Skessuhorn - 22.07.2015, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 13
Það var létt yfir þeim, múrurun-
um hjá Múrverki RG, sem eru
þessa dagana að einangra lítið hús
við Kirkjubraut 51 og búa undir
múr. „Ég kalla þetta hús stundum
„dúkkuhúsið.“ Þetta er lítið og lágt
hús og minnir mig helst á dúkku-
hús,“ sagði Ragnar Guðmundsson,
múrari og eigandi Múrverks RG,
léttur í bragði þegar blaðamaður
tók múrarana tali á föstudaginn var.
Verkið vinnur Ragnar sjálfur ásamt
Ragnari syni sínum og Sverri Fann-
bergssyni.
„Það á að múra allt húsið upp á
nýtt að utan. Við erum að einangra
núna. Eftir helgi tekur við undir-
múrun. Svo þarf að leyfa múrnum
að standa í fjórar til sex vikur svo
ekki springi,“ sagði Ragnar Guð-
mundsson. „Næsta skref er svo
yfirmúr, síðan steiningarlím og að
lokum á að setja marmarasalla utan
á húsið. Hann verður í mismunandi
litum, svipað efni og er t.d. utan á
Bíóhöllinni. Húsið verður alveg
svakalega flott þegar þetta verður
búið,“ bætir hann við.
Aðspurðir sögðust þeir félagar
bara vera nýbyrjaðir, búnir að vera
tvo eða þrjá hálfa daga. Það fór
heldur ekki illa um þá í veðurblíð-
unni á Akranesi fyrir helgi. „Þetta
er æðislegt. Við vinnum úti á sumr-
in og inni á veturna,“ segir Ragn-
ar. Þeir gengu hreint til verks kváð-
ust hafa í nógu að snúast þessa dag-
ana. „Við vorum hér í gærmorgun.
Fórum svo á Jaðarsbrautina seinni
partinn og vorum þar til sex. Síð-
an fórum við upp í Kjós að vinna
í sumarbústað og vorum komnir
heim klukkan ellefu í gærkveldi.“
kgk
Múrað í blíðunni á Akranesi
Ragnar Ragnarsson sníðir til klæðningarplöturnar svo þær passi fyrir ofan úti-
dyrahurðina.
Ragnar Guðmundsson, Sverrir Fannbergsson og Ragnar
Ragnarsson hjá Múrverki RG unnu við að einangra Kirkju-
braut 51 á Akranesi þegar blaðamann bar að garði. Ragnar Guðmundsson borar fyrir festingunum.
24
föstudagur
25
laugardagur
26
sunnudagur
25
laugardagur
25
laugardagur
26
sunnudagur
kl. 20.00
OPNUNARTÓNLEIKAR
Karlakórinn Heimir
kl. 13.00
FYRIRLESTRAR Í HÉRAÐI
Páll Bergþórsson allar umVínlandsgátuna
kl. 14.00
HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA
Sr. Geir Waage
kl. 16.00
SÖNGTÓNLEIKAR Báran - svipmynd
frá uppha tónleikahefðar á Íslandi
kl. 20.00
KAMMERTÓNLEIKAR
Litróf lágðlunnar
kl. 16.00
LOKATÓNLEIKAR
Myndir í tónum
Verið velkomin á
ölbreytta Reykholtshátíð!
Forsala aðgöngumiða á midi.is
reykholtshatid.is | snorrastofa.is
24.-26.
JÚLÍ • 2015
Sígild tónlist í sögulegu umhverfi
Dagskrá Snorrastofu
Hátíðarguðsþjónusta
SÓKNARÁÆTLUN
VESTURLANDS
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Tölvuumsjónarmaður
Laust er til umsóknar 80% starf tölvuumsjónarmanns.
Brýnt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Tölvuumsjónarmaður sinnir daglegri notendaþjónustu og
kerfisstjórn í grunnskólum, leikskólum og öðrum stofnunum
sveitarfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Umsjón og rekstur á Windows netþjónum ásamt umsýslu
með Office 365.
• Uppsetning á vél-, hug- og jaðarbúnaði.
• Umsjón með tölvum og öðrum vélbúnaði.
• Innkaup og ráðgjöf vegna vél- og hugbúnaðar.
• Samskipti við birgja og þjónustuaðila
upplýsingatæknilausna.
• Stefnumótun og ráðgjöf á sviði upplýsingamála.
• Námskeið og fræðsluefni fyrir notendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólagráða eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Starfsreynsla á sviði upplýsingatækni.
• Góð þekking og reynsla við þróun og viðhald
upplýsingakerfa.
• Góð þekking og reynsla á innleiðingu hugbúnaðar.
• Góð þekking á Microsoft Office, Office 365 og leyfismálum.
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið
kolfinna@borgarbyggd.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og
kynningarbréf.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetur sveitarfélagið karla
jafnt sem konur til þess að sækja um starfið.