Skessuhorn - 22.07.2015, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 201518
Síðastliðinn föstudag opnaði
Vegagerðin fyrir umferð ökutækja
yfir Arnarvatnsheiði, norður í
Húnavatnssýslu. Nú er því hægt
að aka sem leið liggur úr Húsa-
felli, um Hallmundarhraun, yfir
Helluvað og þaðan hina gömlu
leið norður yfir heiðina í Arnar-
vatn stóra og í Miðfjörð. Eins og
fram hefur komið í Skessuhorni
var snjór óvenjulega lengi að
taka upp á heiðinni enda kalt vor
og talsverður snjór á hálendinu.
Veiðimenn gátu þó ekið í Úlfs-
vatn á venjulegum tíma um miðj-
an júní, en þá hafði veiðifélagið
beitt sér fyrir því að snjór hafði
verið hreinsaður af vegarslóðan-
um þangað til að vegurinn þorn-
aði fyrr. Að sögn Snorra Jóhann-
essonar veiðivarðar á Arnarvatns-
heiði hefur verið ágæt umferð fólks
á heiðina í sumar og flestir virt lok-
anir á vegum. Þó hefur hann þurft
að koma fólki til aðstoðar, ekki síst
erlendum ferðamönnum sem fest
hafa bíla sína og komið sér í ógöng-
ur. Rétt er að benda á að sem fyrr
þarf að aka varlega yfir vöðin á
Norðlingafljóti. Eftir heita daga
hefur talsvert vatn verið í fljótinu
og sérstakrar aðgæslu þörf.
Veiði hefur verið ágæt í vötnun-
um á sunnanverðri Arnarvatnsheiði
í sumar. Núpatjörn hefur að sögn
Snorra verið að koma skemmtilega
á óvart og gefur nú stóran og falleg-
an silung. Þá hefur ágæt veiði verið
í Stóralóni. Veiðileyfi eru sem fyrr
seld í söluskálanum við Hraunfossa
í Hálsasveit.
mm
Greiðfært orðið um Arnarvatnsheiði
og fín veiði í vötnunum
Olgeir Helgi Ragnarsson úr Borgar-
nesi er meðal þeirra veiðimanna
sem reynt hafa fyrir sér á heiðinni í
sumar með góðum árangri. Hér er
hann með fallegan 60 cm urriða úr
Stóralóni.
Fyrsta áin rauf þúsund laxa múrinn
í síðustu viku en samkvæmt viku-
legu yfirliti Landssambands veiði-
félaga 15. júlí síðastliðinn voru
1.068 fiskar þá komnir á land úr
Norðurá. Blanda fylgdi nokkuð fast
á eftir með 993 laxa. „Af gagna-
grunnsánum okkar 25 er það að
frétta að heildar veiðitölur úr þeim
eru nú 7.094 laxar, eftir 3.526 land-
aða fiska í liðinni viku. Veiðin er
greinilega að ná sér á strik,“ skrif-
ar Þorsteinn Þorsteinsson á Skálpa-
stöðum á vef LV, angling.is „Ef við
berum þetta saman við undanfar-
in ár þá er meðalveiðin úr ánum 25
nálægt 7.175 löxum síðan 2006. Því
má segja að veiðin núna sé ótrúlega
nærri pari. Vonandi heldur veiðin
áfram að batna þannig að tölurn-
ar komist fljótlega upp fyrir með-
altalið.“
Þorsteinn segir að víða kvarti
menn undan því að laxinn gangi
hægt upp árnar, jafnvel þótt bæði
vatnshæð og hitastig virðist í góðu
lagi. „Þetta er svo almennt að menn
telja að einhver sameiginleg orsök
hljóti að liggja að baki. En eins og
vanalega er fátt um öruggar skýr-
ingar. Sú trúlegasta sem ég hef
heyrt hingað til er að snjórinn frá í
vetur sé mengaður af brennisteins-
samböndum úr Holuhraunsgosinu
frá í haust og vetur. Það líki lax-
inum illa við. Víða um land hef-
ur veðurfar verið þurrt upp á síð-
kastið, þannig að mikill hluti ár-
vatnsins nú er snjóbráð. Því verði
þetta svona uns fer að rigna næst.
Ekki veit ég hvað fiskifræðing-
ar segja um svona alþýðuskýringu,
og kannske luma þeir á einhverri
sennilegri kenningu. Sé svo, þá
birta þeir hana vonandi sem fyrst,“
skrifar Þorsteinn.
Gengur vel
„Veiðin gengur rosalega vel og við
erum komnir vel yfir þúsund laxa,
nálægt ellefu hundruð fiskum,“
sagði Elvar Örn Friðriksson við
Norðurá í Borgarfirði þegar tíð-
Veiðin það sem af er sumri á pari við meðalár
indamaður Skessuhorns hitti hann
á bökkum árinnar síðastliðinn föstu-
dagsmorgun. Veiðin í ánni hefur
verið mjög góð í sumar og ekkert
lát virðist vera á göngu laxa í hana.
„Besti dagurinn gaf 120 laxa og það
eru fiskar að koma á hverju flóði,“
sagði Elvar Örn. Norðurá hefur nú
gefið flesta laxa íslensku ánna. Í öðru
sæti er Blanda en því næst Þverá í
Borgarfirði.
Dalirnir í rólegri
kantinum
„Við vorum að koma úr Fáskrúð
í Dölum og fengum einn lax. Það
var ekki mikið af fiski þarna,“ sagði
Steinþór Laxdal sem var á veiðislóð
í Dölunum en veiðin hefur verið
frekar róleg þar enn sem komið er.
Haukadalsá og Laxá í Dölum hafa
þó verið að gefa. Haukadalsá var
næstum komin í 100 laxa og Laxá í
Dölum 65 laxa um síðustu helgi.
„Hvolsá og Staðarhólsá hafa gefið
yfir 20 laxa og eitthvað af bleikju,“
sagði Kristjón Sigurðsson er við
spurðum um stöðuna í ánum. Lítið
hefur frést af Hörðudalsá og Miðá
en bændur selja sjálfir í þessar ár í
sumar. Búðardalsá hafði fyrir helgi
gefið 66 laxa og fyrstu laxarnir eru
komnir á land í Fáskrúð í Dölum.
Torfur af laxi í
Brennunni
Smálaxinn er að hellast inn í árn-
ar í Borgarfirði, svo sem í Norðurá,
Straumana og í Brennuna. Fiskur-
inn hefur verið að koma á síðustu
flóðum. Mikið er af fiski í Brenn-
unni. „Heilu torfurnar,“ sagði veiði-
maður sem var þar við veiðar fyrir
helgina. En vatnið hafði þá minnkað
verulega vegna þurrka. „Síðasta holl
sem hætti í gær var með 143 laxa í
Þverá og Kjarará, þar af 85 í Þverá,“
sagði okkar maður á staðnum. Áin
hafði þá gefið 680 laxa en vatnið
hafði minnkað mjög mikið.
Langáin er öll að koma til.
,,Langá hefur gefið 340-350 laxa
sem er miklu betra en á sama tíma
í fyrra,“ sagði Ari Hermóður Jafets-
son, framkvæmdastjóri Stangaveiði-
félags Reykjavíkur, í samtali við tíð-
indamann fyrir helgina.
mm/gb
Á veiðum í Norðurá.
Veitt í Haukadalsá í Dölum fyrir fáum dögum.
Með einn vænan úr Norðurá.
Veiðimenn með lax úr Þverá í síðustu viku. Fallegur fiskur þetta.
Ljósm. Aðalsteinn.
„Þveráin er skemmtileg laxveiðiá,“ sagði Gunnar Helgason leikari sem var að koma úr Þverá í Haukadal, en veiðin er nú
byrjuð þar fyrir alvöru og einnig í Haukadalsá. „Þetta var fín ferð og við fengum allavega í soðið,“ sagði Gunnar. Hér kíkir
hann eftir fiski við Blóta, hvar Þverá kemur út í Haukuna.