Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2015, Síða 15

Skessuhorn - 26.08.2015, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2015 15 GRUNDARGÖTU 30, 350 GRUNDARFIRÐI SÍMI: 430 8500, FAX: 430 8501 Grundarfjarðarbær Starf skipulags- og byggingarfulltrúa SK ES SU H O R N 2 01 5 Grundararðarbær auglýsir starf skipulags- og byggingarfulltrúa laust til umsóknar. Um er að ræða mjög spennandi starf í áhugaverðu samfélagi. Leitað er eftir öugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa starð á traustum grunni. Byggingarfulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayrlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa. Um er að ræða 100% starf og er umsóknarfrestur til og með 3. september nk. Samkvæmt auglýsingunni er starfssvið byggingarfulltrúa eftirfarandi: Framkvæmd skipulags- og byggingarmála. Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar. Undirbúningur- og eftirfylgni funda skipulags- og bygginganefndar. Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar, sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála. Yrumsjón framkvæmda og eignasýslu í sveitarfélaginu. Önnur verkefni. Menntunar- og hæfniskröfur: Menntun á sviði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og skipulagslaga nr. 123/2010, er nauðsynleg. Reynsla af stjórnun æskileg. Þekking og reynsla af úttektum og mælingum. Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingarreglugerð. Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur. Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæleikar. Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku. Góð almenn tölvukunnátta. Umsókn á að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starð. Laun eru samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga við Samband íslenskra sveitarfélaga. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn á netfangið thorsteinn@grundarordur.is, eigi síðar en 3. september nk. Einnig er óskað er eftir að umsækjendur tilgreini a.m.k. tvo umsagnaraðila í umsókn sinni. Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Steinsson, bæjarstjóri Grundarrði, í síma 430-8500 eða tölvupósti: thorsteinn@grundarordur.is. Grundararðarbær tillaga að starfsleyfi FYRIR NORÐURÁL Á GRUNDARTANGA, HVALFJARÐARSVEIT Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að nýju starfsleyfi fyrir Norðurál Grundartanga ehf. Tillagan er til komin vegna áforma um aukna framleiðslu. Starfsleyfistillagan gerir ráð fyrir allt að 350.000 tonna ársframleiðslu. Tillagan mun liggja frammi ásamt umsóknargögnum á skrifstofu Hvalarðarsveitar á tímabilinu 25. ágúst til 20. október 2015. Tillöguna má einnig nálgast á umhverfis stofnun.is ásamt fylgigögnum. Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 20. október 2015. OPINN KYNNINGARFUNDUR verður í Fannahlíð, Hvalarðarsveit, mánudaginn 31. ágúst næstkomandi. Fundurinn hefst kl. 17:00 og verður allað um starfsleyfis- veitingar Umhverfisstofnunar og tillagan kynnt. Einnig verður opnað fyrir umræður. Hjólum í skólann – framhaldsskóla- keppni fer fram í þriðja sinn dagana 9.-22. september í tengslum við evr- ópsku samgönguvikuna. Markmiðið er að vekja athygli á virkum ferða- máta sem heilsusamlegum, umhverf- isvænum og hagkvæmum samgöngu- máta. Þá fer verkefnið Göngum í skólann fram í níunda sinn dagana 9. septem- ber til 7. október. Markmið verkefn- isins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein ein- faldasta leiðin til að auka hreyf- ingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreið- ar, hlaup, línuskauta og hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bund- inn við andlega og líkamlega vellíð- an heldur er þetta einnig umhverfis- væn og hagkvæm leið til að komast á milli staða. Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hef- ur þátttakan hér á landi vaxið jafnt og þétt í gegnum árin. mm/ Ljósm. fh. Hvatt til að hjóla eða ganga til skóla Íbúar í Flatey hafa óskað eftir því að stjórnsýsla eyjunnar, sem heyr- ir undir Reykhólahrepp, verði færð yfir á Snæfellsnes og að eyjan verði framvegis hluti af Stykkishólmsbæ. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 mánudaginn 24. ágúst síðastliðinn. Í viðtali sagði Magnús Jónsson, bóndi í Flatey, að Flateyingar ættu ekki hljómgrunn með Reykhólahreppi lengur, þeir ættu mun frekar samleið með Stykkishólmsbæ, þangað sem þeir sæktu alla sína þjónustu. Enn fremur færu allar samgöngur til og frá eyjunni í gegnum Stykkishólm, en Breiðafjarðarferjan Baldur sigl- ir reglulega milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey. Haft er eftir Ingibjörgu Birnu Erlingsdóttur að Reykhólahrepp- ur vilji halda Flatey, meðal annars vegna sögulegra tengsla. Hreppur- inn hafi ekki fengið formlegt erindi frá íbúum Flateyjar, það hafi verið sent Stykkishólmsbæ og Reykhóla- hreppur sjái ekki ástæðu til að svara því. Sjö íbúar eru með lögheimili sitt í Flatey en yfir sumartímann dvelja þar að jafnaði um og yfir eitt hundr- að manns. kgk/ Ljósm. fh. Flateyingar vilja sameinast Stykkishólmsbæ Veiðin er betri í Haukadalsá og Laxá í Dölum en á sama tíma í fyrra og enn er talsvert eftir af veiðitím- anum. Fiskur er ennþá að ganga í þessar laxveiðiár. „Þetta er miklu betri veiði en í fyrra í Hauka- dalsánni og það er mikið af fiski í henni,“ sagði Ari Hermóður Jafets- son er við spurðum um Haukadals- ána, sem Stangaveiðifélagið hefur gert samning til ársins 2020 með ána. „Fiskurinn er dreifður um alla Miklu betri veiði í Haukadalsá en í fyrra á og ennþá eru fiskar að ganga á hverju flóði,“ sagði Ari Hermóður enn fremur. Laxá í Dölum er komin í 633 laxa og er það mun betri veiði en á sama tíma í fyrra. „Veiðin gengur vel í Laxá og fiskur um alla á,“ sagði Jón Þór Júlíusson sem var á veiðislóð- um í Dölunum fyrir skömmu og veiddi vel. gb Ragnheiður Thorsteinsson með fallegan lax úr Haukadalsá um helgina.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.