Skessuhorn


Skessuhorn - 01.07.2015, Síða 34

Skessuhorn - 01.07.2015, Síða 34
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 201534 ekki verjandi að gera slíkan samn- ing vegna bágrar fjárhagsstöðu bæj- arsjóðs. Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meirihluta á Akranesi í síð- ustu sveitarstjórnarkosningum. Ekki var skipað í ritnefnd um Sögu Akra- ness að loknum þeim kosningum. Í ljósi þess og bókunar Einars á sínum tíma þarf því ekki að koma á óvart þó núverandi meirihluti bæjarráðs hafi lítinn áhuga á að halda ritun Sögu Akraness áfram og aflýsi því ritunarsamningi fyrri meirihluta. Afhendir frumgögn Gunnlaugur Haraldsson segir að þegar liggi fyrir ófrágengið hand- rit að Sögu Akraness sem spanni 19. öldina. „Þetta er handrit sem ég lauk árið 2004 en hefur að miklu leyti legið óhreyft síðan, eða í ein 12 ár. Það eru í því gloppur og þarf að samræma það við hin tvö bindin. Ég hófst handa eftir að bindin tvö komu út 2012 og var búinn að end- urskoða og umskrifa part af þessu. Eftir er tæplega árs vinna í því að búa þetta til prentunar. Planið var að drífa þetta af og koma þessu efni út þannig að Saga Akraness lægi fyrir til ársins 1900. Reyndar er þetta handrit það mikið að vöxtum að sennilega hefði 19. öldin orðið tvö bindi.“ Nú er hins vegar ljóst að litlar líkur eru á að það verði af útgáfu þessa rits. Gunnlaugur Haraldsson segir að verki hans við ritun Sögu Akraness sé nú lokið, hvað sem síð- ar verði. „Ég er að flokka, skrá og pakka niður heimildum sem ég hef notað við það sem átti að verða þriðja bindið. Ég hef því í samráði við núverandi bæjaryfirvöld ákveð- ið að skila öllu því efni á héraðs- skjalasafnið á Akranesi. Þetta eru að stofninum til ljósrit frumgagna og telja eitthvað á annað hundr- að bréfabindi eða möppur,“ seg- ir hann. Heldur sjálfur handritinu Að sögn Gunnlaugs mun þetta hand- rit að 19. aldar sögu byggðar á Akra- nesi nú bíða síns tíma, óaðgengi- legt öðrum til afnota þannig séð. Hann muni eðlilega ekki láta það af hendi ófrágengið af sinni hálfu öðr- um til afnota, enda tilheyri það hon- um samkvæmt lögum um höfunda- rétt. „Ég kæri mig ekki um að fólk sé að vinna með ófrágengið handrit og vitna síðan í það. Þetta er mín höf- undarsmíði þó hún hafi verið kostuð af bænum. Vissulega eru þetta leið endalok. Allir vilja sjá sitt barn fæð- ast. Vonandi er þetta þó bara tíma- bundið og að menn taki upp þráð- inn aftur þegar hagur þeirra vænk- ast. Það hafa svo sem komið hlé í vinnslu þessa verks áður. En ég ótt- ast samt að þetta fari forgörðum þó ég ætli ekkert að spá í það hvernig menn ætla að taka á þessu í framtíð- inni.“ Sjálfur hefur Gunnlaugur ver- ið önnum kafinn undanfarin miss- eri við að skrifa sögu kirkna í Hafn- arfirði. Hún kom út á dögunum í þremur stórum bindum. „Nú er ég að kasta mæðinni eftir sögu Hafnar- fjarðarkirkju. Ég ætla að leyfa sumr- inu að líða áður en ég tek stefnuna á ný verkefni. En það virðist nokk- uð ljóst að Akranessaga er ekki þar á kortinu.“ mþh Þótt vetrarstarfi Kvenfélags Borgar- ness sé lokið hefur verið nóg að gera hjá kvenfélagskonum í júnímánuði. Þá fer fram aðal fjáröflun félagsins og er fénu varið til ýmissa líknarmála. „Að venju fóru 17. júní hátíðarhöldin fram í Skallagrímsgarði. Þar sáum við um kaffisölu, líkt og verið hefur síð- ustu áratugi. Einnig sér kvenfélgið um að velja fjallkonuna, æfa upplest- urinn á ljóðinu sem hún flytur og að skrýða hana. En félagið á skautbún- inginn sem hún skrýðist. Þetta árið var Hera Hlín Svansdóttir fjallkona. Síðastliðinn laugardag, þegar Brák- arhátíð var haldin hér í Borgarnesi, þá sáum við kvenfélagskonur um dögurðinn (morgunverðinn), sem var framreiddur á íþróttasvæðinu fólki að kostnaðarlausu. Fyrirtæki í matvæla- iðnaði, kvenfélagið, verslanir og fleiri fyrirtæki í Borgarbyggð og víðar gáfu matinn sem borinn var á borð. Hátt á fjórða hundrað manns nutu dög- urðarins í sól og blíðu. Félagið þakk- ar öllum þeim sem gáfu mat og lögðu hönd á plóg til að gera þetta mögu- legt,“ segir í tilkynningu frá Kvenfé- laginu í Borgarnesi. mm Ýmis verkefni Kvenfélags Borgarness Fjallkonan að þessu sinni var Hera Hlín Svansdóttir. Kvenfélagskonur skrýða fjallkonuna hverju sinni í Borgarnesi. Fleiri bindi koma ekki út af Sögu Akraness að sinni. „Það var ekki gert ráð fyrir fjármagni í þetta verkefni í síðustu fjárhagsáætlun og ég á ekki von á að það verði heldur settir fjár- munir í það nú í haust. Ég reikna með að bæjarráð taki formlega ákvörðun um framhald verkefnis- ins seinna í sumar og að þetta verði niðurstaðan,“ segir Regína Ásvalds- dóttir bæjarstjóri Akraness. Hún átti á dögunum fund með Gunnlaugi Haraldssyni sem unnið hefur að rit- un Sögu Akraness þar sem honum var tilkynnt staða mála. Árið 2011 komu út fyrstu tvö bindi Sögu Akraness sem náðu til loka 18. aldar. Þá lá fyrir að heildarkostnaður vegna söguritunarinnar næmi tæp- lega 85 milljónum króna. Verkefnið var umdeilt. Ári síðar gekk meiri- hluti þáverandi bæjarráðs Akranes- kaupstaðar (Samfylking, Framsókn- arflokkur og Vinstri græn) síðan frá nýjum samningi við Gunnlaug um ritun þriðja bindis sögu Akraness sem átti að fjalla um 19. öldina. Sá samningur hljóðaði upp á 14 millj- ónir króna og náði til þriggja ára. Einar Brandsson bæjarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins og áheyrnarfulltrúi í bæjarráði sem þá sat í minnihluta lét þá bóka andmæli þar sem hann taldi Saga Akraness er aðeins komin út til loka 18. aldar. Auglýsingamynd frá því þegar bindin tvö voru gefin út árið 2011. Ritun Sögu Akraness sett á ís Gunnlaugur Haraldsson. Í Fossatúni í Borgafirði voru nýver- ið tekin í notkun svokölluð timbur- tjöld, um 11m2 upphituð smáhýsi. Svefnpláss fyrir tvo er í hverju hýsi, nettenging og fleira. „Við kláruð- um að setja þetta upp núna í vor. Eftir tíu ára rekstur ákváðum við að staldra við, líta til framtíðar og fannst ekki réttlætanlegt að standa í frekari fjárfestingu í tjaldsvæðis- rekstri í ljósi þess að samkeppn- in er meira og minna við sveitarfé- lög og ríki sem greiða niður rekstur tjaldsvæða. Þetta var því spurning um að finna annan kost eða hætta,“ sagði Steinar Berg Ísleifsson, fram- kvæmdastjóri Fossatúns, í samtali við Skessuhorn. „Ég fór og skoðaði á internetinu, þar sem maður finnur öll svörin. Þar sá ég að þessi nýjung var að ryðja sér til rúms í Evrópu, að bjóða upp á „camping pods“ eða timburtjöld, þar sem aðstaðan getur verið annað hvort mjög hrá eða að- eins nútímalegri með því að leggja hita og rafmagn í rýmin.“ Steinar segir að í Fossatúni hafi síðari leið- in verið farin. Hvert timburtjald sé svefnpokapláss fyrir tvo með tveim- ur rúmum með góðum dýnum, hita, rafmagni og nettengingu. „Við smíðuðum eitt svona hús í hlöðunni í vetur til að sjá hvernig það kæmi út og settum svo upp fjög- ur hús núna í maí og júní. Við aðlög- uðum þessi hús íslenskum aðstæð- um með því að einangra vel grunna og gólf. Þetta er mjög skemmtileg- ur valkostur í gistingu. Hátt er til lofts, um 260cm og rúmt. Maður þarf aldrei að beygja sig undir súð eða neitt svoleiðis. Dýnurnar eru úr hágæðaefni sem andar en hleypir ekki bakteríum í gegnum sig og það fer mjög vel um mann í þessu rúm- stæði,“ segir Steinar. „Strax í upp- hafi var ákveðið að þetta yrði hag- stæður valkostur fyrir fólk. Verð- ið er 7.500 krónur eða um 50 evrur fyrir nóttina og allt innifalið sem ég nefndi áðan auk aðgengis að pott- um, sturtum og þeirri afþreyingu sem er hér á svæðinu,“ bætir hann við. Fyrir tveimur vikum var sala haf- in á gistingu í tveimur smáhýs- anna á airbnb.com og nú er unnið að því að koma á sölu gegnum bo- oking.com, sem Steinar segir vera langstærsta söluaðilann í gistingu í Fossatúni. Auk þess hefur fólk sem átt hefur leið um valið þennan kost. „Við ákváðum að setja þetta ekki í sölu fyrr en allt saman væri tilbúið og búið að leysa alla byrjunarörð- ugleika sem kynnu að koma upp. Enda hafa viðtökurnar bara verið á einn veg. Fólk er yfir sig ánægt og sérstaklega með það hvað þetta er hagstætt. Pantanirnar hafa verið að hellast yfir okkur gegnum airbnb. com,“ segir Steinar. Tónlistartenging alltaf til staðar Utan þess að bjóða upp á nýja gisti- möguleika segir Steinar að fram- undan í ferðaþjónustunni í Fossa- túni sé að endurnýja tengingu stað- arins við tónlistina. „Það eru tón- leikar hér á föstudaginn. Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari er að gefa út sína fyrstu sólóplötu og ætlar að halda hér tónleika ásamt Drauma- bandinu. Síðan ætlar sveitahljóm- sveitin mín, Grasasnar að spila hér í hverri viku í sumar,“ segir Steinar en hljómsveitin spilar vel að merkja aðeins í Fossatúni. „Við köllum þetta opnar æfingar. Við höfum æft hér á veturna og ákváðum að halda því bara áfram yfir sumartímann. Fólki er velkomið að vera með okk- ur í salnum á æfingu með okkur um leið og það fær sér mat eða drykk og má koma með ábendingar um það sem betur má fara,“ segir Steinar léttur í bragði. „Lifandi músík er að festa sig í sessi á ný hér í Fossatúni,“ bætir hann við að lokum. kgk Timburtjöld tekin í notkun í Fossatúni Séð inn í tvískipt rými timburtjaldsins. Í hverju þeirra er rúmstæði fyrir tvo, hiti og rafmagn auk nettengingar. Eitt hinna nýju smáhýsa, eða timburtjalda, í Fossatúni í Borgarfirði. Hvert hýsi er um 11m2 með 260cm lofthæð. Nafn: Hulda Hrönn Sigurðar- dóttir. Fjölskylduhagir/búseta: Bý ásamt eiginmanni mínum og þremur unglingum í Geirshlíð í Flókadal. Starfsheit/fyrirtæki: Fram- kvæmdastjóri gistihúss. Áhugamál: Námsefnisgerð, handavinna og dýrin mín. Vinnudagurinn: Sunnudagurinn 28. júní 2015. Klukkan hvað vaknaðir þú og hvað var það fyrsta sem þú gerð- ir? Vaknaði kl. 6:15 og það fyrsta sem ég gerði var að blanda aloe vera safa í vatn og setjast við tölv- una og fara yfir bókanir og fréttir. Hvað borðaðir þú í morgunmat? Weetabix með undanrennu. Hvenær fórstu til vinnu og hvernig? Ég fór gangandi í vinn- una kl. 7. Fyrsta verk í vinnunni: Útbúa morgunmat. Hvað varstu að gera klukkan 10? Leiðbeina gestum varðandi ferðir og fara yfir kortin með þeim. Hvað gerðirðu í hádeginu? Var að þrífa herbergi og ganga frá í gistihúsi. Hvað varstu að gera klukkan 14? Ennþá að ganga frá í gistihúsinu. Hvenær hætt og það síðasta sem þú gerðir í vinnunni? Það síðasta var að þvo þvott og taka úr uppþvottavélinni. Ég er allt- af í vinnunni svo ég hætti í raun aldrei. Hvað gerðirðu eftir vinnu? Fór út að bera á skjól- grindverk í kring um veröndina. Hvað var í kvöldmatinn og hver eldaði? Pizzabrauð sem Beta dótt- ir mín sá um. Hvernig var kvöldið? Mjög gott, tók snemma á móti síðustu gestum og fór á hlaupabrettið. Beta bauð okkur, foreldrum sínum, í bíltúr í tilefni þess að hún fékk bílpróf- ið í síðustu viku. Við fórum yfir Grjótháls og þaðan að Svartagili og áfram inn í Þverárhlíð, frábært útsýni. Hvenær fórstu að sofa? Kl. 23:30. Hvað var það síðasta sem þú gerðir áður en þú fórst að sofa? Ég enda alltaf daginn á því að lesa. Hvað stendur upp úr eftir dag- inn? Bíltúrinn með Betu og skemmtilegir túristar. Það er allt- af svo gaman að hitta túrista sem koma alls staðar að úr heiminum. Í dag fengum við til okkar gesti sem hafa komið til okkar áður og það er alltaf gaman. Eitthvað að lokum? Vonandi verður sumarið gott hér hjá okkur á Vesturlandi. Dag ur í lífi... Framkvæmdastjóra gistihúss

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.