Skessuhorn - 22.07.2015, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 15
Sveitamarkaður
Í gömlu hlödunni í Nesi Reykholtsdal
Kaf f iveitingar í Byrgishól
Handverk & matvara úr héradi
Farmers Market in the Old Barn in Nes,
Reykholtsdalur. Local Produce.
LAUGARDAGINN
25.07.2015
SATURDAY
KL 13-17
Fréttaveita Vesturlands
Blaðið okkar kemur ekki út miðvikudaginn
5. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks.
Bestu kveðjur,
Sumarfrí
ekkert blað
5. ágúst
Kæri lesandi
Um helgina halda Grundfirðingar
bæjarhátíð sína sem heitir „Á góðri
stund í Grundarfirði.“ Kristín Lilja
Friðriksdóttir framkvæmdastjóri há-
tíðarinnar segir að þar verði hverf-
um bæjarins skipt í mismunandi
liti. „Þetta er hefð sem hefur ver-
ið frá 2005. Hverfin fá litina gulan,
rauðan, grænan og bláan. Þau kepp-
ast um að skreyta sem mest og best.
Síðan keppa hverfin einnig sín á
milli í pílukasti og körfubolta. Einn-
ig verður valið um best skreytta hús-
ið,“ segir hún.
Sjálf bæjarhátíðin hefst með svo-
kölluðu þjófstarti á fimmtudags-
kvöld. Þá verður haldin grillveisla
í boði Samkaupa. Söngkonurn-
ar Regína Ósk og Sigga Beinteins
mæta og flytja lög sem Tina Turner
hefur gert fræg í gegnum tíðina. Síð-
an kemur Kári Viðarsson Frystiklef-
astjóri úr Rifi og spilar sem trúba-
dor. Allt þetta verður í veislutjaldi
sem reist er á hafnarsvæðinu. „Á
föstudag fáum við svo Íþróttaálfinn
og Sollu Stirðu úr Latabæ í heim-
sókn. Síðan er hin svokallaða Froð-
ugáma sem slökkviliðið sér um í
boði Saltkaupa. Þar er froðu spraut-
að á dúk og síðan geta allir ver-
ið með í partíi og hlustað á tónlist.
Óli Siggi og Sjöfn, hjón sem búa
hér að Gröf I, ákváðu að bjóða upp
á tónleika í garðinum hjá sér. Þar
munu grundfirskir tónlistarmenn
koma fram. Um kvöldið er svo ball
í veislutjaldinu á hafnarsvæðinu.“
Á laugardaginn verður svo ým-
islegt til skemmtunar. „Það er
dorgveiði á bryggjunni klukk-
an 10, fjölskylduskemmtun í boði
Soffaníasar Cesilssonar klukkan
13, Lionsklúbburinn selur fiski-
súpu, það verða hoppukastalar og
ýmislegt fleira í boði fyrir börn-
in. Um kvöldið eru skrúðganga og
bryggjuball með Sálinni hans Jóns
míns. Hátíðinni lýkur með því.
Það er engin dagskrá á sunnudeg-
inum,“ segir Kristín Lilja. „Þetta
er fyrst og fremst fjölskylduhá-
tíð. Hér verður fíkniefnahundur
sem vonandi skemmtir sér jafn vel
og aðrir og þarf ekkert að vinna,“
hlær hún við að lokum.
Spáð er góðu veðri í Grundar-
firði um helgina, að vísu skýjuðu
en úrkomulausu og þokkalega
hlýju veðri. Fræðast má nánar um
dagskrá og gang hátíðarinnar á Fa-
cebook-síðu hennar.
mþh
Kristín Lilja Friðriksdóttir er framkvæmdastjóri bæjarhátíðarinnar „Á góðri stund
í Grundarfirði.“ Hér er hún í liðinni viku heima í Grundarfirði með Sólveigu Björt
Einarsdóttur, tíu mánaða dóttur sinni.
Bæjarhátíðin Á góðri stund haldin í
Grundarfirði um helgina