Skessuhorn - 22.07.2015, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 20152
Útgáfan næstu
vikurnar
SKESSUHORN: Skessuhorn
kemur út í næstu viku, mið-
vikudaginn 29. júlí, samkvæmt
venju. Líkt og frá upphafi út-
gáfunnar verða starfsmenn í
sumarleyfi vikuna sem nær yfir
verslunarmannahelgi og kem-
ur því EKKI út blað miðviku-
daginn 5. ágúst. Þann dag koma
starfsmenn úr fríi og kemur út
blað 12. ágúst.
-mm
Leiðrétt vegna
fréttar um
makrílúthlutun
Í síðasta tölublaði Skessuhorns
var rætt við Guðmund Smára
Guðmundsson framkvæmda-
stjóra G.Run í Grundarfirði um
úthlutun makrílkvóta til ísfisk-
skipa. Þar var nefnt að smábát-
urinn Tryggvi Eðvarðs SH fengi
131 tonna úthlutun og skrifað
að báturinn hefði aðeins veitt
54 tonn af makríl að meðaltali á
sumri síðan báturinn hóf veiðar.
Þessi tala er röng. Tryggvi Eð-
varðs SH hefur verið á makríl
sumrin 2013 og 2014 og sam-
tals veitt 273,4 tonn. Meðal-
talið er því 136,7 tonn en ekki
54 tonn. Báturinn fær úthlutað
130 tonna kvóta sem er þann-
ig aðeins minna en hann veiddi
að meðaltali sumrin 2013 0g
2014. Mistökin skrifast á blaða-
mann sem tók hina röngu tölu
54 tonn upp úr töflu sem birtist
í 24. tölublaði Fiskifrétta. Beð-
ist er velvirðingar á þeim.
–mþh
Á flæðiskeri
staddir
SNÆF: Tveir erlendir ferða-
menn lentu í vandræðum er þá
flæddi á skeri skammt utan við
Ytri Tungu á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi síðdegis á fimmtudag-
inn í liðinni viku. Kallað var eft-
ir þyrlu Landhelgisgæslunnar
sem var á flugi undan Reykjavík
og kom hún og hífði mennina af
skerinu og slakaði þeim niður í
fjöruna. Þeir voru orðnir nokk-
uð kaldir og blautir en varð ekki
meint af. Eftir að lögreglumenn
höfðu gert þeim grein fyrir
gangi fljóðs og fjöru héldu þeir
skoðunarför sinni um landið
áfram. -mm
„Stofna til
áfengishátíða“
LANDIÐ: Eins og komið hef-
ur fram í fréttum ákvað Olís
að bjóða upp á sölu áfengra
drykkja í bensínstöðvum sín-
um í aðdraganda Verslunar-
mannahelgar. Þetta tiltæki fer
illa í forvarvarnafulltrúa, líkt og
lesa má í tilkynningu frá For-
eldrasamtökum gegn áfengis-
auglýsingum sem þau óska birta
í fjölmiðlum. Þau segja: „Í stað
þess að styðja með ráðum og
dáð bætta umferðarmenningu,
stuðla að umferðaröryggi, ekki
síst hvað varðar okkar yngstu
ökumenn, sem margir hverj-
ir verða á ferðinni um Versl-
unarmannahelgina, þá efnir
Olís til sérstakra áfengishátíða
á bensínstöðvum sínum fyrir
þennan sama hóp þessa mestu
ferðahelgi ársins! Einstaklega
ósmekklegt og óábyrgt.“
–mm
Þrjár hátíðir verða haldnar á Vesturlandi
um komandi helgi. Þær eru Reykhóladag-
ar, Á góðri stund í Grundarfirði og Reyk-
holtshátíð. Auk þess verða sumarmarkaðir í
Nesi í Reykholtsdal og á Akranesi. Frá þess-
um hátíðum er sagt í Skessuhorni dags-
ins. Þeir sem hyggjast leggja leið sína á eina
eða fleiri af þessum hátíðum eru minnt-
ir á að taka góða skapið með sér, gleðjast á
mannamótum og skemmta sér fallega með
heimamönnum.
Norðlæg eða breytileg átt er í kortunum,
3-10 m/s og bjartviðri um landið sunnan-
og vestanvert. Líkur á skúrum síðdegis á
fimmtudag en skýjað og rigning með köfl-
um annars staðar á landinu. Hiti 5-15 stig,
svalast á Austurlandi. Hæg breytileg átt,
skýjað með köflum og skúrir um allt land
frá föstudegi til mánudags, síst á norðvestur
horninu. Hiti 6-16 stig, hlýjast sunnanlands.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hver slær garðinn þinn?“ Rétt rúmlega
helmingur þeirra sem svöruðu, 50,13%,
kváðust slá garðinn sinn sjálfur. Næstflestir,
20,16%, láta börn sín eða maka sjá um slátt-
inn. 13, 79% fá verktaka í verkið og 11,41%
kváðust ekki eiga garð. Fæstir, eða 4,77%,
sögðust bara láta hina og þessa sjá um
að slá garðinn fyrir sig. Ekki fylgir sögunni
hverjir „hinir og þessir“ eru.
Í þessari viku er spurt:
Hversu oft á dag talar þú í síma?
Eldur kraumaði við Grábrókarhraun eftir að
ferðamaður hafði þar gengið örna sinna og
síðan kveikt í pappírnum. Um 200 fermetrar
af mosa og gróðri brunnu. Slökkviliðsmenn-
irnir sem slökktu eldinn eru Vestlendingar
vikunnar. Að missa stærra svæði í gin eldsins
hefði verið heldur skítt!
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Aðfararnótt síðastliðins sunnudags
voru unnin skemmdarverk á hús-
næði Björgunarfélags Akraness við
Smiðjuvelli. Brotnar voru rúður í
innkeyrsludyrum fyrir neyðarbíla.
Að sögn Guðna Haraldssonar fé-
laga í björgunarfélaginu er ekki vit-
að hver eða hverjir voru á ferðinni
né heldur hvenær næturinnar tjón-
ið var unnið. Tjón björgunarfélags-
ins sé hins vegar verulegt. Þeir sem
mögulega geta gefið upplýsing-
ar um skemmdarverkin er bent á
að hafa samband við Lögregluna á
Vesturlandi.
mm
Mölvuðu rúður í húsi
Björgunarfélags Akraness
Einhverjir óprúttnir aðilar fengu
nýverið útrás fyrir skemmdarfýsn
sína með því að mölva rúður í bíl-
um við KB Bílaverkstæði í Grund-
arfirði. Búið var að mölva rúður í
fjölmörgum bifreiðum sem voru
fyrir utan verkstæðið. Það stóð til
að laga nokkrar af þessum bifreið-
um og koma á götuna en þær voru í
misjöfnu ásigkomulagi. Ekki er vit-
að hverjir voru að verki eða hvað
þeim gekk til, en ljóst að mikið
hreinsunarstarf er framundan því
glerbrot voru út um allt á svæðinu.
tfk
Skemmdarverk unnin á
bílum í Grundarfirði
KM þjónustan í Búðardal fékk út-
kallsbeiðni á sunnudaginn á þjóð-
veg 66, en á Kollafjarðarheiði sat
einsdrifs fólksbíll fastur í stórgrýti.
Tveir útlendingar voru í bílnum og
höfðu ætlað sér að fara á Ísafjörð
og valið þessa leið sem þó er skráð
ófær hjá Vegagerðinni. Ferða-
mennirnir voru sóttir upp á heiðina
aðfararnótt sunnudags af björgun-
arsveitinni Heimamönnum á Reyk-
hólum en KM þjónustan sótti bíl-
inn daginn eftir.
mm
KM menn koma ferðafólkinu til aðstoðar.
Alls ekki fólksbílafært
um Kollafjarðarheiði
Útsýnisskífu hefur verið komið fyr-
ir á að nýju á Breiðinni á Akranesi.
Eins og Skessuhorn greindi frá á
dögunum þá hefur engin útsýnis-
skífa verið þar síðan skífa frá 2008
var tekin niður í fyrrahaust. Skífa
sú var orðin ljót enda mikið álag á
henni í særokinu sem oft er þarna á
ysta odda Akraness. Skífan nýja er
glansandi fín, svo jafnvel er hægt að
spegla sig í henni. Hún verður nú
gestum Breiðarinnar til yndisauka
og fróðleiks um hið fagra útsýni
frá þessum stað sem verður stöð-
ugt vinsælli bæði hjá heimafólki og
ferðamönnum. mþh
Ný útsýnisskífa á Breiðinni
Skífan er mjög falleg. Í baksýn má sjá gamla vitann á Suðurflös.
Búið er að lagfæra og endurbæta
eldsneytisdælu Olís við Ferstiklu-
skála í Hvalfirði. Fyrr í þessum
mánuði var sagt frá því í Skessu-
horni að hálfgert vandræðaástand
væri uppi því dælan þar var búin að
vera biluð um nokkurra daga skeið.
Áður höfðu ýmis vandræði ver-
ið með dæluna sem tók eingöngu
við greiðslukortum. Nú hefur hins
vegar verið bætt úr skák. Settur
hefur verið upp nýr búnaður þar
sem hægt er að greiða bæði með
greiðslukortum og greiðslulyklum
Olís. Hægt verður að taka elds-
neyti við Ferstikluskála allan sól-
arhringinn alla daga ársins. „Þetta
er mikill munur. Dælan ætti nú að
vera í góðu lagi. Það skiptir miklu
máli fyrir ferðalanga sem eiga
leið um Hvalfjörðinn en ekki síst
heimafólk og aðra sem starfa hér
á þessum slóðum. Fólk mun nota
hana í auknum mæli ef það veit að
búnaðurinn er góður og það getur
treyst á að hún virki öllum stund-
um,“ segir Kristján Karl Krist-
jánsson veitingamaður í Ferstiklu.
Eftir stendur þó að viðskiptavinir
munu ekki geta greitt fyrir elds-
neyti í Ferstikluskála með reiðufé
þar sem dælan er veitingaskálanum
óviðkomandi og því ekki tekið við
greiðslum þar.
mþh
Nýr eldsneytissjálfssali við Ferstikluskála
Kristján Karl Kristjánsson veitingamaður við nýja dælubúnaðinn sem settur hefur
verið upp við Ferstikluskála.