Skessuhorn


Skessuhorn - 22.07.2015, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 22.07.2015, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 201520 „Síðustu fjögur árin hef ég átt sam- ræður við fólk um að nýta garðinn í eitthvað, þannig að við höfum tal- að um þetta svolítið lengi,“ sagði Eiríkur Jónsson, félagi í Hollvina- samtökum Borgarness, sem boð- uðu til grillveislu í Skallagríms- garði síðastliðið fimmtudagskvöld. „Svo þegar við fréttum að RÚV yrði á ferðinni þótti okkur ómögu- legt að það væri ekkert að gerast í bænum,“ bætir hann við, létt- ur í bragði, en sjónvarpsþátturinn Sumardagar var einmitt sendur út í beinni útsendingu frá Borgarnesi þetta kvöld. Stemningin í Skallagrímsgarði var óformleg og afslöppuð. Eng- in skipulögð dagskrá var á með- an grillveislunni stóð heldur fengu hlutirnir bara að gerast af sjálfu sér. Fólk mætti með garðstóla og grillkjöt, naut veðurblíðunnar, sýndi sig og sá aðra. „Þetta er bara virkilega vel heppnað. Það væri gaman að gera þetta oftar,“ sagði Eiríkur þegar veislunni var í þann mund að ljúka og fólk farið að tínast heim á leið. kgk Grill og gaman í Skallagrímsgarði Borgnesingar nutu veðurblíðunnar í Skallagrímsgarði. Þessar stúlkur létu grillkjötið eiga sig, að minnsta kosti þegar þarna var komið við sögu og gæddu sér þess í stað á vínberjum. Harmonikkutónlist ómaði um Skallagrímsgarð. Geir Konráð Theódórsson mætti í fullum víkingaskrúða og sagði börnunum sögur á meðan þau biðu eftir matnum. Börnin fylgdust mörg mjög áhugasöm með spennuþrungnum sögum víkingsins. Grillmetið borðað og allir glaðir. Ekki máttu þó allir vera að því að hlusta á sögur, sumir voru upp- teknir við klifur. Sumir spiluðu kubb meðan þeir biðu eftir grillinu.Þessar vinkonur hlustuðu aftur á móti heillaðar á víkinginn. Þeir allra yngstu létu sér fátt um finnast og lögðu sig í hálsakotinu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.