Skessuhorn - 22.07.2015, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 20158
Landaður fisk-
afli í júní jókst á
milli ára
LANDIÐ: Heildarafli ís-
lenskra fiskiskipa var tæp-
lega 73 þúsund tonn í júní
2015, sem er 16.400 tonn-
um meira en barst á land í
júní 2014. Þorskafli stóð í
stað, en löndun á öðrum
botnfiski jókst um tæplega
2.900 tonn, eða 9% sam-
anborið við júní 2014. Flat-
fiskafli jókst um 842 tonn
eða 40% og uppsjávarafli
um tæp 13.000 tonn, eða
63%. Metið á föstu verði
jókst aflinn í júní 2015 um
14,3% miðað við júní 2014.
Á síðustu 12 mánuðum hef-
ur heildaraflamagn aukist
um tæp 236 þúsund tonn,
sem er 21,6% meira magn
en á sama tímabili árið áður.
Mest aukning varð í lönd-
un á uppsjávarafla, sem var
rúmum 266 þúsund tonn-
um meira á tímabilinu júlí
2014 - júní 2015 en á fyrra
12 mánaða tímabili.
–mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
11. - 17. júlí.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 18 bátar.
Heildarlöndun: 185.104
kg.
Mestur afli: Ásbjörn RE:
144.851 kg í tveimur lönd-
unum.
Arnarstapi 23 bátar.
Heildarlöndun: 35.346 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
11.186 kg í þremur löndun-
um.
Grundarfjörður 23 bátar.
Heildarlöndun: 829.133
kg.
Mestur afli: Vilhelm Þor-
steinsson EA: 495.145 kg í
einni löndun.
Ólafsvík 23 bátar.
Heildarlöndun: 44.858 kg.
Mestur afli: Egill SH: 16.211
kg í einni löndun.
Rif 38 bátar.
Heildarlöndun: 98.865 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
31.780 kg í þremur löndun-
um.
Stykkishólmur 25 bátar.
Heildarlöndun: 87.326 kg.
Mestur afli: Glaður SH:
7.263 kg í þremur löndun-
um.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Vilhelm Þorsteinsson
EA – GRU: 495.145 kg. 17.
júlí
2. Baldvin NC – GRU:
199.370 kg. 14. júlí
3. Ásbjörn RE – AKR:
79.685 kg. 14. júlí
4. Hringur SH – GRU:
67.386 kg. 15. júlí
5. Ásbjörn SH – AKR:
65.166 kg. 17. júlí
mþh
Viðbótar pen-
ingar vegna riðu
NV-LAND: Eins og kunnugt
er kom upp riða á þremur bæj-
um á Norðurlandi vestra fyrr
á þessu ári. Bændur og dýra-
læknar voru uggandi yfir því
að riða kynni að breiðast út frá
því svæði, einkum vegna lélegs
ástands sauðfjárveikivarna-
girðinga, yfir á svæði sem hafa
verið hrein eða þar sem ekki
hefur greinst riða undanfarin
ár. Á þessu ári hefur Matvæla-
stofnun ellefu milljónir króna
til viðhalds og niðurrifs eldri
girðinga. Ljóst er að þeir fjár-
munir duga ekki til að upp-
fylla lágmarks viðhald þeirra,
eins og fram hefur komið
í fréttum Skessuhorns. Nú
hefur Sigurður Ingi Jóhanns-
son atvinnuvegaráðherra
tryggt meira fé, eða allt að tíu
milljónir króna, til viðhalds á
sauðfjárveikivarnagirðingum
á þessu sumri til þess að bæta
úr brýnustu þörfinni. Verður
þessum fjármunum varið til
bráðaviðgerða á þeim svæð-
um sem mest hætta er tal-
in vera á um útbreiðslu veik-
innar, segir í tilkynningu frá
ráðuneytinu.
–mm
Von á nýjum
Víkingi í des-
ember
LANDIÐ: Í síðustu viku var
Ingunn AK afhent nýjum eig-
endum, sem eru Vinnslustöð-
in í Vestmannaeyjum. Ingunn
hefur nú fengið nafnið Ísleif-
ur VE og ber auk þess nýja
liti. Salan á Ingunni er liður
í endurnýjun á fiskiskipaflota
HB Granda. Hið nýja og glæ-
islega skip, Venus NS, kom í
stað Ingunnar og í desemb-
er næstkomandi verður Faxi
RE einnig afhentur Vinnslu-
stöðinni. Um svipað leyti er
von á til landsins nýjum Vík-
ingi AK, annarri nýsmíði HB
Granda í Tyrklandi. Framtíð-
aráform HB Granda eru að
gera tvö skip út til uppsjávar-
veiða og verður Lundey NS
lagt þegar Víkingur kemur til
landsins. –mm
Aukning í öllum
flokkum virðis-
aukaskatts
LANDIÐ: Velta í virðis-
aukaskattskyldri starfsemi í
mars og apríl 2015 nam tæp-
um 603 milljörðum króna
sem er 14,4% aukning miðað
við sama tímabili árið 2014.
Á síðustu 12 mánuðum er
aukningin 8,0% samanborið
við 12 mánuði þar áður. Velt-
an hefur aukist mest í flokkn-
um námugröftur og vinnsla
hráefna úr jörðu. Mikil veltu-
aukning er einnig í eftirtöld-
um flokkum: Framleiðsla
önnur en fiskvinnsla, leig-
ustarfsemi og ýmis sérhæfð
þjónusta, byggingastarfsemi
og í rekstri gisti- og veit-
ingastaða. Einhver vöxtur
varð í öllum atvinnugreina-
flokkum sem Hagstofan skrá-
ir. Minnstur varð vöxtur-
inn í landbúnaði, fiskveiðum
og vinnslu og flutningastarf-
semi.
-mm
Út er kominn sextándi
árgangur Borgfirð-
ingabókar sem er ársrit
Sögufélags Borgarfjarð-
ar. Í bókinni kennir sem
fyrr ýmissa grasa en rit-
nefnd hafði nú sem jafn-
an endranær fjölbreytn-
ina að leiðarljósi í efnis-
vali. Eins og fram kemur
í formála munar rúmlega
80 árum á elsta og yngsta
höfundi efnis í bókinni. Af
einstökum efnistökum má
nefna efni frá grunnskól-
um í héraðinu, samantekt
um innflutning bíla í gegn-
um Bifreiðaeinkasölu rík-
isins á árunum 1942-1960,
smíði smábáta við Hvítá er
rifjuð upp og boðið upp á
hrollvekju úr Landmanna-
laugum svo fátt eitt sé nefnt.
Þá má segja að vatnsafl og orka
séu nokkurs konar undirþema
í bókinni í ár. Fastir þættir svo
sem ljósmyndaþáttur, Úr bóka-
skápnum og Hljómfregnir eru á
sínum stað.
Bókin er 256 síður og ríku-
lega myndskreytt. „Rit-
nefnd vill koma á fram-
færi bestu þökkum til
allra þeirra sem lögðu
höndu á plóg, bæði höf-
unda efnis og þeirra sem
aðstoðuðu á einhvern
hátt. Ekki er ofsög-
um sagt að velvild fólks
í hvívetna geri það
mögulegt að gefa bók-
ina út árlega af svip-
aðri stærðargráðu og
raun ber vitni,“ segir
í tilkynningu frá rit-
nefnd. Pantanir og
nánari upplýsingar
um ritið má fá hjá
ritnefndarfulltrú-
um. Þeir eru Ingi-
björg Daníelsdóttir
s. 894-8108 (ingi-
bjorgd15@bifrost.
is), Guðmund-
ur Brynjúlfsson s.
617-7330 og Sæv-
ar Ingi Jónsson s.
897-5187.
mm
Sigríður Hjálmarsdóttir hef-
ur verið ráðin sem menningar-
og markaðsfulltrúi hjá Grund-
arfjarðarbæ. Sigríður starfaði
sem ráðgjafi hjá KOM almanna-
tengslum ehf. og sá þar m.a. um
kynningarmál og viðburðastjór-
nun. Hún hefur verið stunda-
kennari við Háskóla Íslands og
hefur jafnframt víðtæka reynslu af
blaðamennsku og öðrum ritstörf-
um. Hún hefur jafnframt starfað
að æskulýðsmálum, knattspyrnu-
þjálfun og löggæslu. Sigríður er
með MS próf í mannauðsstjór-
nun og BA próf í guðfræði, hvort
tveggja frá Háskóla Íslands. Sig-
ríður mun hefja störf í ágúst. mm
Unnur Steinsson verður fram-
kvæmdastjóri Fransiskus hótelsins
sem nú er verið að opna í Stykk-
ishólmi. Það mun hafa 25 her-
bergi og rúm fyrir 50 manns. Auk
þess verður þar veitingaaðstaða
og tveir fundasalir. Síðustu mán-
uði hafa staðið yfir umfangsmiklar
breytingar á húsnæði sem kaþólska
kirkjan í Stykkishólmi notaði áður
fyrir dagvistun barna og vistarverur
presta og nunna. Fransiskus hótelið
verður í eigu kaþólsku kirkjunnar á
Íslandi, mjög vel útbúið, staðsett á
besta stað í bænum með fögru út-
sýni yfir Stykkishólmshöfn og ná-
grenni. Stykkishólmur hefur und-
anfarið verið í mikilli sókn sem við-
komustaður ferðamanna. „Þó að
hótelið sé í eigu kaþólsku kirkj-
unnar þá verður það að sjálfsögðu
opið öllum. Fólk þarf alls ekki að
vera kaþólikkar til að búa hér. Þetta
verður á allan hátt eins og önnur
hótel,“ segir Unnur sem þessa dag-
ana er önnum kafin við að koma
rekstrinum af stað.
Unnur og fjölskylda hennar eiga
gamalt hús í Stykkishólmi sem þau
gerðu upp og hafa hingað til not-
að í frístundum. Undanfarin ár hef-
ur hún starfað sem innkaupa- og
vörustjóri hjá Lyfju. Hún hefur nú
hætt störfum þar og flyst búferlum
í haust ásamt eiginmanni og dótt-
ur í Hólminn. „Þetta leggst mjög
vel í okkur. Við erum mjög spennt
að byrja nýtt líf hér í Stykkishólmi.
Undanfarin ár höfum við verið hér
með annan fótinn í mörg ár, haft
hrossin okkar hérna og eigum stór-
an vinahóp á staðnum,“ segir Unn-
ur.
mþh
Ráðið í stöðu menningar-
og markaðsfulltrúa
Nýja hótelið í Stykkishólmi.
Unnur Steinsson verður
hótelstjóri í Hólminum
Unnur Steinsson flytur nú með fjöl-
skyldu sinni í Stykkishólm.
Ljósm. mbl.is/Styrmir Kári.
Borgfirðingabók 2015 er komin út