Skessuhorn - 26.08.2015, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 201522
VARMADÆLUR
RAUNVERULEGUR SPARNAÐUR
YFIR 10 ÁRA REYNSLA VIÐ ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR OG
HUNDRUÐ ÁNÆGÐRA NOTENDA SEGIR ALLT SEM SEGJA ÞARF.
FJÖLBREYTTIR HITUNARMÖGULEIKAR:
Loft í loft Loft í vatn Vatn í vatn
FUJITSU LTCN LOFT Í LOFT VARMADÆLAN:
Best í prófun hjá SP í Svíþjóð
WWW.GASTEC. IS
„Þetta er ósköp mikið krafs,“ seg-
ir Pétur Bogason hafnarvörður í
Ólafsvík í gærmorgun um ganginn
í makrílveiðum krókabáta við Snæ-
fellsnes. „Aflinn er mjög rokkandi,“
segir Pétur og bætir við að sumir
bátanna séu að fá 400 kg upp í átta
tonn yfir daginn. „Þetta er svo sem
enginn mokveiði en einn báturinn
landaði 200 kílóum hér á sunnu-
dagskvöld og síðan ætlaði sami bát-
ur að sigla í Rif og þá sá skipstjórinn
smá lóðningu á leiðinni og landaði
svo fimm tonnum á mánudagsmorg-
un.“ Pétur segir að veiðisvæðið sé frá
Arnarstapa og að Bulluskerjum sem
eru rétt út af Ólafsvík. af
Krafs á makrílveiðum
krókabátanna
Særif SH og Borgar Sig að veiðum
alveg við snúrustaurana á Hellissandi í
gærmorgun.
Á síðasta ári var grjótvörnin með-
fram Gilsbakka í Ólafsvík endur-
byggð, hækkuð og færð utar. En
undanfarið hefur svo verið unnið að
því að lagfæra sjálfa götuna ásamt
því að skipta um lagnir. Í verkið fara
um 350 tonn af steypu og er áætl-
að að framkvæmdum ljúki 20. sept-
ember en þá verður búið að steypa
gangtéttir og tilheyrandi kantstein.
Um verkið sér ÞG Þorkelsson ehf
og fékk hann til liðs við sig Stafnafell
sem sá um jarðvegsvinnu, VK lagn-
ir um pípulögn og Þorgeir ehf. um
steypuna. Það er Hafnarsjóður Snæ-
fellsbæjar sem stendur straum að
framkvæmdunum.
þa
Steypa við Gilsbakkann
í Ólafsvík
Freisting vikunnar
Þrátt fyrir að sólin hafi skinið á
Vesturlandi hér um bil í allt sumar
fer lítið fyrir berjasprettu í lands-
hlutanum. Líklega má kenna um
köldu vori. Bláber eru seinna á
ferðinni en undanfarin ár og afar
lítið er um krækiber. En þrátt fyrir
það, þá grípa hörðustu berjatínslu-
menn ekki alveg í tómt. En þó að
berjaspretta sé ekki góð þetta árið,
þá er þetta akkúrat tíminn sem
berjaunnendur láta sig dreyma um
ljúffeng og safarík ber. Við birtum
því uppskrift af bláberjamúffum.
Þeir sem ekki komast í berjamó
þurfa ekki að örvænta, það kemur
ekki að sök þótt bláberin sem not-
uð eru í þessar kökur séu frosin.
Súkkulaði- & bláberja cupcake
með ananaskremi
Í kökuna fer eftirfarandi:
- 1/4 bolli kakó
- 1/4 bolli soðið vatn
- 1 bolli hveiti
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/2 tsk lyftiduft
- 113 gr smjör
- 1 bolli sykur
- 2 egg
- vanilludropar
- 1/2 bolli mjólk
- 1 bolli bláber (fersk eða frosin)
Aðferð:
- Soðið vatn og kakó sett saman í
skál og hrært þar til það eru engir
kekkir.
- Sykur og smjör hrært saman þar til
það er létt og ljóst.
- Hveiti, lyftiduft og matarsódi
hrært saman í sér skál.
- Þegar smjör og sykurblandan er
orðin ljós og létt er eggjum bætt við
einu í einu, þá kakóblöndunni og
vanilludropum.
- Þá er hveitiblöndunni og mjólk-
inni hrært saman við.
- Veltið svo bláberjunum upp úr
hveiti og hrærið þeim svo saman við
herlegheitin.
Bakist við 175°C í 20 mínútur, fer
þó aðeins eftir ofnum.
Kremið:
- 100 gr. smjör
- um 200 gr. af flórsykri en það fer
eftir þykktinni á kreminu.
- 50 ml af hreinum ananas safa (þetta
fer líka eftir þykkt og smekk)
Allt hrært saman í nokkrar mínút-
ur, þar til kremið verður mjög létt
og ljóst.
Haustlegar múffur með sumarlegu kremi