Skessuhorn


Skessuhorn - 26.08.2015, Qupperneq 18

Skessuhorn - 26.08.2015, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 201518 LEIKSKÓLAR Akrasel á Akranesi Leikskólinn Akrasel á Akranesi var opnaður fyrst 8. ágúst 2008 og er sex deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum tveggja til fimm ára. Leikskólinn opnaði eftir sumarfrí 4. ágúst og eru 143 börn þar í upphafi þessa skólaárs. „Það hættu 27 börn hér í vor og 36 ný börn voru að koma inn núna og aðlögun er að ljúka núna á þessum dögum,“ segir Anney Ágústsdóttir leikskólastjóri Akra- sels. „Á Akraseli er þátttökuaðlögun og því tekur aðlögunin ekki langan tíma hér, við miðum við þrjá daga. Við tökum oft- ast börn í aðlögun inn í hópum, allt að 15 börn í einu og for- eldrarnir eru allan tímann með barninu í leikskólanum. Á fyrsta degi kemur barn með foreldrum í heimsókn og á öðrum og þriðja degi eru börnin allan vistunartímann sinn og foreldrarn- ir með allan tímann. Foreldrarnir sjá um börnin þessa daga og það hjálpar börnunum að finna til öryggis í leikskólanum. Á fjórða degi mætir barnið svo í leikskólann og kveður foreldra sína fljótlega og það hefur oftast gengið mjög vel,“ segir An- ney. Fyrir þetta skólaár eru 39 starfsmenn í 32 stöðugildum og um 60% þeirra eru fagmenntaðir. „Við erum að bæta við starfs- mönnum því börnum hefur fjölgað á milli ára, vorum með 130 börn í fyrra. Það hefur gengið mjög vel að manna í stöður og alltaf vel sótt um störf hér hjá okkur,“ segir Anney. Akrasel er Grænfánaleikskóli sem var að taka við þriðja fán- anum nú í ágúst. Einnig er unnið mikið með íþróttir og jóga í leikskólanum. Í fyrra var einn jógakennari en nú eru þeir þrír en það eru allt leikskólakennarar sem hafa bætt við sig menntun og eru nú einnig jógakennarar. Það starfar einnig íþróttakenn- ari í leikskólanum og fara börnin í hreyfistundir undir hand- leiðslu hans. Garðasel á Akranesi Leikskólinn Garðasel á Akranesi er þriggja deilda leikskóli sem var stofnaður í september árið 1991. Skólinn var opnaður eftir sumarfrí 4. ágúst og þetta skólaár eru 78 börn þar á aldrinum 1-5 ára og er 24 starfsmenn í 21 stöðugildi. 17 ný börn komu inn núna í ágúst og er aðlögun þeirra lokið, en á Garðaseli er þátttökuaðlögun þar sem foreldrar koma með börnunum í leikskólanum í þrjá daga og skilja þau svo eftir á degi fjögur. „Oftast tekst þátttökuaðlögunin mjög vel og börnin þurfa ekki lengri tíma en þessa þrjá daga. Ef börnin eru þó ekki tilbúin eftir þennan tíma þá er tekið tillit til þess,“ segir Ingunn Rík- harðsdóttir leikskólastjóri á Garðaseli. Leikskólinn er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hreyfingu og hollt mataræði. „Hér er lögð áhersla á hreyf- ingu í fjölþættu formi og öll börnin fá skipulagða hreyfistund í hverri viku. Einnig fara börnin í jóga og dans og svo erum við mikið með útinám. Það er eiginlega ekkert hér sem heitir til- búin matur, það er næstum allt gert frá grunni og við leggj- um áherslu á að minnka salt og óholla fitu. Þessu tengt vorum við að byrja á þróunarverkefninu „Lífið er leikur - að leika og læra“ og fengum við styrk frá Akraneskaupstað fyrir það verk- efni. Verkefnið er unnið með fyrirtæki sem heitir Leikur að læra og snýst það um að kenna börnum bókleg fög, t.d. stærð- fræði og bókstafi, í gegnum leik. Einnig tengist foreldrafræðsla þessu verkefni og þar erum við að fá foreldra til að vera virk- ari,“ segir Ingunn leikskólastjóri. Teigasel á Akranesi Leikskólinn Teigasel á Akranesi var opnaður eftir sumarlokun 4. ágúst síðastliðinn. Teigasel er þriggja deilda leikskóli sem fyrst var opnaður í september 1998. Þetta skólaár eru 72 börn á aldrinum 2-6 ára skráð í leikskólann og þar af eru þrjú ný börn á elstu deildinni og 18 börn á yngstu deildinni. Leikskól- inn er fullmannaður fyrir veturinn og eru 20 starfsmenn, þar af 11 faglærðir að stjórnendum meðtöldum. „Það hefur geng- ið mjög vel að manna en það eru fjórir nýir starfsmenn hjá okkur núna,“ segir Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólastjóri á Teigaseli. „Við gefum okkur út fyrir að vinna með stærðfræði og er mikil áhersla lögð á hana í okkar starfi. Unnið er með stærð- fræði á öllum deildum. Við vinnum markvisst með lífsleikni og styðjumst við námsefnið Stig af stigi. Einnig vinnum við markvisst með snemmtæka íhlutun og byrjuðum á því síðasta vetur. Snemmtæk íhlutun í málörvun felst í því að byrja nógu snemma að greina málþroskafrávik; skilgreina í hverju vand- inn er fólginn með því að fá góðar bakgrunnsupplýsingar um barnið og skoða vel hvaða málþætti þarf að vinna með, ásamt því að veita ráðgjöf og markvissa þjálfun til að ná árangri,“ seg- ir Margrét Þóra. Vallarsel á Akranesi Leikskólinn Vallarsel á Akranesi var stofnaður í maí 1979 og þá sem tveggja deilda leikskóli. Í dag eru sex deildir á leik- skólanum og fyrir þetta skólaár eru börnin 140 talsins, þar af 35 sem hófu nám í haust. Aðlögun hefur verið í fullum gangi þennan mánuðinn en henni mun svo ljúka í þessari viku. Á leikskólanum er notast við hópaðlögun en þá eru teknir inn fimm til átta barna hópar í einu og foreldrar eru með börn- unum allan tímann fyrstu þrjá dagana. Eftir þrjá daga minnkar viðvera foreldra í tvo til þrjá daga í viðbót. „Þetta hefur reynst mjög vel og börnin eru oftast fljót að aðlagast,“ segir Brynhild- ur Björg Jónsdóttir leikskólastjóri á Vallarseli. „Vallarsel er tónlistarleikskóli þar sem mikil áhersla er lögð á alla tónlist, tónlistarkennslu og tónlistarflutning. Við erum með foreldratónleika í desember og maí og elstu börnin halda einnig tónleika á Vökudögum. Við leggjum líka mikla áherslu á hreyfingu, málörvun, hópastarf og slíkt. Hér eru einnig mörg tvítyngd börn og því höfum við mikið lagt áherslu á að búa til öflugt starf og kennslu fyrir þau börn. Við fengum nýver- ið úthlutað styrk frá þróunarsjóði Akraneskaupstaðar upp á 3,1 milljón króna og er sá styrkur ætlaður til að efla starf og þá kennslu sem þarf fyrir tvítyngd börn. Hér á Vallarseli er mjög stór hluti barnahópsins tvítyngdur og koma flest þeirra barna frá Póllandi. Við ætlum að reyna að efla börnin og þá t.d. í eigin móðurmáli og íslensku en einnig ætlum við að reyna að efla starfsfólkið. Styrkurinn verður notaður til að fá fyrirles- ara hingað og til að senda starfsfólk á námskeið og í heim- sóknir þar sem mikið hefur verið gert fyrir tvítyngd börn, til að afla sér þekkingar. Styrkurinn mun einnig fara í að uppfæra kennslugögn, deildarnámskrá og skólanámskrá með tilliti til máltöku tvítyngdra barna,“ segir Brynhildur Björg. Á leikskólanum eru 35 starfsmenn og þar af eru 19 faglærð- ir. „Vel hefur gengið að manna allar stöður hér og lítið hefur verið um mannabreytingar. Hér er mjög hress, glaður, sam- heldinn og flottur starfsmannahópur og frábærir foreldrar sem standa á bak við okkur svo við erum bara full tilhlökkunar fyrir komandi vetri,“ segir Brynhildur Björg að lokum. Leikskólinn Andabær á Hvanneyri Leikskólinn Andabær er þriggja deilda leikskóli og þar dvelja í dag 36 börn, þar af eru fimm að hefja nám. Átta börn til viðbótar hafa fengið úthlutað leikskólaplássi fram að áramót- um svo áætlaður fjöldi barna um áramót er 44. Frá og með 11. júní síðastliðnum eru börn tekin inn við 18 mánaða aldur. „Leikskólinn er fullmannaður fyrir veturinn með 13 starfs- menn og ekki hefur verið mikið um mannabreytingar undan- farið,“ segir Áslaug Ella Gísladóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Andabæ. „Einkunnarorð leikskólans eru Leikur – Gleði – Vinátta og er leikskólinn Grænfánaleikskóli, heilsuleikskóli og starf- ar eftir hugmyndafræði þeirrar stefna. Leikskólinn er einnig þátttakandi í verkefninu Leiðtoginn í mér sem skólar reknir af Borgarbyggð og Grunnskóli Borgarfjarðar vinna að,“ seg- ir Áslaug að lokum. Hnoðraból í Reykholtsdal Hnoðraból er lítill leikskóli sem rekinn er á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Á leikskólanum eru 22 börn á þessu skólaári. Samantekt um starf leikskólanna á Vesturlandi Nú hafa allir leikskólar á Vesturlandi verið opnaðir að nýju eftir sumarlokanir og hefðbundið skólastarf að fara í gang í flestum þeirra. Skessuhorn heyrði í stjórnendum allra leikskólanna og fékk helstu upplýsingar frá hverjum og einum. 7 ára afmæli Akrasels og afhending Grænfánans. Börnin á Garðaseli með verðlaunapeninga sem þau fengu fyrir þátttöku í heilsuskokki í maí. Stelpur á Teigaseli að moka í sandkassanum. Stelpur í útiveru á Vallarseli. Verið að setja niður kartöflur í Andabæ. Börnin á Hnoðrabóli að drullumalla.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.