Skessuhorn


Skessuhorn - 15.04.2015, Page 19

Skessuhorn - 15.04.2015, Page 19
19MIÐVIKUDAGUR 15. APRÍL 2015 Aðalfundur Sambands borgfirskra kvenna var haldinn í félagsheim- ilinu Lyngbrekku fimmtudags- kvöldið 9. apríl síðastliðinn. Á fundinn mættu 26 konur af starfs- svæðinu sem nær yfir Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Aðildarfélög- in eru ellefu og í þeim eru alls 233 konur. En félögin eru misjafnlega fjölmenn, allt frá því að vera með sjö og upp í 40 konur í félagi. Kven- félögin vinna fjölbreytt og óeigin- gjarnt starf í þágu samfélagsins. Má þar nefna margskonar samkomur sem kvenfélögin standa fyrir, svo sem félagsvist, jólatrésskemmtanir, heimsóknir í Brákarhlíð og fleira. Oft liggur mikil vinna að baki þess- um verkefnum. Staðið er að margskonar fjáröfl- un og afraksturinn rennur þá til ýmissa góðgerðarmála. Kvenfélög- in eru vinsæl þegar kemur að kaffi- veitingum. Oft er leitað til þeirra vegna erfidrykkja, með fundarkaffi, réttarkaffi og fleiri samkomur. Á síðasta ári gáfu félögin hátt í tvær milljónir króna í ýmis verkefni. Styrkir hafa til að mynda runnið til dvalarheimila, leikskóla, grunn- skóla, björgunarsveita, íþróttafé- laga, krabbameinsfélaga, Fjöliðj- unnar, MND félagsins, auk ann- arra félaga og stofnana. Kvenfélög- in láta gjarnan lítið yfir sér, þrátt fyrir að þau gefi veglegar peninga- upphæðir til góðra málefna. SBK gaf til dæmis Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands 500.000 kr. Þá var samþykkt á ný- afstöðnum aðalfundi að SBK gæfi 200.000 kr. til hvors dvalarheimil- is á starfssvæðinu, þ.e. til Höfða á Akranesi og Brákarhlíðar í Borgar- nesi. Þeir peningar eru ætlaðir til tækjakaupa. Þrátt fyrir að kvenfélögin leggi mikla áherslu á að afla fjár og skemmta sveitungum sínum, er líka tími fyrir skemmtanir og upplyft- ingu fyrir félagskonur. Kvenfélög eru því góður vettvangur fyrir kon- ur til að kynnist betur. Fjölskylduskemmtun í Reykholti 22. apríl Næsta verkefni SBK er að halda upp á 100 ára kosningaafmæli kvenna. Blásið verður til fjöl- skylduskemmtunar í Reykholts- kirkju síðasta vetrardag 22. apríl klukkan 20.30. Dagskráin verður fjölbreytt. Þarna kemur m.a. fram ungt tónlistarfólk og sagnakona. Svo fáum við að heyra um það sem málið snýst um; upphaf kosninga- réttar kvenna - fyrsta konan sem kosin var á þing á Vesturlandi seg- ir okkur frá þeirri upplifun sinni. En sjón er sögurríkari - vonandi koma sem flestir til að fagna þess- um áfanga og gaman væri að flest- ir sem gætu klæddu sig uppá og mættu á íslenska búningnum. Og auðvitað verður kaffi og meðlæti á boðstólnum. -fréttatilkynning Anna Nilsson, sem ættuð er frá Svíþjóð, hefur dvalið í tvær vikur í Frystiklefanum í Rifi við æfingar á nýjum dansi sem hún svo frum- flutti svo á föstudagskvöldið síð- asta. „Þetta er í fyrsta skiptið sem ég sýni ein dans,“ sagði Anna í sam- tali við fréttaritara eftir sýninguna. „Í þessum dansi var ég að finna línu milli dansa og spannaði ferðalag á milli stöðupunkta og prufaði nýjar hreyfingar eins og í einu atriðinu sem ég kallaði fatlaða kjúklinginn,“ sagði Anna. Hún hefur búið í Brus- sel í 15 ár og rekur þar fyrirtæki í listsköpun. Hún kveðst hafa reynt ýmislegt í listinni. „Þegar ég bjó í Svíþjóð stundaði ég loftfimleika í sirkus en hætti því vegna þess að það var einfaldlega of hættulegt.“ Kári Viðarsson eigandi Frysti- klefans segir að margt verði um að vera í sumar í Frystiklefanum. Til að mynda verða tónleikar á sumar- daginn fyrsta, 23. apríl, með hljóm- sveitinni Mammút og þar mun Alda Dís hita upp. Er miðasala í fullum gangi á miði.is. „Það verður örugg- lega uppselt enda hafa bæjarbú- ar sýnt þessum tónleikum mikinn áhuga,“ sagði Kári. af Nafn: Sigríður Hrund Hálf- danardóttir. Fjölskylduhagir/búseta: Í sambúð með Hafþóri Jóni Jak- obssyni húsasmíðameistara. Við eigum þrjú börn saman. Þau eru Ísak Jakob 22 ára, Áki Freyr 18 ára og Eva Huld 15 ára. Síðan eigum við tvo hunda, Ronju og Pjakk. Ég bý í Borgarnesi. Starfsheiti/fyrirtæki: Ég er þroskaþjálfi og starfa í Grunn- skólanum í Borgarnesi. Áhugamál: Ég hef gaman að útiveru, fer oft í göngutúra með hundana mína. Einnig finnst mér mjög gaman að hjóla, sér- staklega langa hjólatúra. Ég stunda líkamsrækt og jóga. Þeg- ar ég hef tíma heima þá finnst mér mjög notalegt að lesa góða bók og að prjóna. Dagurinn: Miðvikudagur 8. apríl 2015. Þetta er hefðbundinn dagur að mestu, ég var að kenna til klukkan 13:30 og síðan tók við undirbúingur fyrir næsta dag. Ég fór í ræktina eftir vinnu, síð- an tóku heimilisstörfin við þeg- ar heim kom. Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað var það fyrsta sem þú gerðir? Ég vaknaði kl. 06:30 og það fyrsta sem ég gerði var að bursta tennurnar og klæða mig. Hvað borðaðirðu í morgun- mat? Ég fékk mér AB mjólk með múslí og tók lýsi. Hvenær fórstu til vinnu og hvernig? Ég fór í vinnuna rétt fyrir kl. 8:00 og ég fór keyr- andi. Fyrstu verk í vinnunni? Fara upp á kennarastofu og ná mér í vatn til að hafa yfir daginn og gera mig tilbúna fyrir fyrsta nemanda dagsins. Hvað varstu að gera klukk- an 10? Þá var ég með nemanda í kennslu/þjálfun inni á Kletti sem er námsver fyrir börn á einhverfurófi. Ég var með hann í lestrarþjálfun og í fínhreyfi- vinnu. Hvað gerðirðu í hádeginu? Borðaði hádegismat uppi á kennarastofu, ég leyfi mér þann munað að fá mér heitan mat í hádeginu á miðvikudögum. Hvað varstu að gera klukk- an 14: Þá var ég að undirbúa kennslu fyrir næsta dag. Hvenær hætt og það síðasta sem þú gerðir í vinnunni? Hætti vinnu kl 15:30. Það síð- asta sem ég gerði var að ræða við umsjónarkennara eins barns sem ég kenni á yngsta stigi. Það skiptir miklu máli í mínu starfi að ég sé í góðu samstarfi við umsjónarkennara þeirra barna sem ég kenni. Hvað gerðirðu eftir vinnu? Ég fór beint niður í íþróttahús þar sem ég hitti einkaþjálfar- ann minn uppi í tækjasal. Sonur minn hann Áki Freyr er á þriðja ári í MB á náttúrufræðibraut á íþróttasviði. Þetta er liður í hans námi að taka einhvern í einka- þjálfun og ég var svo heppin að hann vildi taka mömmu sína í það verkefni. Hvað var í kvöldmat og hver eldaði? Það var soðinn fiskur með kartöflum og rófum. Það var Hafþór sem eldaði. Hvernig var kvöldið? Ég fór á fund í Ljómalind, sem er sveita- markaður við Sólbakka í Borg- arnesi sem ég rek ásamt níu öðrum konum héðan úr Borg- arfirðinum. Við erum að undir- búa flutning á búðinni, því við ætlum að færa okkur meira inn í bæinn. Við vorum svo heppnar að fá leigt húsnæði við hliðina á Framköllunarþjónustunni og nú þurfum við að fara að ákveða hvernig við ætlum að hafa búð- ina því við opnum á nýja staðn- um þann 1. maí. Hvenær fórstu að sofa? Ég fór ekki að sofa fyrr en kl. 23:30. Hvað var það síðasta sem þú gerðir áður en þú fórst að hátta? Ég las nokkra kafla í bók sem heitir Ástandsbarnið eftir Camillu Läckberg. Hvað stendur uppúr eftir dag- inn? Góður dagur í vinnunni eins og alltaf því ég er svo hepp- in að mér finnst eiginlega alltaf gaman með nemendunum mín- um og samstarfsfólki. Eitthvað að lokum? Þakklát fyrir fjölskylduna mína og hvað ég hef verið lánssöm í lífinu. Dag ur í lífi... þroskaþjálfa í Borgarnesi Fréttir frá Sambandi borgfirskra kvenna Svipmynd frá aðalfundi SBK í Lyngbrekku. Hér er Anna að hita upp fyrir sýninguna í Frystiklefanum. Sýndi dans í Frystiklefanum

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.