Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 2015 17 Hausta tekur og við förum að huga að því að geyma mat til vetrarins Skyrmysa er tilvalin til að sýra slátrið og ýmsan annan mat. Fáanleg í 2,5, 5 og 10 ltr brúsum Hægt að panta í Ljómalind í síma 437 1400 eða á Erpsstöðum í síma 868 0357 Einnig er hægt að panta á netfanginu erpur@simnet.is www.erpsstadir.is Rjómabúið á facebook. SK ES SU H O R N 2 01 4 Sýningin Saga líknandi handa hefur verið opin í Safnaskálanum í Görð- um á Akranesi í sumar. Fjöldi gesta hefur litið við og skoðað sýninguna og vel hefur verið af henni látið. Síðastliðinn fimmtudag var hópur á ferð frá Hjúkrunarfræðideild Há- skóla Íslands. Var hópurinn á ferð á Akranesi til rifja upp þær miklu breytingar sem orðið hafa í hjúkrun og fæðingarhjálp. Myndin er tekin í Apótekinu hennar Fríðu Proppé. Bæjarhjúkrunarkonan virðulega, lengst til hægri er í búningi Sígríð- ar Eiríksdóttur móður Vigdísar for- seta, en Sigríður var í áratugi for- ystukona fyrir Hjúkrunarfélag Ís- lands. mm/ip Fjölmenni hefur skoðað sýninguna Saga líknandi handa Uppsveifla í ferðaþjónustu und- anfarin misseri felur í sér nýjar áskoranir fyrir sveitarfélögin, m.a. vegna breyttrar nýtingar á fast- eignum. Samband íslenskra sveit- arfélaga brýnir sveitarfélög í land- inu til að herða eftirlit með hvern- ig nýting íbúðarhúsnæðis er. Ef það er leigt út til ferðaþjónustu ber eigendum þess skylda til að greiða hærri fasteignagjöld. „Framboð á heimagistingu hefur aukist mikið, auk þess sem algengt er að íbúðar- húsnæði sé leigt út á bókunarvefj- um,“ segir í tilkynningu frá SÍS. Þá segir að töluverður misbrest- ur hafi verið á því að aflað væri til- skilinna leyfa til slíks rekstrar og hluti þessara auknu umsvifa tengj- ast svonefndri svartri atvinnustarf- semi. Töluverðir hagsmunir fel- ast í því að sveitarfélög lagi stjórn- sýslu sína að þessum breytingum og þau gæti þess m.a. að álagning fasteignaskatts taki mið af nýtingu húsnæðis.“ Í leiðbeiningum sem sambandið hefur birt á heimasíðu sinni er að finna ábendingar um ýmis álita- efni sem nýst geta sveitarfélögum við ákvörðun um álagningu fast- eignaskatts á mannvirki sem tengj- ast ferðaþjónustu. Leiðbeining- arnar hafa vakið töluverð viðbrögð og er ljóst að víða er áhugi á því að vanda betur til verka við álagningu fasteignaskatts á þessar fasteignir. mm Sveitarfélög skerpa á inn- heimtu fasteignaskatts Gengið hefur verið frá ráðingu Sól- rúnar Guðjónsdóttur í stöðu að- stoðarskólameistara Fjölbrauta- skóla Snæfellinga í Grundarfirði. Alls sóttu þrír um stöðuna. Sólrún mun aðstoða Hrafnhildi Hallvarðs- dóttur sem ráðin var skólameistari nýverið. mm/ Ljósm. tfk. Sólrún í starf aðstoðar- skólameistara Spinning: Guðrún Daníelsdóttir og Anna Halldórsdóttir Mánudaga og miðvikudaga kl. 17:30 Hefst 7. september Kvennapúl: Leiðbeinandi: Guðrún Daníelsdóttir Þriðjudaga kl 18.00 Hefst í byrjun september Hádegispúl: Íris Grönfeld íþróttafræðingur Þriðjudaga og föstudaga kl 12.10 Vatnsleikfimi: Kennari: Íris Grönfeld íþróttafræðingur Konur: Þriðjud. kl. 17.00 Fimmtud. kl. 17.00 Föstud. kl. 14.00 Karlar: Þriðjud. kl. 18.00 Fimmtud. kl. 18.00 Þjálfari í þreksal: Íris Grönfeld íþróttafræðingur Mánud. kl. 14.30 – 17.30 Þriðjud. kl. 13.00 – 16.30 Fimmtud. kl. 15.00 – 16.30 Föstud. kl. 13.00 – 14.00 Íþróttamiðstöðin Borgarnesi Vetrarstarfið 2015 – 2016 S K E S S U H O R N 2 01 5 Ungbarnasund: Byrjar í september Nánar auglýst síðar Leikfimi og púl hjá Þórdísi: Mánud. og miðvikud. kl. 6:30 - 7:15 Mánud. og fimmtud. kl. 12:00 - 13:00 Þriðjud. og fimmtud. kl. 17:15 - 19:15

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.