Skessuhorn - 01.07.2015, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 201536
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Við viljum byrja á að óska Akurnes-
ingum til hamingju með þá fjölmörgu
íþróttaviðburði sem eru haldnir í
bænum okkar allan ársins hring. Dug-
ar þar að nefna glæsilega fimleikasýn-
ingu í íþróttahúsinu við Vesturgötu,
Akranesleika í sundlauginni að Jaðar-
sbökkum og velheppnað Norðuráls-
mót sem dró hingað þúsundir gesta.
Framundan er Íslandsmót í golfi sem
mun án vafa kalla á mikla athygli fjöl-
miðla og annarra aðila. Fjölmörg
fleiri dæmi mætti nefna sem sýna svo
ekki verður um villst að starf íþrótta-
hreyfingarinnar á Akranesi er öflugt.
Almenningsíþróttir og aukin heilsu-
efling fær sífellt aukið vægi í starfinu.
ÍA á gott og vaxandi samstarf við önn-
ur félög og stofnanir á þessu sviði. Í
þessu sambandi má nefna HVER,
heilsugæsluna, FEBAN og fleiri. Auk
góðra íþróttamannvirkja eru náttúru-
legar aðstæður óvíða betri en hér til að
stunda almenna heilsueflingu. Garða-
lundur, Langisandur, Akrafjall, Kal-
mansvík og fleiri staðir eru hreinar
náttúruperlur sem við þurfum að læra
að njóta betur.
Við Akurnesingar eigum afreksfólk
í flestum greinum íþrótta. Við höf-
um átt landsliðsmenn í sundi, knatt-
spyrnu, golfi, fimleikum, keilu o.s.fv.
Okkar fulltrúar hafa unnið til fjöl-
margra verðlauna og nánast í hverri
viku er íþróttamaður frá Akranesi á
verðlaunapalli í einhverri íþrótt. Allir
þessi fulltrúar æfa og keppa með stolti
fyrir hönd ÍA og Akraness.
Við eigum þó ekki bara afreksfólk í
íþróttum heldur einnig forystumenn
og þjálfara. Úr okkar bæjarfélagi kem-
ur fólk sem fer fyrir sérsamböndum
íþróttagreina, þjálfara sem stýra lands-
liðum og fólk sem hefur verið kallað
til ábyrgðarstarfa fyrir íþróttahreyf-
inguna á Íslandi.
Innan vébanda ÍA eru í dag um tvö-
hundruð manns sem sinna stjórnunar-
og nefndastörfum. Allt þetta fólk gef-
ur vinnu sína og leggur með gleði fram
starfskrafta og sérþekkingu fyrir bæj-
arfélagið okkar. Við eigum öll að virða
og lofa starf sjálfboðaliðans. Íþrótta-
hreyfingin stendur og fellur með sjálf-
boðaliðum sem leggja árlega fram
þúsundir vinnustunda til þess eins að
efla íþrótta- og félagsstarf á Akranesi.
Þetta fólk hefur metnað og framtíð-
arsýn fyrir heilsueflandi samfélag, vill
skapa börnum sínum og annarra heil-
brigt og mannbætandi umhverfi. Þessi
afstaða er virðingarverð.
Í huga almennings á Íslandi er
Akranes þekkt fyrir öflugt íþróttastarf.
Lengi vel var knattspyrnan þekktust
en nú síðari ár hafa fleiri aðildarfélög
og íþróttagreinar lagt sitt á vogarskál-
arnar til að kynna bæjarfélagið okkar.
Íþróttabandalag Akraness er banda-
lag átján íþróttafélaga sem í samein-
ingu mynda sterka heild. Í fáum bæj-
arfélögum eru stundaðar fjölbreyttari
íþróttagreinar en einmitt hér. Sum-
ir vilja meina að samkeppni milli
íþróttagreina sé hindrandi og hags-
munir ólíkir. Við sem störfum inn-
an hreyfingarinnar leggjum þó meira
upp úr að vera samtaka og sameinuð
undir einu merki ÍA fyrir samfélagið
á Akranesi.
Akraneskaupstaður hefur um lang-
an tíma fjárfest mikið í íþróttastarfi
og er það vel. Þessar fjárfestingar eru
hagkvæmar og hafa skilað sér ríkulega
í öflugu samfélagi. Fjölmargir hafa
einmitt valið sér búsetu í bæjarfélag-
inu þar sem hér er gott íþrótta- og
skólastarf. Framundan eru enn frekari
fjárfestingar því bæjarbúum fjölgar og
núverandi íþróttamannvirki anna eng-
an veginn þeirri notkun sem fer fram í
mannvirkjunum.
Til að skilja betur umsvif íþrótta-
starfsins má nefna að:
• Tæplega 37% bæjarbúa eru iðkend-
ur hjá ÍA.
• Alls eru um 8.800 skipulagðir
íþróttatímar á ári eða rúmir 24 hvern
einasta dag.
• Samkvæmt skráningu koma um 365
þúsund manns, gestir og iðkendur, í
íþróttamannvirkin á hverju ári.
Fjöldi einstaklinga og fyrirtækja
sjá sem betur fer hag sinn í að
styrkja íþróttastarf á Akranesi og
er þeirra framlag þakkað sérstak-
lega. Íþróttahreyfingin skilar einn-
ig miklu til samfélagsins og lang-
ar okkur að benda á í því samhengi
að:
• ÍA skiptir við fyrirtæki og stofananir
á Akranesi fyrir tugi milljóna á hverju
ári.
• ÍA greiðir milljónir í fasteigna- og
aðstöðugjöld.
• ÍA er fyrirferðarmikið í hagkerfi
bæjarins en velta bandalagsins er rúm-
ar 300 milljónir á ári.
• Íþróttahreyfingin er skilvís launa-
greiðandi. Laun og verktakagreiðslur
ÍA eru rúmar 100 milljónir á ári.
• 2300 iðkendur æfa og keppa undir
merkjum ÍA í um eitt hundrað æfinga-
hópum.
• ÍA er mikið hreyfiafl og skipulagðir
íþróttaviðburðir í bæjarfélaginu skipta
hundruðum á hverju ári.
• ÍA er í forystu þeirra sem stuðla að
auknum forvörnum og heilbrigðum
lífsstíl ungmenna á Akranesi.
Við sem höfum verið valin til for-
ystu fyrir Íþróttabandalag Akraness
verðum þess rækilega vör að almenn-
ingur hefur mikinn metnað fyrir hönd
íþróttahreyfingarinnar. Við þökkum
fyrir mikla hvatningu og aðhald og
lofum að leggja okkur öll fram í störf-
um fyrir bandalagið. Framundan eru
mörg stór verkefni, s.s. átak í heilsu-
eflingu fyrir almenning, 70 ára af-
mæli ÍA sem verður minnst á margvís-
legan hátt, uppbygging afreksíþrótta-
brautar við Fjölbrautaskóla Vestur-
lands o.m.fl. Við skorum á alla bæjar-
búa að leggja íþróttastarfi á Akranesi
lið og við tökum fagnandi á móti nýj-
um félagsmönnum. Það er mikilvægt
að sameinast um stuðning við áfram-
haldandi uppbyggingu íþróttamann-
virkja. Slíkt er ekki „styrkur“ til ein-
hvers heldur miklu frekar fjárfesting
til framtíðar. Fjárfesting sem er fyrir
fólk á öllum aldri og fyrir bæði upp-
eldisstarf og afreksstarf.
Velgengni í starfi Íþróttabandalags
Akraness hefur órjúfanlega tengingu
við vöxt samfélagsins okkar. ÍA og
Akranes eru í raun eitt og hið sama.
Verum gul og glöð því ÍA er klárlega
þar sem hjarta Akraness slær.
Með íþróttakveðju,
Sigurður Arnar Sigurðsson,
formaður ÍA
Helga Sjöfn Jóhannesdóttir,
varaformaður ÍA
ÍA - Þar sem hjarta
Akraness slær
Pennagrein
Nýlega fengu Háskólinn á Bif-
röst og Sveitarfélagið Borgarbyggð
styrk úr Norðurslóðaáætlun Evr-
ópusambandsins (NPA) til að þróa
nýja þjónustu í sveitarfélaginu. Um
er að ræða samstarfsverkefni há-
skóla, sveitarfélaga, samtaka sveit-
arfélaga og svæðisskrifstofa í þátt-
tökulöndunum. Hér er á ferðinni
þriggja ára þróunarverkefni í ný-
sköpun í opinberri þjónustu með
notkun tækni og netlausna. Írland,
Svíþjóð, Finnland og Noregur taka
þátt ásamt Íslandi en áherslan er
á lausnir í heilbrigðis-, skipulags-
og umhverfismálum. Í Borgar-
byggð verður hannaður íbúavefur,
þar sem upplýsingar um umhverf-
is- og skipulagsmál verða gerð að-
gengileg. Auk þess geta íbúar tekið
þátt með beinum hætti í þróun og
skipulagi svæða í gegnum vefinn.
Mikil áhersla er lögð á þátttöku
notenda þjónustunnar og fræðslu
við innleiðingu, segir í tilkynningu
frá Háskólanum á Bifröst og Borg-
arbyggð.
mm
Ljósmyndari rakst á þessa skemm-
tilegu bíla í Ólafsvík á dögunum.
Þetta eru 50 ára gamlir bílar á
þremur hjólum af gerðinni Velo-
rex. Þessir bílar voru framleiddir í
þáverandi Tékkóslóvakíu frá því á
sjötta áratug síðustu aldar til ársins
1971. Bílstjórarnir fjórir koma frá
Tékklandi og ætla að aka bílunum
hringinn í kringum Ísland. Þeir voru
hinir hressustu þegar þeir voru að
dytta að þessum merku fornbílum
sínum fyrir næsta áfanga leiðarinn-
ar. Ljósm. þe.
Ný kynslóð stjórnsýslu þróuð í
Borgarbyggð og á Bifröst
Þátttakendur í samstarfsverkefninu koma meðal annars frá Bifröst og Borgar-
byggð.
Þrjú hjól undir bílnum en
áfram skröltir hann þó