Skessuhorn - 01.07.2015, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 201516
Í bakgarði við Vesturgötu 80 á
Akranesi býr Huginn, fallegur og
gæfur hrafn. Eigandi Hugins er
Sigmundur Heiðar Árnason en
fuglinn fann hann ósjálfbjarga fyr-
ir nokkrum vikum. „Við félagarnir
vorum að labba við Sementsverk-
smiðjuna fyrir rúmum þremur vik-
um og fundum þar tvo hrafnsunga
á jörðinni. Annar þeirra var tals-
vert laskaður á væng þannig að við
tókum fuglana í fangið og gengum
með þá heim. Við vissum ekki hvað
þeir voru gamlir en þeir voru lík-
lega nýdottnir úr hreiðrinu. Þeir
voru enn með dún og ekki komnir
með flugfjaðrir,“ segir Sigmundur í
samtali við Skessuhorn. Hrafnarn-
ir Huginn og Muninn hafa stækk-
að og dafnað á þessum vikum og
Muninn hefur jafnað sig í vængn-
um. Þeir búa í nágrenni við hvorn
annan á neðri Skaga og hafa það
gott. Sigmundur segir Huginn vera
mjög gæfan og kelinn. „Hann vill
vera innan um fólk og er mjög for-
vitinn. Ef ég er inni að smíða þá
heyrir hann hávaðann og kemur
inn og kíkir á mig.“
Hrafninn og hundurinn
bestu vinir
Á heimilinu býr einnig hundurinn
Herkúles, sem virðist ánægður með
nýja fjölskyldumeðliminn. „Herkú-
les er af terrier tegund og ætti því
ekki að vingast við fugla. En þeir
eru bestu vinir, þó að hrafninn stríði
honum stundum,“ segir Sigmund-
ur. Mikil læti voru í Hugin á meðan
blaðamaður spjallaði við Sigmund.
Hann gargaði hátt og vildi fá at-
hygli. „Hann er svangur,“ segir Sig-
mundur og gefur fuglinum fæði úr
sprautu og einn bita af hundamat.
Við það róast hrafninn og sest á öxl
eigandans. Huginn er enginn gikkur
og tekur við flestu. „Við gefum hon-
um meðal annars egg, bláber, banana
og fleira. Hann étur allt,“ segir Sig-
mundur. Huginn er mestmegnis á
vappi í kringum húsið á daginn en á
nóttunni sefur hann inni í hálfgerðu
hreiðri sem eigandinn hefur útbúið.
„Hann fær að valsa um og við lok-
um hann ekki inni í neinu búri. Hann
glápir á hænurnar í næsta garði, skoð-
ar allt, rífur plastpoka og slítur upp
öll blóm,“ segir Sigmundur og hlær.
Hann bætir því við að þegar Huginn
verði fleygur geti hann farið að vild
og komið heim til að borða, ef hann
kýs það. „Planið er að smíða pall fyr-
ir hann hérna úti, þar sem hann getur
haldið til og étið. En hann tekur svo
ákvörðun sjálfur um hvað hann vill
gera þegar hann verður fleygur.“ Sig-
mundur segir hrafnana ekki grimma
og verst sé hversu gæfir þeir verða.
„Hann er aðeins farinn að flögra um,
aðallega yfir í næstu garða. Hann
lét sig hverfa í hálfan sólarhring um
daginn en skilaði sér svo sjálfur heim.
Hann getur alveg séð um sig sjálf-
ur. En hér á hann heima og það væri
gott ef það kæmist til skila til fólks að
fóðra hann ekki, heldur skila honum
frekar heim að Vesturgötu 80 ef hann
finnst á vappi einhvers staðar.“
grþ
Hrafnarnir Huginn og Muninn búa á Akranesi
Huginn og Sigmundur Heiðar nutu veðurblíðunnar í síðustu viku.
Hrafninn Huginn og hundurinn Herkúles eru mestu mátar.
Huginn varð þreyttur eftir viðtalið en stillti sér upp fyrir myndatöku áður en hann
lagði sig.
Sigurbjörg Ein-
isdóttir lista-
maður opnar
fimmtudaginn
2. júlí klukkan
17 myndlistar-
sýningu á jarð-
hæð stóra vit-
ans á Akranesi.
Sýninguna nefn-
ir hún „Úr ýms-
um áttum“ og er hún sambland af ol-
íuverkum og grafíkmyndum. Við opn-
un sýningarinnar verða léttar veiting-
ar í boði og allir velkomnir.
Sigurbjörg Einisdóttir (Sibba)
fæddist árið 1954. Ung fluttist hún til
Bandaríkjanna. Þar gerðist hún eig-
andi hágreiðslustofunnar Christop-
her´s Salon í Los Angeles og rak hana
í áratug. Þá hóf hún nám í kvikmynda-
gerð við American Film Institute og er
með meistarapróf (MA) í kvikmynda-
framleiðslu þaðan. Hún hefur starfað
við kvikmyndagerð bæði í Kaliforníu
og hér á Íslandi. Um aldamótin vatt
Sibba kvæði sínu í kross og ákvað að
gerast myndlistarmaður. Hún er með
vinnustofu í Auðbrekku 6, 200 Kópa-
vogi. „Í verkum hennar ægir saman
kyrrð og ólgu íslenskrar náttúru. Að-
ferðir Sibbu eru nýstárlegar þar sem
hún notar meðal annars hárþurrku,
olíugrunn, ösku og kaffikorg við list-
sköpun sína. Þetta verður sjöunda
einkasýning hennar, auk fjölda sam-
sýninga. Þetta er hins vegar í fyrsta
sinn sem Sibba sýnir utan höfuðborg-
arsvæðisins.“
mm
Opnar myndlistarsýningu í vitanum
Fyrirtækið Ritari.is er ungt fyrirtæki
sem staðsett er við Stillholt á Akra-
nesi. Fyrirtækið býður upp á heildar-
lausnir í skrifstofumálum og sérhæf-
ir sig á sviði ritaraþjónustu, símsvör-
unar, úthringinga, bókhaldsþjónustu
og stofnunar og reksturs fyrirtækja.
Eigendur Ritara.is fengu nýverið
styrk að upphæð 2,5 milljónir króna
frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands.
Styrkurinn er til þróunar á nýjum
sérsmíðuðum hugbúnaði. Að sögn
Ingibjargar Valdimarsdóttur fram-
kvæmdastjóra Ritara.is mun hug-
búnaðurinn nýtast í símsvörun fyr-
ir viðskiptavini fyrirtækisins. „Hann
mun aðstoða við að halda betur utan
um gögn, setja meiri nákvæmni í
áframsendingu símtala, senda skila-
boð og mun gera allt sjálfvirkara
og nákvæmara án þess þó að sleppa
persónulegu snertingunni. Kjarna-
starfsemi fyrirtækisins er að svara
símanum fyrir önnur fyrirtæki. Við
sinnum símsvörun fyrir rúmega 90
fyrirtæki í dag úr öllum greinum at-
vinnulífsins, víðsvegar af landinu og
það er ansi mikið magn af upplýs-
ingum sem fylgja þessu umfangi.“
Ingibjörg segir að hugbúnaðurinn
muni auðvelda starfið verulega þar
sem honum sé gert að halda utan
um allar þær upplýsingar sem starfs-
menn Ritara þurfa að hafa til að geta
svarað fyrir þau fyrirtæki sem nýta
sér símsvörunarþjónustu fyrirtækis-
ins. Ingibjörg segir styrkinn ákveðna
viðurkenningu á gæðum verkefn-
isins og virkni hugbúnaðarins sem
mun bæta gæði og virkni símsvör-
unar til muna þegar hann verður
fullgerður.
Vilja opna
útibú erlendis
Fyrirtækið Ritari.is var stofnað
2008. Ingibjörg segir fyrirtækið hafa
vaxið hægt en sé skuldlaust og hafi
því eingöngu vaxið af rekstrarfé.
„Við erum stöðugt að leita að hug-
myndum til að fyrirtækið geti hald-
ið áfram að vaxa. Við vildum komast
upp á næsta þrep og þetta var ein af
þeim hugmyndum sem komu upp,“
segir hún. Ingibjörg segir að þró-
un og smíði kerfisins sé komin vel
af stað. Hugbúnaðurinn sé hann-
aður með það fyrir augum að hann
uppfylli þarfir hvers fyrirtækis fyrir
sig. „Hann er í raun sérsniðinn að
þörfum okkar viðskiptavina og gef-
ur okkur í framhaldinu möguleika á
að opna svona þjónustuver hvar sem
er. Hugbúnaðurinn er nánast tilbú-
inn. Það á aðeins eftir að slípa það til
en við vonumst til að ná að innleiða
þetta nýja kerfi í sumar og að allt
verði tilbúið í haust. Þá er hægt að
snúa sér að næsta skrefi og gera við-
skiptaáætlun fyrir næsta markað.“
Ingibjörg segir að til standi að
sækja aftur um styrk þegar búið er
að innleiða kerfið og sníða alla van-
kanta af því. „Okkur langar að opna
lítið útibú annað hvort í Skandi-
navíu eða Bretlandi, sem Ritari hér
heima geti bakkað upp. Það þarf
ekki mikla yfirbyggingu til viðbót-
ar í svona útibú erlendis og því ætti
að vera auðvelt að halda áfram að
stækka fyrirtækið hérna heima með
því að manna útibú erlendis að hluta
til með starfsfólki búsettu á Íslandi
og þá sér í lagi á Akranesi.
grþ
Þróa sérsmíðaðan hugbúnað í símsvörun
Ingibjörg Valdimarsdóttir fram-
kvæmdastjóri Ritara.is.