Skessuhorn - 22.07.2015, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 201530
Hvaða íslenska blóm
heldur þú mest uppá?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Árný Eir Kristjánsdóttir
„Bláklukku.“
Anna Rut Jónsdóttir
„Gleym mér ei.“
Sigurbjörg Kristjánsdóttir
„Sólboða.“
Þórður Ólafsson
„Njóla.“
Dóra Marín Karvelsdóttir
„Lilju.“
Leikmenn ÍA í þriðja flokki kvenna
tóku sameiginlegt lið Gróttu/KR í
kennslustund þegar liðin mættust í
B1-deild Íslandsmótsins á Akranes-
velli á mánudagskvöld. Markaregn
Skagastúlkna hófst þegar á tíundu
mínútu leiksins. Skoruðu þær hvert
markið á fætur öðru þar til staðan
var orðin 10-0 og dómarinn flaut-
aði leikinn af.
Atkvæðamest í liði ÍA var Kar-
en Þórisdóttir sem skoraði fimm
mörk. Bergdís Fanney Einarsdótt-
ir skoraði þrjú og þær Eva María
Jónsdóttir og Svandís Guðbjörg
Karlsdóttir gerðu sitt markið hvor.
Liðið er í harðri baráttu á toppi
deildarinnar með 19 stig eftir 7 leiki,
markatöluna 34-4 og á leik til góða
á Þrótt sem er í öðru sæti, þremur
stigum á eftir ÍA. Næst mætir liðið
Stjörnunni á Bessastaðavelli mið-
vikudaginn 29. júlí næstkomandi.
kgk/ Ljósm. KFÍA á Facebook.
Risasigur ÍA á Gróttu/KR
Leikmenn fengu fleiri en eitt, fleiri en tvö og fleiri en níu tækifæri til að fagna
marki í leiknum á móti Gróttu/KR.
Skagastúlkur höfðu skorað 10 mörk
þegar flautað var til leiksloka á
Akranesvelli á mánudagskvöld.
Líkt og síðustu ár verður fjöl-
skylduhátíðin Sæludagar haldin í
Vatnaskógi um Verslunarmanna-
helgina. Síðustu ár hefur fjöldi fólks
sótt hátíðina en þar skemmta kyn-
slóðirnar sér saman á kvöldvökum,
úti á vatni og á íþróttavellinum. Há-
tíðin hefst fimmtudaginn 30. júlí og
er hún vímuefnalaus.
„Dagskráin í ár er fjölbreytt og
spennandi að venju. Í Vatnaskógi er
frábær aðstaða fyrir unga sem aldna
og er hún nýtt á skemmtilegan og
fjölskylduvænan máta á Sæludög-
um,“ segir Gylfi Bragi Guðlaugsson,
einn af forsvarsmönnum hátíðarinn-
ar. Boðið verður upp tónleika þar
sem þau Pétur Ben, Friðrik Ómar
og Regína Ósk stíga á stokk. Varð-
eldur verður í boði, íþróttir, fræðslu-
stundir, kvöldvökur, hoppukastala-
þorp, báta- og vatnafjör, fjölskyldu-
guðsþjónustu, spennandi unglinga-
dagskrá og fleira. Söng- og hæfi-
leikasýning barnanna er fastur liður
í dagskrá Sæludaga en þar hafa mörg
börn stigið sín fyrstu skref á svið-
inu með hljóðnema í hönd. Leiksýn-
ingin Hafdís og Klemmi og leynd-
ardómar háaloftsins verður sýnd. Á
laugardagskvöldinu verða tónleikar,
þau Regína Ósk, Friðrík Ómar og
Pétur Ben munu skemmta gest-
um Sæludaga. Á svæðinu eru frábær
tjaldstæði og möguleiki að tengjast
rafmagni á flestum flötunum.
Forsala og nánari upplýsingar á
skrifstofu KFUM og KFUK í síma
588-8899, frá kl. 9.00 til 17.00 og á
kfum.is mm
Kynslóðirnar saman á
Sæludögum í Vatnaskógi
Dagana 16. til 19. júlí síðastliðna
var Símamótið í knattspyrnu haldið
í Kópavogi. Mótið er fyrir stúlkur í
5., 6. og 7. flokki og er stærsta knatt-
spyrnumót stúlkna á landinu í dag.
Knattspyrnufélag ÍA sendi samtals
tíu lið til keppni í ár og fór svo að
stúlkurnar í B-liði 5. flokks sneru
heim með gullverðlaun eftir æsi-
spennandi úrslitaleik gegn Stjörn-
unni. Staðan var markalaus eftir
venjulegan leiktíma og því varð að
grípa til framlengingar. Skagastúlk-
um tókst að skora snemma í fram-
lengingunni og sneru því heim með
bikarinn í farteskinu. Glæsilegur
árangur hjá þessum knattspyrnu-
hetjum framtíðarinnar. kgk
ÍA stúlkur unnu til
gullverðlauna á Símamótinu
Knattspyrnuhetjurnar sem unnu til gullverðlauna í 5. flokki B-liða á Símamótinu
um síðustu helgi fagna ákaft með bikarinn. F.v. Friðmey Ásgrímsdóttir, Brynhildur
Helga Viktorsdóttir, Dagbjört Líf Guðmundsdóttir, Marey Edda Helgadóttir,
Evlalía Lind Þórðardóttir, María Rún Ellertsdóttir, Rúna Björk Guðmundsdóttir og
fyrir framan situr Amber Ýr Taroni.
Heimsmeistaramótið í hesta
íþróttum verður haldið í Herning í
Danmörku dagana 3.-9. ágúst. Ís-
lenska landsliðið var kynnt í versl-
un Líflands á miðvikudaginn í síð-
ustu viku. Í hópi ungmenna var
Konráð Axel Gylfason úr Borgar-
firði valinn ásamt hryssunni Von
frá Sturlureykjum II. „Ég vissi að
hún gæti skeiðað en vissi ekki að
hún gæti skeiðað svona fyrr en í
vor. Hún tók þátt í meistaradeild-
inni í vetur en ég tók svo við og
er búin að vera að þjálfa hana í
sumar,“ segir Konráð í samtali við
Skessuhorn.
Ánægjulegt er að segja frá því að
það verða þrír hestar frá Sturlu-
reykjum í Reykholtsdal sem keppa
á mótinu. Bróðir Vonar, Vörður
frá Sturlureykjum II verður vara-
hestur fyrir Þýskaland og Smellur
frá Leysingjastöðum keppir fyrir
Belgíu. arg
Konráð Axel í landsliðið í
hestaíþróttum
Konráð á Verði bróður Vonar. Vörður
verður einnig á heimsmeistaramótinu
í Danmörku.
Ljósm. Fengin af facebook síðu
Hrafnhildar Guðmundsdóttur.
Kokkurinn Mathieu Zevenhuizen
hefur um tíma búið til og reitt fram
heimagert pasta fyrir matargesti í
Hreðavatnsskála. Síðustu tvær vik-
ur hefur hann, með tilkomu nýrrar
vélar, aukið afköst pastagerðarinn-
ar og hafist handa við að framleiða
mismunandi tegundir. Þar má nefna
Norðurárdalsskeljar, Grábrókar-
skrúfur, Glannapelle og Paradísarn-
úðlur.
Að sögn Mathieu er stefnt að því
í að auka framleiðslu og hefja sölu
á pastanu í Hreðavatnsskála í náinni
framtíð, auk þess sem réttirnir verða
áfram á matseðlinum. Ef vel tekst
til er áætlað að markaðssetja pastað
enn frekar fyrir almennan markað.
Til að kynna pastagerð sína hyggst
Mathieu gera tilraun til að elda
lengstu núðlur á Íslandi á morgun,
fimmtudaginn 23. júlí klukkan 16.
Nýja pastagerðarvélin verður fyllt af
deigi og núðlur búnar til. Því næst
verða þær mældar og að lokum eld-
aðar. Gestum og gangandi verður
svo boðið að smakka, endurgjalds-
laust. kgk
Ætlar að elda lengstu
núðlur á Íslandi
Hreðavatnsskáli í Borgarfirði.
Paradísarnúðlur úr Hreðavatnsskála.
Verður ein slík lengsta núðla landsins?