Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 1
Síðastliðin fjögur ár hefur verið unn-
ið að því að koma á fót þangvinnslu
á Miðhrauni í Eyja- og Miklaholts-
hreppi til að vinna þang og þara úr
Breiðafirðinum. Til að slíkt sé mögu-
legt þarf meðal annars hentugt skip
og pramma til að afla hráefnisins.
Félagsbúið á Miðhrauni hefur nú fest
kaup á hollensku skipi sem siglt hef-
ur verið til landsins og liggur nú við
bryggju í Stykkishólmi. Var því gef-
ið nafnið Þangbrandur I og að sögn
eigenda félagsbúsins er um að ræða
vel útbúið og hentugt skip til þess-
ara hluta.
„Skipið er með kló sem er notuð til
að sækja hrossaþara og stórþara. En
við stefnum að því að hefja handslátt
á þangi í haust. Þá er þangið slegið í
fjörunni, sett í poka og á flot. Skip-
ið kemur svo og sækir þangið,“ segir
hún. Engir prammar hafa verið keypt-
ir enn sem komið er og verður hand-
slætti því aðeins beitt fyrst um sinn.
„Við stefnum að því að smíða jafnvel
bara pramma sjálf, en einhvers stað-
ar þurfum við að byrja,“ sagði Bryn-
dís Hulda Guðmundsdóttir forstjóri í
samtali við Skessuhorn.
Stefnt að framleiðslu
á alginati
Að sögn Bryndísar styttist óðum í
að hægt verði að hefja þangvinnslu á
Miðhrauni. „Við keyptum frá Þýska-
landi stóran færibandaþurrkara sem
við erum búin að setja upp. Húsin
eru alveg að verða tilbúin fyrir þang-
vinnsluna. Í dag er staðan þannig að
við erum að bíða eftir öllum leyfum
til að geta byrjað að slá þang. Við
erum í samstarfi við menn sem eiga
lönd í Breiðafjarðareyjum og mun-
um slá þar. Þetta eru þeir Ingvar Arn-
dal, Ómar Arndal og Jón Helgi Jóns-
son. Þeir hafa unnið hjá Félagsbúinu
í nokkur ár, meðal annars við að und-
irbúa aðstöðuna og munu stýra þang-
slættinum og öfluninni,“ segir Bryn-
dís.
Innan tveggja ára er stefnt að því
að farið verði að fullvinna þangið og
framleiða alginat. Alginat er fjölsykra
með mikla bindieiginleika og inni-
hald þess í þangi er hátt. Það er notað
í margs konar iðnaði, til dæmis mat-
væla- og lyfjaiðnaði, auk þess sem það
er notaði við gerð ýmissa snyrtivara.
„Við erum langt komin að setja
upp alginatverksmiðju, það er í ferli.
Búið er að hanna verksmiðjuna og nú
er komið að því að kaupa tæki og tól,“
segir Bryndís. „Við byrjum hins veg-
ar á því að þurrka og hakka hráefnið
á meðan við vinnum að því að koma
upp alginatverksmiðjunni. Stefnan er
aftur á móti fullvinnsla,“ bætir hún
við að lokum. kgk
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 35. tbl. 18. árg. 26. ágúst 2015 - kr. 750 í lausasölu
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Lúsina burt!
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 898 1779
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
OPIÐ
12.00 – 21.00
Hvalfjarðar-
dagar
28. - 30. ágúst
Fjölbreytt dagskrá
um alla sveit
Leikskólar á Vesturlandi eru allir byrjaðir eftir sumarleyfi. Alls eru skólarnir 16 talsins frá Akranesi í suðri til Reykhóla í norðri.
Nemendur í þeim eru 973 á aldrinum eins til fimm ára. Leikskólar mynda sér stefnu til að fara eftir og er gaman að sjá hversu
ólík hún er og fjölbreytt á Vesturlandi. Frá þessu og ýmsu fleiru er greint í samantekt sem fylgir Skessuhorni í dag um upphaf
skólaársins í leikskólunum. Meðfylgjandi mynd er tekin í ferð nemenda Auðarskóla í Dölum á síðasta ári þegar geitabúið á
Háafelli í Hvítársíðu var sótt heim. Ljósm. Steinunn Matthíasdóttir.
Þangbrandur I er kominn til landsins
Þangbrandur I, nýtt skip Félagsbúsins Miðhrauns, þar sem það liggur við bryggju í
Stykkishólmi. Skipið verður notað við öflun þangs og þara úr Breiðafirðinum.
Í haust hóf skólagöngu sína í Brekku-
bæjarskóla á Akranesi barn með óvenju
slæmt fæðuofnæmi. Af því tilefni var
bréf sent til allra foreldra barna í skól-
anum, þar sem fram koma upplýsing-
ar um ofnæmi barnsins, sem hefur lífs-
hættulegt bráðaofnæmi fyrir fiski, hnet-
um og eggjum. Barnið hefur auk þess of-
næmi fyrir fleiri fæðutegundum, dýrum
og ýmsu öðru sem hefur minni áhrif á
líf þess. Stjórnendur Brekkubæjarskóla
hafa sett reglur um hvað nemendur
skólans mega ekki taka með sér í nesti
vegna ofnæmis barnsins og eru foreldrar
annarra barna í skólanum beðnir um að
virða einnig þær reglur. Ofnæmi barns-
ins hefur því áhrif á líf fjölmargra ann-
arra nemenda og starfsfólks, sem nú
mega ekki taka hvað sem er með sér í
nesti. Að sögn Arnbjargar Stefánsdóttur
skólastjóra Brekkubæjarskóla eru regl-
urnar ekki staðlaðar, heldur er hér um
að ræða óvenjulega slæmt tilfelli af of-
næmi og því var brugðist við því með
þessum hætti. „Líf þessa barns er í hættu
ef það kemur nálægt hnetum eða fiski.
Það er því bannað að koma með hnetur,
fæðu sem inniheldur hnetur og fiskmeti
í nesti,“ útskýrir Arnbjörg.
Þrátt fyrir að þessi staða hafi kom-
ið upp verður öðrum nemendum skól-
ans áfram boðið upp á fisk í hádeginu.
„Eins og staðan er munum við halda
áfram að elda fisk tvisvar í viku en þá
fer nemandinn ekki í matsalinn. Svipuð
staða hefur komið upp í öðrum skólum
og við vitum um tilfelli þar sem foreldr-
ar eru hreinlega beðnir um að sjá alfarið
um fiskneyslu barna sinna sjálfir, vegna
svona alvarlegs ofnæmis.“ Arnbjörg
leggur áherslu á að foreldrar nemenda
í Brekkubæjarskóla kynni sér efni bréfs-
ins sem þeir fengu sent, enda komi þar
fram upplýsingar um þær fæðutegundir
sem ekki eru leyfðar inn fyrir dyr skólans.
„Þar eru nefnd dæmi um mat og nasl
sem inniheldur hnetur, svo sem korn-
stangir, orkustykki, hunangs-Cheerios
og fleira. Þá er allt fiskmeti bannað, svo
sem harðfiskur, kavíar og túnfiskur. Þetta
barn er bara með það mikið ofnæmi að
við treystum því að aðrir foreldrar taki vel
í þetta og fari eftir þessu. Maður leggur
ekki líf barns í hættu bara til að geta tek-
ið með sér hnetur í nesti,“ segir Arnbjörg
og bendir foreldrum barna við skólann á
að hafa samband við skólaheilsugæslu
hafi þeir einhverjar spurningar. grþ
Með lífshættu-
legt ofnæmi