Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2015, Síða 22

Skessuhorn - 01.07.2015, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 201522 Sumarlesari vikunnar Líkt og síðustu ár gengst Bóka- safn Akraness fyrir sumarlestri fyrir börn. „Ekkert býr barnið betur undir lífið en góð lestr- arfærni og fæst hún ekki nema með ástundun,“ segja starfs- menn bókasafnsins við Dal- braut á Akranesi og hvetja börn- in til að skrá sig til sumarlesturs. Vikulega verður valinn heppinn sumarlesari og rætt við hann hér í Skessuhorni. Nú eru sumarles- ararnir tveir, þau Vigdís Birna og Nökkvi: Lesari vikunnar 12.6: Hvað heitir þú og hvað ertu gamall/gömul? Ég heiti Vigdís Birna og ég er 7 ára. Hvaða bók varstu/ertu að lesa? Ég var að lesa Mary Popp- ins og söguna um Malla mont- rass. Hvernig var/er hún? Þær voru bara skemmtilegar. Hvernig bækur finnst þér skemmtilegastar? Mér finnst allavega Disney bækur skemmti- legar og líka ævintýri. Hvar er best að vera þegar maður er að lesa? Uppi í rúmi hjá mömmu. Áttu þér uppáhalds bók eða uppáhalds rithöfund? Ég veit það ekki alveg, uppáhaldsbók..., já, Litlu greyin (eftir Guðrúnu Helgadóttur). Hvað ætlar þú að verða þeg- ar þú verður stór? Ég ætla að vinna í skóla. Lesari vikunnar 25.06: Hvað heitir þú og hvað ertu gamall/gömul? Ég heiti Nökkvi Snorrason og ég er 9 ára. Hvaða bók varstu/ertu að lesa? Ég var að lesa Óvættaför númer 7. Hvernig var/er hún? Þetta eru mjög skemmtilegar bækur og þær eru stundum mjög spenn- andi. Hvernig bækur finnst þér skemmtilegastar? Óvættaför eru eiginlega skemmtilegustu bækur sem ég hef lesið. Hvar er best að vera þegar maður er að lesa? Það er best að vera uppi í rúmi. Áttu þér uppáhalds bók eða uppáhalds rithöfund? Sóla er uppáhalds rithöfundurinn minn og hún er líka frænka mín. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég hef ekki mikið verið að spá í því. Hannibal Hauksson hefur starf- að sem ferðamálafulltrúi hjá Akra- neskaupstað í rúmt ár. Skessuhorn heyrði í Hannibal og fór yfir stöð- una í ferðamálum á Akranesi. Hann segir að stöðug aukning ferða- manna hafi verið á Akranesi und- anfarið ár, sem komi kannski ekki á óvart í ljósi þess að fjöldi ferða- manna hefur aukist um allt land. „Það var markmiðið að fjölga gest- um á Akranesi og það hefur geng- ið ágætlega. Nú er stefnan sett á að lengja dvölina þeirra líka,“ segir Hannibal. „Við erum bæði að herja á innlenda og erlenda gesti. Íslend- ingar skipta nefnilega ekki minna máli en erlendir ferðamenn,“ bætir hann við. Hann segir að hugmynd- in sé að nýta það sem fyrir er, þá geti ferðamenn notið og nýtt það með heimafólki. „Ég vil gera út á það sem er ekta, ekki neinn sýndar- veruleika. Ef maður nýtir það sem fyrir er, þá nýtist það öllum - bæði heimamönnum og ferðamönnum. Einkaframtakið má svo að sjálf- sögðu koma með nýjar hugmyndir og gera það sem það vill.“ ÍA vörumerki Akraness Að sögn Hannibals hafa ferðaþjón- ustuaðilar á Akranesi fundið fyrir aukinni umferð ferðamanna und- anfarið. Þeir sem reki gistiaðstöðu séu í ágætis málum og að það hafi aukist að greitt sé með erlendum gjaldmiðli eða greiðslukortum á veitingahúsum. „Svo er ég oft niðri á Upplýsingamiðstöð sem er stað- sett við Akratorg. Þar sé ég að traff- íkin á Skökkina er góð, enda er kaffihúsið góð viðbót við það sem var hér fyrir. Í haust og vetur var einnig töluvert um að fyrirtæki úr Reykjavík kæmu hingað í dagsferð- ir og það hefur verið vinsælt hjá út- skriftarhópum leikskóla og grunn- skóla að koma í heimsókn á Skag- ann, kíkja á Byggðasafnið, í vitann og í Garðalund.“ Hannibal bætir því við að ekki megi gleyma hlut- verki ÍA í þessu samhengi. Haldin séu íþróttamót á þeirra vegum og þá fyllist bærinn af fólki. „ÍA sinnir góðu hlutverki í að ná hingað fólki. Það má eiginlega segja að ÍA sé vörumerki Akraness fyrir innlenda gesti. Í maímánuði voru haldnir vel heppnaðir Akranesleikar í sundi og Norðurálsmótið tókst ótrúlega vel. Það gekk allt upp og gestirnir fengu frábært veður.“ Hann segir að tölu- verð aðsókn hafi verið á tjaldsvæði Akraneskaupstaðar þegar Norður- álsmótið var, enda margir sem hafi viljað komast í samband við raf- magn. „Það var uppselt í rafmagn á fimmtudeginum. Gestirnir á tjald- svæðinu voru alveg til fyrirmyndar og þetta gekk ótrúlega vel.“ Laugardagarnir skemmtilegir Áframhaldandi viðburðir verða á Akranesi í sumar, sem henta bæði innlendum og erlendum ferða- mönnum. Hannibal nefnir sem dæmi matar- og antíkmarkað sem verður á Akratorgi alla laugar- daga. „Laugardagar eru skemmti- legir dagar á Akranesi í sumar. Þá er markaðurinn við Akratorg, hægt að fá sér kaffi á Skökkinni, Sam- steypan er opin fyrir gesti, Búkolla er opin hluta úr degi og fleiri versl- anir auk þess sem flottu veitinga- staðirnir okkar eru opnir. Meg- in hlutverk markaðarins er að efla Akranes sem verslunarbæ og vekja athygli á þeirri þjónustu sem er í boði hér. Svo er safnið alltaf opið líka,“ útskýrir hann. „Svo má ekki gleyma að Írsku dagarnir eru að fara af stað. Það verður stór og flott hátíð,“ heldur hann áfram. Einn- ig verður Íslandsmót í golfi haldið á Akranesi í lok júlímánaðar. Hluti af starfi ferðamálafulltrúans er að hafa umsjón með tjaldsvæði Akra- neskaupstaðar. Hannibal segir árið í fyrra ekki hafa verið gott á tjald- svæðinu, en slæmt veður sé líkleg skýring á dræmri aðsókn. „Það var sama sagan annars staðar á Vest- urlandi, allavega hjá þeim sem ég heyrði í. Það er hægt að nota úti- legukortið á tjaldsvæðinu hér og við höfum fundið fyrir aukningu í notkun á því. Erlendir ferðamenn nota það ekki síður en Íslending- ar.“ Hann segir marga vera hrifna af tjaldsvæðinu á Akranesi, sérstak- lega erlenda ferðamenn. „Þeir eru svolítið öðruvísi en Íslendingarn- ir. Þeir vilja ekkert endilega tjalda þar sem eru tré, enda sjá þeir nóg af trjám úti. Þeim finnst æðis- legt að geta tjaldað rétt við sjóinn með þetta útsýni. Þeir elska að sitja þarna á kvöldin og horfa yfir sjóinn, á Snæfellsjökulinn og sólsetrið.“ Vitinn er vinsæll Vinsælasti ferðamannastaðurinn á Akranesi er vitinn á Breið. Hannibal segir stöðuga umferð af fólki vera í vitann. Aukið hafi verið við opnun- artímann í fyrra sem tilraunaverk- efni sem hafi gengið vel. „Það var því ákveðið að vitinn yrði opinn frá klukkan 10 til 16 í sumar og Hilmar Sigvaldason var ráðinn í fullt starf sem umsjónarmaður vitans. Heim- sóknirnar hafa aukist um tæp 60% á milli ára en þó vantar tölur fyrir mánuðina frá ágúst fram í desemb- er, þannig að aukningin er pottþétt meiri. Gestirnir núna í maí og júní eru komnir yfir það sem var í fyrra. Til dæmis komu um fimm hundruð manns í vitann einn föstudag núna í byrjun júní. Auk þess er aukning í heimsóknum í Upplýsingamiðstöð- ina og núna í maí og júní eru heim- sóknir nánast jafn margar og allt árið 2012,“ segir Hannibal. Ýms- ir listviðburðir eru haldnir í vit- anum reglulega, svo sem tónleikar og listasýningar. Slíkar sýningar verða í vitanum meira og minna í allt sumar. „Athygliverðri listasýn- ingu sem opnaði í maí er að ljúka núna. Það var fyrsta sýningin eft- ir erlendan listamann í vitanum. Í júlí verða fleiri sýningar, það verða fjórir listamenn á þremur hæð- um þannig að það er mikið um list hér.“ Opnunartíminn í vitanum er engin tilviljun. Hannibal segir að hann sé tilkominn út af kaflaskipt- um í heimsóknum. „Það eru fáir sem lenda hérna á Skaganum fyrir tilviljun. Flestir hafa eitthvað tilefni til að stoppa, eitthvað aðdráttarafl sem dregur þá að. Flestir sem koma að skoða vitann koma við hérna á leið sinni norður í land eða í bæ- inn. Það er því álagstími hjá okkur í upphafi dags og svo aftur seinni- partinn. En vitinn er tæknilega séð opinn allt árið. Ef það koma hópar utan opnunartíma er alltaf hægt að hringja og þá er tekið á móti þeim,“ segir hann. Mættu koma fleiri í safnið Hannibal segir að starf hans sem ferðamálafulltrúi felist að mestu í markaðsstörfum. „Mitt starf hefur aðallega falist í því að koma Akra- nesi á framfæri. Að byggja upp inn- viðina og nýta grasrótina. Maður hefur unnið að því að koma safninu, vitanum og Langasandi á framfæri. Við gerðum til að mynda samning við Icelandair þar sem Akranesi er komið á framfæri í myndbandi sem sýnt er í flugvélum flugfélagsins.“ Hann segir að aðsóknin á Safn- asvæðið í Görðum hafi aukist eitt- hvað en mætti vera meiri. Líklegt sé að ferðamenn geri sér ekki grein fyrir sérstöðu safnsins og því mik- ilvægt að auglýsa það betur. „Við höfum verið að reyna að koma því á framfæri hvernig safn við erum með, það eru nefnilega margir sem halda að við séum með víkinga- safn. Það var því stór hluti í mynd- bandinu sem sýnt er hjá Icelandair sem er helgaður safninu. Það hef- ur verið að bætast við heimsókn- ir í safnið en gæti verið meira. En þetta er róleg þróun og tekur sinn tíma. Góðir hlutir gerast stundum hægt.“ Hann segir einnig að merk- ingamál séu ofarlega á lista yfir það sem á að gera í kynningarmálum. „Það stendur til að koma upp betri merkingum og skiltum. Þau mál eru í vinnslu,“ segir hann. Hættir í haust Eftir rúmt ár í starfi hefur Hanni- bal sagt starfi sínu sem ferðamála- fulltrúi Akraneskaupstaðar lausu og hættir í haust. Hann leggur mikla áherslu á að allt sé í góðu gert og að ástæða uppsagnarinnar sé sú að hann langi til að breyta til. „Mig langar að starfa meira við beina ferðaþjónustu, þar sem ég hef tæki- færi til að vera í meira sambandi við ferðamennina. Ég gaf þessu sinn tíma og nú veit ég hvað starf- ið snýst um og hvað ég hef upp á að bjóða.“ Hannibal segist hafa fulla trú á Akranesi sem áfangastað fyr- ir ferðamenn, það er ekki ástæðan fyrir því að hann ætli að hætta. „Við erum mjög vel staðsett landfræði- lega séð. Erum í raun klukkutíma frá öllu, svo sem miðbæ Reykjavík- ur, flugvellinum, Bláa lóninu, ís- göngunum í Langjökli, Snæfells- nesi, Gullna hringnum og svo fram- vegis. Við þurfum að vekja meiri at- hygli á því,“ segir hann. Það kem- ur ekki á óvart að ferðamálafulltrú- anum finnist sárlega vanta hótel í bæinn. Ef hótel yrði opnað á Akra- nesi myndu ný tækifæri myndast og önnur tegund af gestum kæmi á Skagann. „Það kæmi alveg nýr markhópur. Við erum auðvitað með fína gististaði en það er önn- ur tegund gesta sem fer á hótel. Þá væri hægt að markaðssetja bæinn á annan hátt. Við erum til dæmis með góða sali og aðstöðu fyrir fundi og ráðstefnur en það vantar hótelið,“ segir fráfarandi ferðamálafulltrúinn að endingu. grþ Vigdís Birna. Nökkvi. Fráfarandi ferðamálafulltrúi Akraneskaupstaðar fer yfir málin Hannibal Hauksson með gamla vitann á Breið í baksýn.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.