Skessuhorn


Skessuhorn - 22.07.2015, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 22.07.2015, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 201524 verða flutt á þeim tónleikum, ásamt öðru efni,“ segir Sigurgeir. Einnig verður flutt verk eftir Sibelius, en árið í ár hefði markað 150 ára fæð- ingarafmæli finnska tónskáldsins. „Þetta verður svona bland í poka. Svo endum við á píanókvartett eft- ir Schumann. Það er pínu svona súkkulaðimoli, mjög fallegt verk og ætti að renna ljúflega niður,“ bæt- ir hann við. Sigurgeir hvetur sem flesta til að mæta á hátíðina og bendir á að miðasala fari fram á miði.is en einn- ig verði hægt að kaupa miða við innganginn. „Gestir Reykholtshá- tíðar mega búast við áhugaverðum tónleikum og alveg topp flutningi,“ segir hann að lokum. kgk Nafn: Guðrún S. Hilmisdóttir. Fjölskylduhagir/búseta: Gift Gunnari Sigurjónssyni, á tvö uppkomin börn, flutti á Sæunn- argötu í Borgarnesi í maí síð- astliðinn. Gunnar er ennþá í Reykjavík nema um helgar en flytur í Borgarnes í byrjun ágúst næstkomandi. Starfsheiti/fyrirtæki: Sviðs- stjóri umhverfis- og skipulags- sviðs Borgarbyggðar. Áhugamál: Skógrækt, ferðalög, tónlist og myndlist. Mánudagur 20. júlí 2015. Verkefni dagsins voru margvís- leg, ég hafði hugsað mér að fara yfir sorphirðumálin og skipulag á gámamálum í sveitarfélaginu ásamt fleiri málum. Á opnunar- tíma skrifstofunnar sem er frá kl. 9:30 til 12:00 og 12:30 til 15:00 fer töluverður tími í að svara er- indum fólks sem annað hvort hringir eða kemur á skrifstof- una. Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað var það fyrsta sem þú gerðir? Ég vaknaði klukkan hálf sjö og fékk mér lýsi, omega 3 og hellti upp á gott kaffi handa mér. Hvað borðaðirðu í morgun- mat? Ristaða brauðsneið með osti og linsoðið egg. Hvenær fórstu til vinnu og hvernig? Ég geng í vinnuna og var mætt klukkan átta. Fyrstu verk í vinnunni: Kveikja á tölvunni og fara yfir og svara skilaboðum og skoða dagskrá dagsins. Hvað varstu að gera klukkan 10? Þá var ég að fara yfir refa- og minkaveiðimál í Borgarbyggð með veiðimanni. Hvað gerðirðu í hádeginu? Ég borðaði hádegismat hér í ráðhús- inu sem hún Dídí matreiðir fyrir okkur, hún er snilldarkokkur. Hvað varstu að gera klukk- an 14? Þá var ég að skoða sorp- málin og svara stúlku sem var að spyrjast fyrir um Skallagríms- garð. Hvenær hætt og það síðasta sem þú gerðir í vinnunni? Hætti rétt fyrir klukkan sex eft- ir fund. Hvað gerðirðu eftir vinnu? Fór heim og setti í eina þvottavél. Hvað var í kvöldmat og hver eldaði? Það var salat sem ég setti saman, ég er einbúi á virkum dögum. Hvernig var kvöldið? Eft- ir kvöldfréttir þá hélt ég áfram að tæma bókakassa og ákvarða hvaða bækur ég ætla að eiga áfram og hvaða ekki. Hvenær fórstu að sofa? Upp úr klukkan tíu. Hvað var það síðasta sem þú gerðir áður en þú fórst að hátta? Kíkti í bókina Spor eft- ir göngumann í slóð Hjartar á Tjörn, sem kom upp úr einum bókakassanum. Hvað stendur uppúr eftir dag- inn? Það var samtalið við refa- og minkaveiðimanninn. Eitthvað að lokum? Ég var að spá í göngutúr á Bjössaróló eft- ir kvöldfréttir en sleppti því þeg- ar áframhaldi á lagfæringum sem íbúar hafa staðið fyrir þar var frestað fram á miðvikudag. Dag ur í lífi... Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs Borgarbyggðar Svanhvít Valgeirsdóttir myndlist- arkona og förðunarmeistari opn- ar myndlistarsýningu í einn dag í Hvítahúsinu í Krossvík fyrir utan Hellissand. Sýningin verður opin á milli kl. 17 og 21 miðvikudaginn 29. júlí. Svanhvít ólst upp á Gufuskál- um til sjö ára aldurs og það má segja að þar hafi hún byrjað í myndlist- inni. Pabbi hennar var tómstunda- málari og byrjaði Svanhvít ung að mála með honum. Hún hefur búið um víða um heiminn og nú síðustu þrjú ár í Brussel þar sem maðurinn hennar er þýskur sendiráðsstarfs- maður. Svanhvít hefur því mál- að um allan heim en sækir þó oft- ast innblásturinn heim að Gufuskál- um. Svanhvít er einnig hæfileikaríkur förðunarfræðingur og hefur starfað í leikhúsum og óperunni í Reykja- vík. „Ég hef mikið unnið við förð- unina og var til að mynda skólastjóri Förðunarskóla Snyrtiakademíunn- ar í tvö ár og hlaut Eddu tilnefn- ingu fyrir förðun í Ávaxtakörfunni árið 2014. Ég hef þó verið virkari í myndlistinni síðustu ár eða frá því ég flutti til Brussel og tek bara ein- staka förðunarverkefni,“ segir Svan- hvít. Hún hefur verið stödd á Íslandi allan júlímánuð að undirbúa sýn- inguna í Hvítahúsinu og verður sýningin helguð kríunni og tveimur hvítum skúrum sem standa við Hrís- hól. Ég sýndi nokkrar slíkar myndir á sýningu í Brussel og þar voru all- ir mjög hrifnir af þessum skúrum. Á sýninguna mæta Kári Viðarsson og Anna Margrét Káradóttir þar sem þau munu syngja nokkur lög klukk- an hálf níu. arg Myndlistarsýning í Hvítahúsinu Svanhvít hjá kofunum tveimur sem hún hefur mikið verið að mála. Svanhvít fyrir framan kríumálverk. Sýningin verður m.a. helguð kríunni. „Hátíðin í ár verður með svipuðu formi og verið hefur undanfarin ár,“ sagði Sigurgeir Agnarsson, selló- leikari og listrænn stjórnandi Reyk- holtshátíðar, í samtali við Skessu- horn fyrr í vikunni og bætti því við að mikið yrði lagt upp úr gæðum tónlistarflutnings á hátíðinni, að vanda. Reykholtshátíð hefur verið haldin óslitið frá árinu 1997 og allt- af í kringum síðasta sunnudag júlí- mánaðar, á vígsluafmæli Reykholts- kirkju, þar sem allir tónleikarnir fara fram. „Reykholtskirkja er alveg frábær, með betri hljómandi hús- um landsins, ekki spurning,“ seg- ir Sigurgeir aðspurður um hvern- ig kirkjan henti til tónlistarflutn- ings af þessu tagi. Hátíðin er hald- in í samstarfi við Snorrastofu og Reykholtskirkju. Dagskráin saman- stendur því ekki eingöngu af tón- leikum heldur verður fyrirlestur á vegum Snorrastofu eftir hádegi á laugardag, þar sem Páll Bergþórs- son fjallar um Vínlandsgátuna, sem og hátíðarguðsþjónusta á sunnu- deginum. Tónlistin er hins vegar í aðal- hlutverki. Hátíðina opnar Karla- kórinn Heimir með tónleikum á föstudagskvöldi þar sem Þóra Ein- arsdóttir sópransöngkona verður sérstakur gestur. „Þóra leikur dálít- ið stórt hlutverk á hátíðinni því hún kemur einnig fram á söngtónleik- um á laugardeginum ásamt Stein- unni Birnu Ragnarsdóttur píanó- leikara,“ segir Sigurgeir. Þeir tón- leikar hafa fengið nafnið „Báran - svipmynd frá upphafi tónleikahefð- ar á Íslandi“ og að sögn Sigurgeirs samanstendur lagalisti þeirra tón- leika af sönglögum sem voru áber- andi við upphaf tónleikahalds í Reykjavík. „Báran var aðal tónleika- salurinn í Reykjavík á þeim tíma. Á tónleikunum verða flutt skandínav- ísk lög og lög eftir íslenska höf- unda, eins og til dæmis Sigvalda Kaldalóns og fleiri, sem voru að taka sín fyrstu skref í að semja ein- söngslög. Hefðirðu litið við á tón- leika í Reykjavík í kringum 1900 þá eru það þessi lög sem hefðu verið á dagskránni. Kannski ekki alveg í þessu samhengi en á svipuðum nót- um,“ segir Sigurgeir. Síðari tónleikar laugardags- ins eru kammertónleikar tileink- aðir lágfiðlunni, eða víólunni. Þar verður sérstakur gestur hátíðar- innar, finnski lágfiðluleikarinn Atte Kilpeläinen, í aðalhlutverki. Hann ku vera einn fremsti lágfiðluleikari Finnlands og hefur komið víða fram undanfarin ár, bæði sem einleik- ari og kammerleikari. „Atte verður áberandi á laugardagskvöldið, sér- staklega fyrir hlé þar sem Ástheiður Alda Sigurðardóttir mun leika með honum. Eftir hlé munu ég, Atte og Ari Þór Vilhjálmsson spila verk eft- ir Mozart fyrir strengjatríó. Það er kannski ekki spilað svo oft en er mjög flott verk engu að síður,“ seg- ir Sigurgeir. Reykholtshátíð lýkur svo með tónleikum á sunnudagseftirmið- degi. „Þá koma allir fram sem spil- að hafa á hátíðinni, fyrir utan karla- kórinn auðvitað. Þórður Magnús- son tónskáld hefur útsett þekkt ís- lensk dægurlög fyrir píanótríó sem Áhugaverðir tónleikar og topp flutningur á Reykholtshátíð Strengjakvartett leikur fyrir gesti Reykholtshátíðar síðastliðið sumar. Sigurgeir Agnarsson, sellóleikari og listrænn stjórnandi Reykholtshátíðar. Heimir syngur á opnunartónleikum Reykholtshátíðar. Ljósm. úr safni.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.