Skessuhorn - 22.07.2015, Qupperneq 3
Boðið verður upp á: Tónleika, varðeld, íþróttir, fjölbreyttar fræðslustundir,
stórt vatnaskógarkvöldvökur, heilt hoppukastalaþorp, báta- og vatnafjör,
fjölskylduguðsþjónustu, kyrrðarstundir, unglingadagskrá, gönguferðir og fleira.
• Söng- og hæfileikasýning barnanna.
• Leiksýningin Hafdís og Klemmi og leyndardómar háaloftsins.
• Tónleikar á laugardagskvöldinu: Regína Ósk, Friðrik Ómar og
Pétur Ben.
• Frábær tjaldstæði og möguleiki að tengjast rafmagni á
flestum flötunum.
Kynslóðirnar saman 30. júlí – 3. ágúst
Sæludagar
í Vatnaskógi
Forsala og nánari upplýsingar á skrifstofu KFUM og KFUK
í síma 588-8899, frá kl. 9.00 til 17.00 og á kfum.is
Hjartanlega velkomin(n) í Vatnaskóg um verslunarmannahelgina
Líkt og síðustu ár verður fjölskylduhátíðin Sæludagar
haldin í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina. Síðustu
ár hefur fjöldi fólks sótt hátíðina en þar skemmta
kynslóðirnar sér saman á kvöldvökum, úti á vatni og á
íþróttavellinum. Hátíðin hefst fimmtudaginn 30. júlí og
er hún vímuefnalaus.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Dagskráin í ár er fjölbreytt og spennandi að venju.
Í Vatnaskógi er frábær aðstaða fyrir unga sem aldna
og er hún nýtt á skemmtilegan og fjölskylduvænan
máta á Sæludögum.