Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2015, Side 2

Skessuhorn - 01.07.2015, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 20152 Fjölmörg smærri mál VESTURLAND: Helst er það að frétta úr dagbók Lögregl- unnar á Vesturlandi eftir vikuna sem leið að þrír voru kærðir fyr- ir ölvun við akstur og einn fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þá voru 48 stöðvaðir vegna hraðaksturs. Fjögur umferðaró- höpp urðu í umdæmi LVL í vik- unni, þar af tvö þar sem minni- háttar meiðsl urðu á fólki. Sex önnur minniháttar slys urðu, þar með talið vinnuslys og óhapp þar sem börn urðu und- ir grjóti í Borgarnesi. Frá því er greint á öðrum stað í blaðinu í dag. -mm Makríls orðið vart í Faxaflóa VESTURLAND: Makríllinn virðist ætla að gefa sig í ár þó hann sé seinna á ferð á grunn- slóð við Vesturland en undan- farin ár. Stóru veiðiskipin eru í ágætri veiði í Skerjadýpi suð- vestur af landinu en voru áður suður af Vestmannaeyjum. Um helgina fréttist síðan af góðri markílveiði við bryggjuna í Garðinum á Reykjanesi. Eng- um sögum fer hins vegar enn af makríl við Snæfellsnes. -mþh Hvalveiðar hafnar VESTURLAND: Skip Hvals hf., Hvalur 8 og Hvalur 9, héldu á miðin frá Hvalfirði síðdeg- is á sunnudaginn. Bæði skip- in veiddu sitthvora langreyð- ina svo að kvöldi mánudagsins djúpt vestur af Reykjanesi. Búist var við að þau kæmu til Hval- fjarðar í gærkvöldi, þriðjudag. Það er því ljóst að hvalskurð- ur kemst á fullt í Hvalstöðinni í þessari viku. Heimilt er að veiða 150 langreyðar á þessari ver- tíð auk óveiddra dýra af kvóta síðustu vertíðar. Veiðarnar og vinnslan skapa mikla vinnu yfir sumartímann auk þess sem fjöldi manna hefur starfað við endurbætur í hvalstöðinni og við hvalbátana í vetur. -mþh Þrír um stöðu skólameistara FSN GRUNDARFJ: Umsóknar- frestur um stöðu skólameistara við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði rann út föstu- daginn 5. júní sl. Mennta- og menningarmálaráðuneyti bár- ust þrjár umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru: Hrafnhild- ur Hallvarðsdóttir, Sigurlína H. Styrmisdóttir og Vala Ósk Bergsveinsdóttir. Miðað er við að menntamálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi, að fenginni um- sögn skólanefndar. –mm Göngustígur lagfærður upp að Glymi HVALFJ: Undanfarnar vik- ur hafa sjálfboðaliðar á veg- um Umhverfisstofnunar unnið að umbótum við göngustíg inn að fossinum Glymi í Hvalfirði. Verkefnið er styrkt af Fram- kvæmdasjóði ferðamannastaða. Mikill fjöldi ferðamanna geng- ur upp að Glym á ári hverju. –mþh Nokkrar bæjarhátíðir verða á landinu um næstu helgi. Þar á meðal verða tvær á Vesturlandi, Írskir dagar á Akranesi og Ólafsvíkurvaka í Snæfellsbæ. Hátíðirn- ar hefjast næstkomandi fimmtudag og standa yfir alla helgina. Þar ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, enda verður fjölbreytt dagskrá á báðum stöð- um. Dagskrá Írskra daga má finna í mið- opnu blaðsins. Á fimmtudag spáir norðaustlægri átt, 5-10 m/s og víða rigningu, einkum aust- anlands. Hiti 5 til 12 stig. Hægari vindur verður suðvestan- og vestanlands og úr- komulítið. Hiti 10 til 16 stig. Á föstudag verður fremur hæg austlæg átt og skýjað að mestu, en skúrir á stöku stað. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast í innsveitum. Á laugardag verða áframhaldandi austlægar áttir, 5-10 m/s og þurrt og bjart að mestu. 8-13 m/s syðst og dálitlar skúrir. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðan- og vestanlands. Útlit er fyrir austan- og norðaustan átt á sunnu- dag og mánudag. Dálítil væta sunnan- og austantil en annars skýjað með köfl- um. Hiti 8 til 19 stig og áfram verður hlýj- ast á Vesturlandi. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns: „Hefur þú gróðurofnæmi?“ Fæstir sem svöruðu sögðust hafa mikið ofnæmi, eða 7,72%. „Já, dálítið“ sögðu 22,22%. „Held ekki“ svöruðu 14,51% þeirra sem tóku þátt. Langflestir telja sig örugglega ekki hafa gróðurofnæmi, eða 55,56%. 825 tóku þátt í könnuninni. Í þessari viku er spurt: Myndir þú nýta Sundabraut gegn gjaldi? Við tilnefnum duglegu krakkana í ung- lingavinnunni á Vesturlandi sem Vest- lendinga vikunnar. Þeir eiga það skilið og flokksstjórarnir þeirra líka. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Sett hafa verið upp ný hlið við þjóðveginn beggja vegna við mörk þjóðgarðsins Snæfellsjökuls að sunnanverðu og norðanverðu. Þau marka hvar vegfarendur koma inn í þjóðgarðinn og svo út úr hon- um aftur handan Jökuls. Gestir eru boðnir velkomnir við komuna og síðan kvaddir með virktum þegar þeir yfirgefa þjóðgarðinn. Hliðin eru hönnuð af Ingu Rut Gylfadótt- ur. Stálhluti þeirra er smíðaður af Teknís ehf. Undir þeim eru hleðslur úr hraungrýti. Þær voru hlaðnar af Sigurbirni Ingvarssyni. Kostnaður við gerð hliðanna er á bilinu fjórar til fimm milljónir króna. Stóraukin umferð Mikil umferð hefur verið um þjóð- garðinn það sem af er sumri og miklu meiri en á sama tíma í fyrra. Einsýnt er að ferðafólki hefur fjölg- að mjög á Snæfellsnesi á þessu ári samanborið við í fyrra. Fjöldi gesta sem koma í gestastofu þjóðgarðsins á Hellnum er ágæt viðmiðun þeg- ar mat er lagt á aukninguna. Alls heimsóttu 40% fleiri gestastofuna í maí í ár miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þá voru að meðaltali 52 gestir á dag en í ár var þetta meðal- tal 72 gestir á dag í þessum mánuði. Sömu tölur fyrir júnímánuð eru 110 gestir í fyrra en 149 að meðal- tali daglega í ár. Það er 35% aukn- ing. „Liðin vika dregur tölurnar að- eins niður í júnímánuði hjá okkur því þegar veður er gott þá sjáum við að það dregur úr heimsóknum í gestastofuna og á sýninguna þar. Fólk kýs skiljanlega frekar að vera útivið,“ segir Guðbjörg Gunnars- dóttir þjóðgarðsvörður í samtali við Skessuhorn. Fjölbreytt dagskrá Guðbjörg segir að í nægu hafi ver- ið að snúast í þjóðgarðinum það sem af er sumri. „Já, það er búið að vera fullt að gera hjá okkur. Við höfum haft ýmsa viðburði á dag- skrá nú í júní og fleiri verða nú í júlí og ágúst. Það er bryddað upp á ýmsu. Þann 15. ágúst ætlum við til dæmis að bjóða upp á ferð með pólskri leiðsögn. Það búa fjölmarg- ir Pólverjar hér á Snæfellsnesi og Vesturlandi og okkur langar að til að kynna þeim hvað landið hefur upp á að bjóða. Í þeirri ferð verð- ur gengið frá Djúpalónssandi yfir í Dritvík og farið í Tröllakirkju en út í hana er aðeins hægt að komast í miklu útfiri.“ Fornleifarannsóknir sem und- anfarin ár hafa staðið yfir í gömlu verstöðinni að Gufuskálum verða teknar upp að nýju í júlímánuði. Þær eru innan þjóðgarðsins. „Þar verður svokallaður opinn dagur 22. júlí þar sem fólk getur kom- ið og kynnt sér hvaða verk er verið að vinna þar. Dagskrá þjóðgarðsins má annars finna á heimasíðu okkar snaefellsjokull.is. Ég hvet fólk til að kynna sér hana og íhuga heimsókn í þjóðgarðinn því hér er margt að sjá,“ segir Guðbjörg Gunnarsdótt- ir þjóðgarðsvörður. mþh Svokölluð skýjaljós eru tískubylgja sem virðist færast í vöxt að fólk noti hér á landi þrátt fyrir að ekki sé mælt með því sökum eldhættu. Skýjaluktir eru kínversk ljósker sem gerð eru úr pappír og innihalda vaxkubb eða annað eldfimt efni sem kveikt er í. Við það fyllist luktin af heitu lofti, sem veldur því að luktin hefst á loft og getur verið býsna fal- leg. Skýjaluktin helst aðeins á lofti eins lengi og loginn logar. Vanda- málið við luktina er hins vegar það að ekki er hægt að hafa stjórn á hvert hún fer eða hvar hún lendir. Það kemur fyrir að luktir hafa enn verið logandi þegar þær hafa fallið til jarðar og valdið íkveikju á húsum og í gróðri. „Þessar luktir geta auðveldlega kveikt gróður- og jarðvegselda sem illmögulegt er að ráða við,“ seg- ir Bjarni Kristinn Þorsteinsson slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð. Hann fékk nýverið mynd í hend- ur sem sýnir brúðhjón hér á landi sleppa nokkrum svona skýjaljósum upp í loftið yfir þurrum mosajarð- vegi. Bjarni vill koma á framfæri hvatningu til fólks að nota alls ekki ljós af þessu tagi hér á landi. „Við hjá slökkviliði Borgarbyggðar og félagar okkar víðsvegar um land- ið höfum þurft að glíma við mikla gróðurelda á síðustu árum. Það eru verkefni sem við viljum vera sem allra mest lausir við. Þá geta gróð- ureldar auðveldlega farið úr bönd- unum og stefnt lífi í voða og kveikt í mannvirkjum, til dæmis í heilu sumarhúsahverfunum. Þess vegna hvet ég fólk til að nota alls ekki þessi skýjaljós. Þau eru fyllt með eldfim- um vökva, kveikt í og sleppt upp í loftið. Enginn veit hvar þau lenda eða hverjar afleiðingarnar geta orð- ið. Að nota þau er því álíka mikið ábyrgðarleysi og að henda logandi efni inn um bréfalúgur hjá fólki,“ segir Bjarni Kristinn. mm Eitt af þekktari kennileitum Ham- arsvallar í Borgarnesi undanfarin fimmtán ár hefur verið CocaCola dósin svokallaða sem stendur við 12. holu vallarins og blasað hef- ur við vegfarendum. Nú hafa hins vegar undur og stórmerki gerst. Gamli súrheysturninn er orðinn að appelsíndós, kennileiti fyrir helsta samkeppnisaðila Coca Cola á Íslandi. mm Egils appelsíndósin, gamli súrheysturn- inn eins og hann lítur nú út. Ljósm. sa. Súrheysturninn sem varð að kókdós er nú appelsíndós Súrheysturninn sem varð að kókdós er nú appelsíndós. Kókdósin eins og hún leit út síðustu fimmtán árin. Skýjaljós ættu að vera bönnuð hér á landi Ekið út úr þjóðgarðinum um hliðið að sunnanverðu. Vegfarendum er óskað góðrar ferðar á íslensku og ensku. Ný hlið sett upp við þjóðgarðinn Snæfellsjökul

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.