Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2015, Side 8

Skessuhorn - 01.07.2015, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 20158 Lífslíkur með þeim mestu í Evrópu LANDIÐ: Árið 2014 var meðalævilengd karla á Ís- landi 80,6 ár og meðalævi- lengd kvenna 83,6 ár. Meðal- ævilengd sýnir hve mörg ævi- ár einstaklingur á að meðal- tali ólifuð við fæðingu, ef mið- að er við aldursbundna dán- artíðni mannfjöldans. Ald- ursbundin dánartíðni hefur lækkað á undanförnum ára- tugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði leng- ur en reiknuð meðalævilengd segir til um. Frá árinu 1985 hafa karlar bætt við sig rúm- lega sex árum og konur rúm- lega fjórum árum í meðalævi- lengd. Sé horft á tíu ára tíma- bil, 2004-2013, var meðalævi karla á Íslandi og í Sviss 79,1 ár og skipuðu þeir fyrsta sæt- ið meðal Evrópulanda. Fast á hæla þeim komu karlar frá Svíþjóð og Liechtenstein (78,5 ár). Stysta meðalævilengd evr- ópskra karla er í Eistlandi (68,8), Lettlandi (66,4) og Litháen (66,1). Á sama tíu ára tímabili, 2004-2013, var með- alævi kvenna í Frakklandi og á Spáni 84,1 ár og skipuðu þær fyrsta sætið í Evrópu. Á eft- ir þeim koma konur frá Sviss (83,8), Ítalíu og Liechten- stein (83,6) og Íslandi (82,7 ár). Meðalævilengd kvenna er styst í Búlgaríu (76,8), Make- dóníu (76,3) og Serbíu (76,1 ár). –mm Aflatölur fyrir Vesturland 20. júní - 26. júní Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 13 bátar. Heildarlöndun: 21.402 kg. Mestur afli: Rán AK: 2.424 kg í þremur löndunum. Arnarstapi 4 bátar. Heildarlöndun: 7.735 kg. Mestur afli: Ríkey MB: 2.923 kg í fjórum löndunum. Grundarfjörður 6 bátar. Heildarlöndun: 68.907 kg. Mestur afli: Grundfirðingur SH: 53.712 kg í einni lönd- un. Ólafsvík 15 bátar. Heildarlöndun: 129.073 kg. Mestur afli: Egill SH: 31.144 kg í þremur löndunum. Rif 13 bátar. Heildarlöndun: 143.331 kg. Mestur afli: Rifsnes SH: 63.540 kg í einni löndun. Stykkishólmur 24 bátar. Heildarlöndun: 84.018 kg. Mestur afli: Íris SH: 8.979 kg í fimm löndunum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Rifsnes SH – RIF: 63.540 kg. 22. júní 2. Grundfirðingur SH – GRU: 53.712 kg. 20. júní 3. Egill SH – ÓLV: 15.448 kg. 23. júní 4. Magnús SH – RIF: 9.816 kg. 24. júní 5. Guðmundur Jensson SH – ÓLV: 9.391 kg. 22. júní mþh Saga Jarðvangur í evrópsku samstarfi BORGARFJ: Tvö evrópsk samstarfsverkefni í Borgar- byggð hafa hlotið styrk úr NPA; Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins. Um er að ræða tvö aðskilin verkefni. Saga jarðvangur er í samstarfi við jarðvanga á Írlandi, Norð- ur-Írlandi, Noregi, Skotlandi, Rússlandi, Kanada og hina jarðvanga Íslands, Reykja- nes geopark-Iceland og Katla geopark-Iceland, að vinna að verkefni sem nefnist Drifting Apart. Markmið verkefnisins er efling og uppbygging jarð- vanga í tengslum við sjálf- bæra ferðaþjónustu og efl- ingu rannsókna og fræðslu um jarðfræði jarðvanga. Þess má geta að fyrsta fundi verk- efnisins lauk nú nýverið á Norður-Írlandi. Hitt verk- efnið er í fóstri hjá Símennt- un Háskólans á Bifröst og Borgarbyggð og eru hluti af samstarfsverkefni háskóla, sveitarfélaga, samtaka sveit- arfélaga og svæðisskrifstofa í þátttökulöndum, Írlandi, Sví- þjóð, Finnlandi og Noregi. Frá því verkefni var greint í síðasta Skessuhorni. –arg Aflaverðmæti jókst verulega í mars LANDIÐ: Verðmæti afla upp úr sjó nam rúmum 19,1 milljarði króna í mars, 51,5% meira en í mars 2014. Veg- ur þar þyngst aflaverðmæti loðnu sem nam rúmum 4,9 milljörðum samanborið við 1,1 milljarð í mars 2014. Afla- verðmæti botnfisks nam rúm- um 13,1 milljarði í mars sem er 22,7% aukning frá fyrra ári. Þorskurinn er sem fyrr verð- mætastur botnfisktegunda en aflaverðmæti hans var rúmir 8,7 milljarðar í mars og jókst um tæp 30% samanborið við mars 2014. Aflaverðmæti ís- lenskra skipa á tólf mán- aða tímabili frá apríl 2014 til mars 2015 nam tæpum 150 milljörðum og jókst um 6,6% miðað við sama tímabil ári áður. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 27,1% milli tímabil- anna, og munar þar mest um loðnu og kolmunna. Einn- ig jókst verðmæti þorsks um 15,5%. –mm Veiðin í Þverá og Kjarará í Borg- arfirði hefur verið ágæt það sem af er og laxar virðast vera að ganga í ána á hverjum degi. Lax númer tvö hundruð kom á land um helgina, en þeir félagarnir Stefán Krist- jánsson og Tryggvi Hafstein voru við Kirkjustreng í Þverá á laugar- dagsmorguninn og veiddi Tryggvi Hafstein flottan lax, eins og sést á meðfylgjandi mynd. Kjarará hefur einnig verið að gefa vel. Þá er fyrsti laxinn kominn á land úr Reykjadalsá í Borgarfirði. Byrj- unin í Grímsá hefur verið fremur róleg. Á laugardaginn voru sex lax- ar komnir á land. gb Þverá komin yfir 200 laxa Hítaráin fer frekar rólega af stað í ár. Eftir þrjú holl, voru níu laxar komn- ir á land. Veiðimenn hafa þó sett í eina 15 – 20 laxa að auki, sem hafa náð að rífa sig lausa, en áin er gríð- arlega vatnsmikil og köld. Laxinn er að taka laust og jafnvel glefsa bara í endahárin á túpum veiðimanna. Bjarni Júlíusson var að koma úr sinni árlegu fjölskylduveiðiferð í Hítará. Þau náðu fjórum löxum og misstu þrjá fiska til viðbótar. Ein- ungis einn smálax var í aflanum. Bjarni sagði að hann væri greini- lega ekki mættur og það væri dálítið áhyggjuefni. Reyndar var þessi eini smálax sem fékkst, mjög vel hald- inn, feitur og pattaralegur. Hann var 52cm langur. ,,Það er búið að vera óvenju hlýtt undanfarið og mikil snjóbráð í gangi. Áin er köld og vatnsmikil,“ sagði Bjarni Júlíusson í samtali við Skessu- horn. „Það var svo mikið vatnið að Breiðin var alveg óveiðandi. Kverk- in hélt hins vegar fiski ágætlega. Á fyrstu vaktinni gekk þetta mjög vel. Við fengum fallegan þriggja punda sjóbirting. Þá komu tvær glæsilegar hrygnur. Júlíus Bjarni landaði fiski sem var um 80cm. Sá tók 1/2“ svarta frances keilu í Kverkinni. Þetta var vel haldin hrygna. Frú Þórdís bætti um betur og landaði 83cm hrygnu sem líka tók í Kverkinni. Þessi tók Sunray með keilu. Ofboðslega fal- legur fiskur, sennilega um 12 – 14 pund.“ Sem fyrr segir voru aðstæður erf- iðar, áin mjög vatnsmikil og köld. „Hún sjatnaði ekkert á þessum tveimur dögum, það var svo mik- il sólbráð í gangi. Við mældum ekki vatnshita, en mér er til efs að hita- stigið hafi náð 8°C. Ég held að það sé ekki mikið af fiski gengið upp Brúarfoss. Við reyndum þessa helstu staði fyrir ofan, en urðum ekkert vör við fisk þar,“ sagði Bjarni. gb Hítará fer rólega af stað Júlíus Bjarni með strákana á árbakkanum. Hjálparsveinarnir þeir Hafþór Bjarni og Sigurjón Bjarni bræður hans og svo sá gamli sem fékk að vera með. „Ég er ekki búin að veiða neitt, er bara að reyna,“ sagði Tinna Brynj- arsdóttir, ung Skagadama, sem var við veiðar í Elliðavatni ásamt afa, ömmu og bræðrum sínum á veiði- degi fjölskyldunnar á sunnudag- inn. Margir veiðimenn mættu við vötnin á sunnudaginn en frítt var að veiða í á fjórða tug vatna um allt land á árlegum veiðidegi fjöl- skyldunnar. gb Margir reyndu fyrir sér á veiðidegi fjölskyldunnar „Fyrsta hollið, þrjár stangir, veiðir í einn og hálfan dag og er þeg- ar komið með sjö laxa og einn silung,“ sagði Magnús Fjelds- ted, veiðivörður og formaður Veiðifélags Gljúfurár, í samtali við Skessuhorn, en áin var opn- uð klukkan sjö í bítið síðastlið- inn fimmtudag. „Í fyrra tók fimm daga að ná þessum fjölda þannig að þetta er nokkuð flott byrjun á laxveiðisumrinu. Þegar eru komn- ir yfir 30 laxar í gegnum teljarann þannig að það er fiskur um alla á. Þetta fer því allt saman mjög vel af stað,“ bætir hann við. Teljarinn í Gljúfurá mælir einn- ig lengd laxanna sem ganga í ánna. Í fyrra var stærsti laxinn 109cm og þrátt fyrir mikla leit veiddist hann ekki. Nú þegar er stærri lax en það genginn í Gljúfurá. „Það er kom- inn í gegnum teljarann sá stærsti sem við munum eftir, hann er 116cm. Það er risalax í ánni,“ seg- ir Magnús. „Menn fóru um alla á í gær og í morgun að leita að hon- um en hann er ekki fundinn enn.“ Í fyrra veiddust 167 laxar á hundrað veiðidögum í Gljúfurá. Að sögn Magnúsar er því góðs viti að fyrsta holl hafi sett í átta fiska. Frekar mikið vatn er í ánni og er veiðivörðurinn bjartsýnn um framhaldið. „Við eigum von á góðu laxveiðisumri. Nánast allir dagar fram í september eru seldir og menn eru fullir bjartsýni,“ seg- ir Magnús að lokum. kgk „Það er risalax í ánni!“ Við Svuntuna í Gljúfurá. Sigurður Skúli Bárðarsson árnefndarmaður í Gljúfurá segir opnunina hafa verið góða, átta laxar komið á land þegar upp var staðið og tveir sjóbirtingar að auki. „Sumarið lítur því vel út í Gljúfurá,“ sagði Sigurður Skúli í samtali við Skessuhorn.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.