarfræð- ingur og forstöðumaður Dval- arheimilis Stykkishólms hef- ur sagt upp störfum frá 1. apríl. Hún hefur þriggja mánaða upp- sagnarfrest þannig að reikna má að ráðið verði aftur í stöðuna á sumri komanda. -mþh

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.